Vikan

Tölublað

Vikan - 03.06.1965, Blaðsíða 37

Vikan - 03.06.1965, Blaðsíða 37
FERÐflSKRIFSTOFAN SKÓLAVÖRÐUSTÍG 16, II HÆÐ. - SÍMI 22890. LMNQSVN t • Veitir upplýsingar og fyrirgreiSslu varðandi ferðalög um ailan heim. • Selur flugmiða hvert sem er. Getur séð um fyrirgreiðslu ó farmið- um með skipum og jórnbrautum víðsvegar um heim. • Önnumst fyrirgreiðslu ó hótelgistingum innanlands og utan. • Skipuleggjum hópferðir og ferðir einstaklinga innanlands og utan. • Ef þér þurfið að fljúga, hringið til okkar. Við útvegum flugferðir strax með hinum glæsilegu Loftleiðavélum. Munið greiðsluskilmóla Loftleiða - PLUGFERÐ STRAX OG FAR GREITT SÍÐAR. - Loftleiðir bjóða íslenzkum viðskiptavinum sínum upp ó þriggja til tólf mónaða greiðslufrest ó allt að helmingi þeirra gjalda, sem greidd eru fyrir flugför á flugleiðum félagsins. HÓPFERÐIR: L.S.5. Finnland — Sovétríkin, 10/7—24/7. Verð kr. 15.650,00 — Helsinki, Leningrad, Kiev, Yalta, Moskva. Fararstjóri: Gestur Þorgrímsson. L.S.6. Finniand - Sovétríkin, 17/7-31/7. Verð kr. 15.650,00 - Helsinki, Leningrad, Riga, Kiev, Sochi, Moskva. Fararstjóri: Reynir Bjarnason. L.S.7. Frakklond — Algiere (Heimsmót æskunnar) 23/7—13/8. Verð kr. 18.000,00 — Luxemborg, Paris, Algiere. Fararstjóri: Héðinn Jónsson. L.S.8. Danmörk — A-Þýzkaland (Eystrasaltsvikan) 1/7—17/7. Verð kr. 9.500.00. — Kaupmannahöfn, Rostock, Berlín. Fararstjóri: Tryggvi Sig- urbjarnason. L.S.9. Danmörk — Rúmenía (Mamaia) 29/7—19/8. Verð kr. 12.850,00. — Kaupmannahöfn, Malmö, Constanta, Mamaia. Fararstjóri: Gestur Þor- grímsson. L.S.10. Noregur - Danmörk 10/7-29/7. Verð kr. 13.000,00 - Osló, Harð- angursfjörður, Esbjerg, Odense, Kaupmannahöfn, Gautaborg. Farar- stjóri: Elín Torfadóttir. L.S.ll. Danmörk — Tékkóslóvakía — Holland (Spartakiade) 26/6—9/7. Verð um kr. 14.000,00 — Kaupmannahöfn, Prag, Amsterdam. Fararstjóri: Gestur Þorgrímsson. L.S.13. Banmörk — Rumenía (Mamaia) 2/9—21/9. Verð kr. 12.850,00 — Kaupmannahöfn, Malmö, Canstanta, Mamaía. Fararstjóri: Gestur Þor- grímsson. NÁNARI UPPLÝSINGAR í SKRIFSTOFU OKKAR. ÞÁTTTAKA TAKMÖRKUÐ í SUMARFERÐIRNAR. Auk þess seljum við farmiða í hópferðir til m.a. Spánar, ítaliu, Júgóslavíu, Austurríkis, Sviss, Þýzkalands, með þekktum dönskum ferðaskrifstofum. Skipaferðir um Eystrasait — Miðjarðarhaf með Balticline. Ameríkuferðir. Fjölbreyttar transit ferðir til Japan gegnum Sovétríkin á um 30—40 þúsund krónur. Allt innifalið í mánuð. Slmlnn ert 22090 - SkriflO: Utanáskriftin er: FERDASKRIFSTOFAN LANDSÝN H.F., p. o. Box 465 - rvík - Isiand — Við höfum ekki tíma, sagði Ryan. — Við stönzum eftir um það bil tíu mlnútur. — Maður hefur alltaf tíma til að éta, sagði Fincham. Hann tók kjúkl- ingslæri upp af diskinum, sleikti af því sósuna og byrjaði að éta. — All right, sagði Ryan. Hann lagði mat á disk og rétti Klement. — Fincham, þegar þér eruð sadd- ur, verðið þér að mata loftskeyta- manninn. — Mata hann? spurði Fincham. — Er ég einhver djöfuls barnfóstra handa honum? — Annað hvort verðið þér að gera það, eða þér verðið að leysa hann og binda hann síðan aftur. — Eg skal mata litla helvítis svín- ið, sagði Fincham. — Það er bezt að þér reynið að borða eitthvað, faðir, sagði Ryan. — En áður en þér gerið það langar mig að biðja yður að fara í ein- kennisbúning loftskeytamannsins. Þér verðið að koma með mér og Klement út til þess að við getum verið fullvissir um, að hann segi ekkert um það, sem komið hefur fyrir. — Ég er ekki hermaður, ofursti, svaraði presturinn rólega. — Ég krefst þees ekki að þér drepið neinn, faðir, sagði Ryan. — Aðeins, að þér reynið að bjarga yðar eigin lífi. — Það var annað mál, ofursti, sagði Constanzo og glotti. — Fincham, lyjmið með einkenn- isbúning loftskeytamannsins, sagði Ryan. — Þér ráðið betur við hann en