Vikan

Tölublað

Vikan - 03.06.1965, Blaðsíða 6

Vikan - 03.06.1965, Blaðsíða 6
ULTRfí+LfiSH Mascara TIL AÐ LENGJA OG LENGJA ENNÞA MEIR SILKIMJÚK AUGNAHAR. "Wffr*. ULTRA'LASH er fyrsti augnháraliturinn sem Jengir og þéttir augnahárin án þess a8 gera þau stíf. Þessi einstaka efnablanda lengir án gerviþráða. Allt sem þér þurfið að gera er að bera ULTRA*LASH á með hinum hentuga TAPER-BRUSH sem byggir upp um leið og hann iitar hvert augnhár. Ekkert auka erfiði og ekkert ergelsi út af glj áalausum og klístr- uðum augnhárum. ULTRA*LASH hleypur ekki í kekki, né skilur eftir klessur eða bletti. Þetta er fyrsta skaðlausa efnið sem lengir og þéttir augnhárin, þolir vatn og er lyktarlaust. Sér- staklega auðvelt að hreinsa á nokkrum sekúnd- um með Maybelline Mascara Remover. Kemur í þrem góðum litum: VELVET BLACK, SABLE BROWN og MIDNIGHT BLUE. alltaf það hreinasta og bezta fyrir fegurð augnanna: t AÐ KUNNA AÐ KVEÐJA Á KVÖLDIN. Kæra Vika! Við hjónin eigum góðan vin, sem oft kemur til okkar og sit- ur og rabbar við okkur kvöld og kvöld. Þetta finnst mér mjög ánægjulegt, en einn ókostur er þó á ráði hans. Hann situr gjarn- an kyrr og hreyfir sig ekki þótt klukkan verði bæði eitt og tvö, jafnvel þótt hann viti að við hjónin þurfum bæði að vakna snemma að morgni. Honum ligg- ur ekkert á, því hann stundar þannig vinnu að hann getur sof- ið fram að hádegi. Hvað eigum við nú að gera, til að koma hon- um í skilning um þetta án þess að móðga hann? Eigum við kannske að sitja kyrr og láta sem ekkert sé að vakna svo grút- syfjuð að morgni, — eða eig- um við að segja honum þetta á varlegan máta? Og hvað er varlegur máti? Kolbeinn S. B. Mér finnst alveg sjálfsagt að þið komið honum í skilning um þetta. Ekki aðeins ykkar vegna, heldur einnig hans vegna. Hon- um hefur líklega aldrei dottið þetta í hug, og ef hann er góð- ur vinur ykkar, verður hann þakklátur ykkur ef þið segið hon- um hreinskilningslega hvað að er. Svo er líka það að athuga, að þótt ykkur takist að þola þetta um tíma, þá þreytist þið á þessu og kunningsskapurinn kólnar ó- sjálfrátt. Það væri ekki rétt beggja aðila vegna, að Iáta slíkt henda aðeins vegna misskilnings og skorts á hreinskilni milli vina. Aftur á móti — hvað er var- legur máti... ? Því get ég hreint ekki svarað. Það byggist alveg á skapferli hans og ykkar, hversu nánir vinir þið eruð, hvemig þið talið saman og svo mörgu öðru. Aðferðina verðið þið að finna sjálf. HVAÐ MEÐ BÍLINN? VIKAN Reykjavík! ÞaS kemur oft fyrir að okkur hjónunum er boðið út til vina og kunningja. Við búum dálítið fyrir utan borgina, svo að það er oft nokkuð langt að fara og við förum þessvegna í bílnum okkar. Það er svo ósjaldan að okkur er boðið vín, og þá verðum við í vandræðum með bílinn. Oft er sagt við okkur að við hefðum ekki átt að koma á bílnum — en hvernig í ósköp- unum á maður að vita slíkt, ef manni er ekki sagt fyrirfram að vín verði á boðstólum? Nú langar mig til að spyrja hvort það sé dónalegt að spyrja um það strax, hvort maður eigi að koma á bílnum eða ekki... þ.e.a.s. hvort manni verði boðið vín. Er það dónaskapur? Þorvaldur R. Ef um góða kunningja er að ræða, sem oft hafa vín á borð- um, finnst mér ekkert athuga- vert við það, þótt þannig sé spurt. Annars ætti það að fylgja með boðinu, að meiningin sé „að fá sér einn gráan“ eða hvað sem menn vilja kalla það. Og svo eru fleiri möguleikar fyrir hendi. Þið getið vafalaust farið á bílnum í heimboðið, en skilið hann eftir ef þannig stend- ur á. Daginn eftir er svo hæg- ur vandi að fara og sækja hann. Ein hjón þekki ég, sem eiga upp- kominn son, og fá hann til að aka sér í svona óviss heimboð. Hann fer svo aftur heim á bíln- um, en hjónin fá sér leigubíl heim um kvöldið. Bezt er samt ávallt, ef greini- legar upplýsingar fylgja heim- boðinu, og vonandi hafið þið það þannig, þegar þið bjóðið heim til ykkar. BLÖÐIN OG MÁLFAR ALMENNINGS. Póstur! Sómi hverrar þjóðar er tungu- mál hennar. Oft hefur undirok- uðum þjóðum verið veitt frelsi og sjálfstæði vegna þess, að þær hafa haldið tungumáli sínu hreinu og óbrengluðu, í stað þess að taka upp mál herraþjóðarinn- ar. Má að nokkru leyti þakka sjálfstæði vort því, að vér tók- um ekki að tala danska tungu. Ætti því hver og einn að reyna að bæta málfar sitt, og þá auð- vitað stafsetningu líka. En þungt sækist sá róður. Dagblöðin og önnur blöð virðast hafa mjög lé- lega íslenzkumenn í sinni þjón- ustu, og vaða þar uppi villurnar. Enginn þessara blaðamanna virð- ist hafa fengið nema barnaskóla- menntun. Enginn þeirra virðist vita, að til er stafurinn — z —, og því síður kunna þeir að nota

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.