Vikan - 13.05.1965, Side 8
Hand- og fótsnyrtitækiö
PEDIMANN
TækifærisgjSfin eftirsótta
frá Sviss er komin aftur
BORGARFELL H.F.
LAUGAVEGI 18. - SÍMI 11372.
SEUAEKKI
FASTEIGNIR
Yndisleg lítil smásaga
eftir George S. Albee
Viltu ekki glas af öli, elskan?
spurði Henry Decker kon-
una sína. Klukan var hálfsex og
hann var nýkominn heim frá
skrifstofunni. Hann hafði haft
fataskipti, og var kominn í þægi-
legar buxur og ljósbláa peysu.
Eða Martini?
— Martini, sagði Deborah, án
þess að hika. — Henry, ég veit
að þér finnst það heimskulegt, en
það hefir verið draugur hérna í
húsinu í dag!
Henry hrærði rólega í kokk-
teilhristaranum, sem var með
upphafsstöfunum þeirra og Deb-
orah hafði keypt hann á fjórða
brúðkaupsdeginum. Svo gengu
þau út á svalimar, sem sneru út
í litla, en vel hirta garðinn.
— Þetta er nú meira grasið,
sagði Henry. — Það er bara orð-
ið fimm sentimetrar á hæð, og
þó eru ekki nema nokkrir dagar
síðan ég sló blettinn. En segðu
mér nú frá þessari afturgöngu
þinni, sagði hann glaðlega.
— Þetta er alls ekkert grín.
Ég varð alveg frávita að hræðslu.
Hún settist í garðstól og hag-
ræddi sér. — Mér heyrðist ein-
hver vera í dagstofunni, svo að
ég fór inn, og þar stóð hann.
— Um hábjartan daginn?
—■ Já, um hábjartan daginn.
Það var lítill þybbinn maður um
fertugt. Hann var í súkkulaði-
brúnum fötum, gulbrúnni skyrtu
og með dökkrautt bindi. Skórnir
voru nýburstaðir. Hann var með
brúnan hatt, og sveittur á efri
vörinni.
— Ekki vissi ég að draugar
gætu svitnað, sagði Henry og hló.
— Hver var þetta?
— Ég er ekki að gera að gamni
mínu!
— En hvernig komst hann inn.
Hefi ég ekki sagt þér að þú átt
alltaf að læsa útidyrunum?
g VIKAN 19. tbl