Vikan - 24.06.1965, Qupperneq 6
tOR TORflT m.
Nú er það komið, VO-5 vinsælasti harhrems-
ir (shampoo) Bandaríkjanna, sem gerir hár-
ið nákvæmlega eins og þér vlijið hafa það.
Stendur hárið venjulega út í loftið eftir
þvottinn? Ekki lengur. Ekki með VO-5. Ger-
ið VO-5 að yðar hárhreinsi — og það verður
barnaleikur að leggja hárið.
VO-5 með 5 starfrænum efnum: 3, sem
gera hárið hreint, glansandi og vellykt-
andi. 2, sem gera hárið mjúkt og viðráð-
anlegt — eins og þér viljið hafa það.
EINKAUMBOÐ:
U.P. GUÐJÓNSSON H.F.
Skúlagötu 26. — Sími 11740.
HVERSU FRÆG ER PETULA CLARK?
Oddeyrargötu 24,
Akureyri,
17. maí 1965.
Ég las grein yðar í síðasta tölu-
blaði um söngkonuna Petulu
Clark og þar segið þér að hún
hafi ekki annað gert markvert
en að syngja inn á þessa einu
plötu þ.e. „Down town“.
Mér sárnaði mjög þessi mis-
skilningur hjá yður, og óska þess
eindregið að þetta verði leiðrétt.
Sjálf þekki ég vel æfiferil þess-
arar fjölhæfu söng og leikkonu,
og til þess að þér getið sannfærzt
um hve rangt þér hafið fyrir yð-
ur í þessu máli, sendi ég yður
þetta hefti, sem hefur inni að
halda greinargóðar upplýsingar
um hver Petula Clark raunveru-
lega er. Þetta hefti keypti ég í
London einhverntíma á tímabil-
inu 1950 til 1954, og þá var Petula
Clark álíka vinsæl, og „The
Beatles“ eru í dag.
Svo langar mig vinsamlegast
að biðja yður um að endursenda
mér þetta hefti. Með fyrirfram
þökk (fyrir leiðréttinguna).
Sigrún S Pretlove,
Oddeyrargötu 24,
Akureyri.
Nú fór illa, Sigrún mín. Ekki
var það meiningin aS níða æruna
af þessu fyrrverandi undrabarni,
og hefur vissulega klaufalega til
tekizt með orðavalið. Meiningin
var sú, að þótt Petula, sem nú
er rétt að verða 33 ára, hefði ver-
ið aðalskemmtikraftur heima-
hrepps síns þegar hún var sjö
ára, sungið með hljómsveit þeg-
ar hún var átta ára og komið
fram í 500 skemmtunum fyrir
hermenn, þegar hún var um
fermingu, síðan komið nokkrum
sinnum fram í kvikmyndum og
sjónvarpi í Bretlandi og verið
vinsæl þar fyrir hálfum öðrum
áratug — þrátt fyrir þetta allt
reka unglingarnir nú til dags upp
stór augu, þegar þeir eru spurðir
um Petulu Clark — nema þeir
viti að það var hún, sem söng
inn á plötuna „Down town“.
SITT AF HVERJU UM NÝJAN GARÐ.
Hr. ritstjóri.
Vikan er alveg ágætis blað,
svo framarlega sem þetta lítil-
ræði birtist í póstinum. Bezt er að
forðast allar vífilengjur og koma
að efninu krókalaust. Ég hef átt
heima við frægustu braut í land-
inu í rúmlega 15 ár og andspæn-
is mér blasir daglega eitt um-
deildasta tún í heiminum. Eins
og mörgum er kunnugt, eru þar
í áætlun og framkvæmd stór-
kostlegar breytingar og er ekki
nema allt gott um það að segja.
Það eru örugglega fáir, sem
sakna kofanna, sem var hrein-
lega klambrað saman. Eitt af
okkar ágætustu skáldum stend-
ur á túninu með hörpuna að baki
sér og sómir sér prýðilega. Og
fleiri listaverk eru í undirbún-
ingi. Enda þótt áætlun hafi ver-
ið gerð um hvern fermetra á
túninu „okkar“, væri ekki úr
vegi að stinga upp á einu og öðru,
sem þar mætti vera. Þetta eru þó
okkar peningar, sem notaðir eru
í þessar breytingar. Gaman væri,
ef við Reykvíkingar gætum stát-
að af einum „Hyde-Park-Corner“
fyrir halelújamenn (undirgöngin
höfum við). Áður sáum við
brennur við áramótin á túninu.
Það heyrir nú sögunni til. Hvern-
ig væri að koma upp þarna
tveimur eða fleirum úti-tennis-
völlum. Það verður að taka til-
lit til allra, hvort sem þeir eru
blómadýrkendur, halelújamenn,
fugavinir, barnapíur eða sport-
istar. Þeir eru glettilega margir
hérna í umhverfinu, sem eru á
mínu máli. Umbótasinni.
ÞÁTTUR „FEÐRANNA" í
UPPELDINU.
Kæra Vika.
Við hjónin eigum barn í skóla
í 7 ára bakk. Eigi alls fyrir löngu
var efnt til foreldrafundar, er
átti að hefjast kl. 9 að kveldi,
og einnig til sýningar á handa-
vinnu og föndri er börnin höfðu
afkastað yfir veturinn. Að sjálf-
sögðu fórum við hjónin og hugð-
um gott til. Er við mættum var
engu líkara en hér væri um kven-
félagsfund að ræða. Þarna var
mætt rúmlega 100 manns og ég
taldi 10 karlmenn í þessum hóp.
Satt að segja varð ég furðu lost-
in. Það getur margt borið til, svo
sem einstæðingsmæður, ekkjur
eða sjómannskonur, en tæplega
held ég að svo hafi verið um all-
ar þessar konur er þarna voru
mættar. Funartíma var þannig
hagað, að flestir eru hættir vinnu,
eða vinna karlmenn allan sólar-
0 VIKAN 25. tbl.