Vikan

Tölublað

Vikan - 03.06.1965, Blaðsíða 26

Vikan - 03.06.1965, Blaðsíða 26
I. Gefst okkur mönnunum meiri gæfa en sú aS eignast ungur að árum daglegt ljós á daglegri för gegnum lífiö ? Samvizka allra manna leitar þessa ljóss. Leitin er sprottin úr djúpum sálar- lífsins af þrá mannsins eftir þvi að sam- einast hinum eilifa anda, að verða sann- ur og hreinn, að eignast hugarró. 1 henni felst konungshugsjón hverrar einustu mannveru. En mennirnir eru misjafnir og að- stöðurnar og tímarnir ólíkir. Einhvernveginn skilst manni, að fyrr á tíð, í þögulu striti á sjó og í sveit, þegar feður okkar og mæður erjuðu jörðina Við höfum jafnvel verið svipt himn- unum. Og samt höldum við áfram að leita, af því að það er okkar innsta eðli. Það er neistinn frá guði. Það er kveikjan frá eilífðinni. Neistinn i mannssálunum er ekki jafn- sterkur með þeim öllum. Gerðin, um- hverfið og aðstæðurnar, eru mismun- andi. Einn lýtur því í hugarró, sem öðr- um nægir ekki. Stundum hættum við leitinni snögglega, gefumst upp og lát- um okkur nægja lágt og smátt. Aðrir verða að ganga gegnum hreinsunarelda til þess að finna það sem þeir leita að. Sumir koma nýir menn upp úr eigin Bráðgáfaður þegar í æsku og tilfinninganæmur. Trúhneigður með persónulega reynslu af guði á unga aldri. Öslitinn framaferill innan kirkjunnar síðan hann innritaðist í guðfræðideildina 1931. í sveita sins andlits, og báru aðeins úr býtum það sem þurfti til brýnustu lífs- nauðsynja, og nægði ekki alltaf, eða þeir reru til fiskjar á litlum fleytum, hafi leitin borið meiri árangur og giftu- drýgri. Þá var meiri hugarró, lífið kyrr- látara, trúin heilli og traustari. Ég laugaðist óumræðanlegri birtu af andlitum annarra manna í litilli þorps- kirkju fyrr á líð og óskaði mér þess heitt og innilega að ég fyndi þessa birtu einnig innra með sjálfum mér. En nú er eins og geislarnir komi á strjálingi einn og einn, eins og leiftur. Timarnir hafa gjörbreytzt. Fátækt hefur verið útrýmt í þeirri mynd sem hún var. Umkomuleysi, miðað við fyrri tima, er úr sögunni. Öryggi hverrar mannveru hið ytra hefur aukizt. Sjúkum og ellimóðum er hjálpað eins og í mannlegu valdi stendur. Lífið nið- ist ekki á neinum að öllu sjálfráðu. Þjóð- félagið, sem við höfum byggt upp á síð- ustu fjórum til fimm áratugum, réttir fram hönd sína til aðstoðar. Það var sannfæring okkar, að við sköpun sliks þjóðfélags myndi mann- eskjan lyfta andliti sinu hærra mót himnunum, að leitin að leiðarljósinu yrði auðveldari og birtan skærari. En það er erfitt fyrir mannskepnuna að halda andlegu jafnvægi á gjörbylt- ingatimum. Iðulaus styrjöld hefur geysað í heim- inum í hálfa öld. Andlegt öryggisleysi ríkir og ræður miklu um athafnir okkar, hugsanir okkar, — og leit okkar að leið- arljósi. Samt þráum við ekkert heitara en samræmi, jafnvægi og hugarró. En mörg stöndum við uppi sem and- legir öreigar. Kjökrandi stynjum við undir fargi allsnægta, vélvæðingar, fjölmiðlunar- tækja, vaxandi hraða. kvöl, stiga fram bjartir og heilir og ganga þá fremstir. Gullið hefur skýrzt. Grómið hefur fallið. II. Engin kynslóð á íslandi hefur lifað aðrar eins gjörbreytingar í veraldlegum og andlegum efnum siðan landið byggðist og sú, sem fæddist upp úr siðustu alda- mótum. Segja má, að atvinnuhættir hafi staðið í stað í þúsund ár, en stórfelldar breytingar í atvinnulífi fólksins valda allt af miklum andlegum hræringum. Það er ekki aðeins að þær komi á róti liið ytra, fólksflutningum, nýjum við- horfum í daglegri önn, möguleikum, sem áður þekktust ekki, hruni gamalla siða og athafna, heldur valda þær ekki síður margvislegum efasemdum, trúleysi á það sem áður var viðtekið og jafnvel talið heilagt. Þá tinast eyktamörk. Þá ruglast áttir. Það reynist mörgum erfitt að lifa slika tima, og þvi stórbrotnari, sem menn- irnir eru að innri gerð, því erfiðara reyn- ist það. Því heitari, sem samvizkan er og hreinni, því meiri, sem gáfurnar eru, því örðugri er leitin að neistanum, að leiðarljósinu, sem þeir þrá að finna. Og erfiðust verður þeim baráttan, sem ekki láta sér nægja lágt og smátt, en krefj- ast þess af sjálfum sér, að þeir gefist ekki upp fyrr en þeir finni allt. Þeir, sem leita sannleikans af heilum hug, láta sér ekki nægja hann hálfan. Þeir eru eins og reyr af vindi skekinn þangað til þeir hafa fundið hann allan. Einn þessara manna, sem jafnframt er tákn þeirra tíma, sem við lifum á, er biskupinn yfir íslandi, Sigurbjörn Einarsson, sem nú verður leitazt við að gera nokkra grein fyrir i Aldarspegli. Það skal fúslega játað, að það er ekki DAGL UC DAGL WWu FG Sr. Sigrurbjöri bisb Sálarkreppur og stööugur ur um trúarlíf mannkyr kirkjunnar manna á íslan vald yfir sjálfum sér. VIKAN 22. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.