ég. Þjóðverjinn nísti tönnum í van- máttka reiði. Costanzo háttaði sig bak við vegginn, sem hólfaði af klósettið, og þangað kom Fincham með ein- kennisbúninginn. Eimreiðin gaf frá sér langt flaut og hægði ferðina. — Fljótir, faðir, sagði Ryan. — Við erum næstum komnir. — Finch- am, keflið Hitlersunglinginn. — Hver djöfullinnl sagði Finch- am. — Ég er ekki búinn nema með helminginn af matnum mínum. Lestin stanzaði með rykk og Cost- anzo rauk fram á gólfið með þýzku buxurnar um hnén. Hann renndi þeim upp um sig og lokaði buxna- klaufinni. — Segið Klement, að þegar við stígum niður úr vagninum verði ég fast á hælum hans og muni halda hríðskotabyssu við bakið á honum, sagði Ryan. — Hann á að gefa varð- mönnunum á þessum vagni fyrir- mæli um að vera þar sem þeir eru, og láta skipunina ganga. Ef ein- hver þarf að kasta af sér vatni eða þessháttar, verður hann að gera það við hliðina á sínum eigin vagni og síðan klifra beint upp aft- ur. Þessi skipun gildir þar til önn- ur ný kemur. Svo förum við aftur inn í vagninn. Verið vissir um, að hann hafi skilið. Og Fincham, þér verðið kyrr hérna inni qjg hafið auga með honum vini okkar. Og meðan þér bíðið takið þér rakáhöld Klements og rakið af yður yfir- vararskeggið. — Hvað? hrópaði Fincham. — Þér getið ekki sýnt yður fyrir utan vagninn með þennan bursta, sagði Ryan. — Það væri sama og gefa sig beinlínis fram. Þér hafið skipun um að raka hann af. Hann opnaði dyrnar og sá fyrir framan sig dimma og næstum auða stöð. Varðmennirnir voru þegar teknir að klöngrast niður. — Út með Klement í einum græn- um, hvæsti hann. — Segið honum að skipa mönnunum þegar í stað upp á vagnana aftur. Klement klifraði niður og Cost- anzo fast á hæla honum. Klement hrópaði fyrirskipun og mennirnir á fyrstu vögnunum sneru nauðugir við. Ryan stillti sér þar sem enginn sá framan í hann. — Lítur þetta eðlilega út, faðir? hvíslaði hann. — Nú fer ég með Klement inn í vagninn aftur. Mig langar að biðja yður að skreppa að okkar vagni og biðja Stein að koma hingað. En fyrst verður hann að fara í þýzkan einkenninsbúning. Fincham hafði náð í rakvél og var að sápa sig. Hann var ekki sérlega ánægður á svipinn. Ryan beið við dyrnar eftir Costanzo. Þeg- ar hann kom aftur, opnaði Ryan dyrnar nægilega mikið til þess að presturinn gæti rennt sér inn. — Hann kemur eftir andartak, sagði Costanzo. Ryan stdð kyrr við dyrnar, Hann heyrði hvernig fangarnir börðu vagnana og bölvuðu Þjóðverjunum. Eftir nokkrar mínútur hvíslaði Stein við dyrnar og Ryan hleypti hon- um inn. — Gaman að sjá ykkur, strákar! sagði Stein. — Það er leiðinlegt þarna hinumegin í þessum félags- skap. Fincham sýslaði við yfirvarar- skeggið sitt og sneri baki í Ryan. Eftir stundarkorn sneri hann sér við. í staðinn fyrir að raka alveg af sér yfirvararskeggið hafði hann skil- ið eftir Hitlersskegg og til að líkj- ast honum ennþá meira hafði hann kembt hárið niður á ennið. — Hver er nú þýzkastur í útliti? spurði hann. Ryan leit á úrið sitt. — Við hljótum að vera alveg að fara af stað aftur, sagði hann. — Klement majór, rekið út höfuðið og kallið út varðmanninn á þessum vagni. Segið hnoum að koma niður, þér þurfið að tala við hann. Stein, breiðið yfir vininn þarna í horninu svo hann sjáist ekki. Fincham, þeg- ar Þjóðverjinn kemur að dyrunum, þríf ég hann inn og síðan vit- ið þér hvað þér eigið að gera. Ryan opnaði dyrnar og Klement hrópaði á varðmanninn uppi á þak- inu. Þeir heyrðu járnaða gönguskó hans glymja við stigaþrepin á gafli vagnsins. Síðan dró Klement frá dyrunum og Ryan faldi sig fyrir aft- an hann. Þegar varðmaðurinn lagði hendur á þröskuldinn til að klifra inn, teygði Ryan sig fram og þreif í hálsmál hans. Hann kippti mann- VIKAN 22. tbl. gy

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.