Vikan

Tölublað

Vikan - 03.06.1965, Blaðsíða 32

Vikan - 03.06.1965, Blaðsíða 32
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú hefur hafizt handa um framkvæmdir á ákveðnu máli sem margir vinir þínir undra sig á. Þú ert nokkuð óviss en allt bendir til að endalokin verði góð. Framkomu þinni er tilsvert ábótavant og skaltu taka hana til endurskoðunar. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú ert haldin nokkrum leiða og stafar hann aðal- lega út af ósætt í félagssamtökum þínum. Einkalíf þitt verður hið ánægjulegasta og ættingjar þínir taka þig með sér á einhvern fjölmennan mann- fagnað. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú ert áhyggjufullur og nokkuð snúinn í garð eins vinnufélaga þíns. Ef þú athugar málin niður í kjöl- in sérðu að ýmsilegt má færa til betri vegar en það verður að koma frá þér sjálfum. Helgin verður fremur daufleg. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Dagarnir verða hver öðrum líkir og þú ert fremur kærulaus. Þú hefur mörg járn í eldinum en ert ekki mjög vongóður um lausn ýmissa vandamála þinna. Meðbræður þínir reynast hinir samnings- liprustu og bónbeztu. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Þú kemur ekki vel fram við einn vin þinn. Þú hef- ur gert nokkuð góð kaup og ert ánægður með þau en þau kostuðu þig heldur mikið. Reyndu að stunda útilíf og ferðalög eins og þú átt kost á. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þú ættir að sinna fjölskyldu þinni meir og hugsa meir um að gera heimilisfólki þínu til hæfis. Þú ert nokkuð argur og umgengiserfiður og ættir að leita orsaka þess hjá sjálfum þér. Þú verður fyrir happi í vikulokin. Vogarmerkiö (24. september — 23. október): Þú stendur í stórræðum, en gættu þess að leggja ekki of hart að vinur þínum og nánasta skyldfólki. Þú kemur ekki vel fram við ákveðin ættingja þinn, þú skalt endilega leiðrétta það. Líkur eru á ferða- lagi. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember); Þú átt í miklum erfiðleikum með að taka ákvörðun og reynir margar leiðir áður en þú aö lokum velur. Einn samstarfsmaður þinn reynist þér góður félagi. Vissir aðilar eru orðnir nokkuð þreyttir á sein- virkni þinni. Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. desember): Þú hefur mörg járn í eldinum en átt bágt með að fá nokkuð sem hentar þér vel. Þú hefur nokkuð mik- ið að gera og lætur vissa aðila fara í taugarnar á þér. Þú verður að tefla á tvær hættur. Steingeitarmerkiö (22. desember — 20. janúar): Þú hefur tekið að þér verkefni sem fer illa með hinn eiginlega frítíma þinn. Þú skalt leita ráða hjá reyndu fólki varðandi vissar athuganir þínar. Var- aztu að vera of mikið upp á aðra kominn. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú hefur farið með sigur af hólmi í einhverju bar- áttumáli milli þín og fjölskyldunnar en því miður hefurðu ekkert upp úr því fjárhagslega eins og þú væntir. Þú verður þátttakandi í ferðalagi. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Það verður mjög skemmtilegt 1 kringum þig, sér- staklega í kringum helgina. Þú nýtur þess að vera í þínum hópi. Hugsaðu ekki mikið um hluti sem eru fjármálalegs eðlis þeir eiga ekki rétt á sér eins og stendur. HUSMÆÐUR! 1001, eldhúsrúilan er fram- leidd sérstaklega fyrir notkun í eldhúsum ykkar og hjálpar ykkur við dagleg störf. ELDHUSRULLAN GEGNIR 1001 HLUTVERKI

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.