Vikan

Tölublað

Vikan - 24.06.1965, Blaðsíða 8

Vikan - 24.06.1965, Blaðsíða 8
Nú virðist loks komið að því að sögurnar um að Volkswagenverksmiðj- urnar séu að undirbúa nýja gerð bifreiða, séu á rökum reistar. Vestur- þýzka blaðið Zeitung segist hafa fengið áreiðanlegar upplýsingar um að Wolfburgverksmiðjurnar hafi loks ákveðið að endurnýja framleiðsluna til að hafa betri samkeppnismöguleika. Árangurinn er sagður vera laglegri, rúmbetri og tæknilega séð ný- tízkulegri VW með loftkældri 1300 kúbíkvél, sem framleiðir 40 DIN- hestöfl. Álitið er að aðalástæðan fyrir breytingunni sé að gefa meira geymslu- pláss í bílnum en 1200 og 1500 gerðirnar. Plássleysið í þeim hefur verið þeirra versti ókostur. Þessari nýju gerð, sem sagt er að verði framleidd í haust, verður fylgt með nýjum fólksbíl, sem á að koma í stað 1200. Jafn- vel 1500 mun verða breytt, — ný 70 hesta vél og diskahemlar. í upphafi árs 1964 sagði VW-yfirmaðurinn Heinz Nordhoff: „Á meðan ég verð kyrr sem forstjóri VW-verksmiðjanna, munum við halda áfram framleiðslu 1200 gerðarinnar". En sennilega verður Nordhoff bráðlega að tajca orð sín til baka. Samkeppin hefur aukizt, fyrst og fremst hjá Opel, þýzka Ford og brezkum smábílaframleiðendum. VW hefur 90 þúsund manns í þjónustu sinni, og er ennþá stærsta fyrir- tæki V-Þýzkalands og stærsta bílasmiðja Evrópu. í fyrra framleiddu þær 1,410.000 bíla, eða 200000 fleiri en 1963. Umsetningin jókst úr um 7 milljörðum Þ.marka í 8 milljarða. Af heildarframleiðslunni fóru 880.000 til útflutnings, þar af keypti U.S.A. 325.000, en Svíþjóð næstmest. Það leit helzt út fyrir, að Kim Novak hefði ákveðið í eitt skipti fyrir öll, að hún gæti fullvel komizt af án eiginmanns. Hún hafði byggt sér hús á afviknum stað úti við hafið og inn- réttað þar einskonar piparmeyjaríbúð með íburði, sem var líkt og hjá Forn-Rómverjum; allt í rauðum, dúnmjúkum sess- um og sóffum. En húsið hefur liklega verið einskonar gildra fyrir tilvonandi eiginmann, því hann ánetjaðist fljótlega á eft- ir. Meðan stóð á kvikmyndun „Ástarævintýris Molly Flanders" hitti hún enska leikarann Richard Johnson og sá kunningsskap- ur Ieiddi til hjónabands. Hjónavígslan fór fram úti undir ber- um himni og meira segja á snævi þakinni eyðimörk í Colorado. Og hveitibrauðsdögunum eyddu þau í frumstæðum bjálkakofa þar í grenndinni. Nýr Volkswagen Loks gekk Kim Novak út 0lUfSlH Lí'1'V* Þeir, sem hafa kynnt sér ummæli sérfræð- inga í erlendum tæknifímaritum, vita að við- tæki, magnarar, hátalarar, plötuspilarar og segulbandstæki frá BANG & OLUFSEN verk- smiðjunum í Struer í Danmörku, eru meðal þess allra vandaðasta sem fáanlegt er á heimsmarkaðnum. Nú er íslenzka sjónvarpið á næstu grösum. ATHUGIÐ að þið getið keypt B&O sjónvarps- viðtæki fyrir svipað verð og önnur miklu lélegri viðtæki. ATHUGIÐ að sökum hækkandi vinnulauna er- lendis, má búast við ca. 7% hækkun á við- tækjum í haust. ATHUGIÐ að þar sem sjávarselta fýkur á loftnetin er varla að búast við meira en 2 ára endingu á þeim. ATHUGIÐ að sumarið er bezti tíminn til þess að koma upp sjónvarpsloftnetum, og gera við gömul loftnet.. ATHUGIÐ að við höfum mikið úrval af sjón- varpsloftnetum, og önnumst uppsetningu þeirra ef óskað er. Við höfum mælitæki til að stilla stefnu þeirra og mæla styrkinn frá þeim. Viðtsbjavinnustofan loupegi 178 SÍMI 37674 g VIKAN 25. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.