Vikan - 24.06.1965, Síða 31
Bílctöldin gengur í gcirð.
Og nú vottar fyrir nýjum degi í
samgöngumálum íslendinga. Fyrsti
bíllinn á íslandi, bíll Thomsens
kaupmanns kemur til landsins 1904,
en það er fyrst áratug síðar, að
bílar fara að fá dálitla hagnýta
þýðingu. Tilkoma bílanna ýtir dá-
lítið undir vegabætur, en vegavinna
er enn unnin með mjög frumstæðum
tækjum. — 1914 er Eimskipafélag
íslands stofnað með almennri þátt-
töku þjóðarinnar. Fyrsta skip félags-
ins, Gullfoss, kemur til landsins ár-
ið eftir. Stórútgerð og iðnaður verða
til að auka mjög verzlunina, bæði
innanlands og við útlönd. Nýr
banki, íslandsbanki, tekur til starfa
1904. Árið 1917 er Verzlunarráð
Islands stofnað. Verzlunin er nú al-
gerlega komin á íslenzkar hendur.
í menningarmálum verða miklar
framfarir. Árið 1907 er komið á al-
mennri skólaskyldu fyrir börn á
aldrinum 10—14 ára. Kennaraskóli,
verzlunarskóli, iðnskólar og fleiri
sérskólar eru nú stofnaðir. Mikil-
vægust er þó stofnun Fláskóla ís-
ands 17. júní 1911. Ekki hefur
þjóðin þó efni á því að reisa sér-
staka háskólabyggingu, heldur
verður Háskólinn að vera til húsa
[ Alþingishúsinu í nærri þrjá ára-
tugi. — Blöðum fjölgar í landinu, og
stofnuð eru dagblöð, Vísir 1910,
Morgunblaðið 1913. Miklar fram-
farir verða í heilbrigðismálum þjóð-
arinnar. Baráttan gegn sullaveik-
inni ber nú góðan árangur, enda
eiga Islendingar nú einn fremsta
lækni heims í sullaveikilækningum,
Guðmund Magnússon prófessor.
Hvíti dauðinn, berklaveikin, verður
hins vegar enn mörgum manni að
bana. Á þessum árum taka til starfa
spítalarnir á Vífilsstöðum og Kleppi.
Enn er þó spítalaskortur í landinu,
og hugmyndinni um landsspítala
eykst fylgi-
Andatrú og ungmennafélög.
Nokkur ólga er í trúmálum þjóð-
arinnar. Eftir aldamótin tekur spírit-
isminn að breiðast nokkuð út, og
stendur um hann mikill styrr. Ýmsir
þjóðkunnir menn gerast forsvars-
menn spíritismans, Einar Hjörleifs-
son, Haraldur Níelsson og Björn
Jónsson ráðherra. En andatrúin á
þó einnig harðsnúna andstæðinga,
bæði meðal efnishyggjumanna og
kirkjunnar manna af gamla skól-
anum. Og innan kirkjunnar sjálfr-
ar magnast deilurnar milli nýguð-
fræðinga og fylgismanna hinnar
eldri rétttrúnaðarstefnu. Nýguð-
fræðin vinnur á í fyrstu lotu en að-
alforingi nýguðfræðinga er hinn
glæsilegi ræðuskörungur og guð-
fræðikennari Haraldur Níelsson
prófessor. K.F.U.M. hreyfingin eflist
undir forustu séra Friðriks Friðriks-
sonar æskulýðsleiðtogans mikla.
Mjög glaðnar yfir öllu félags-
lífi með þjóðinni. Ungmennafélög
þjóta upp, einkum f sveitum, en
einnig í kaupstöðum. Það fyrsta var
stofnað í Öxnadal aldamótaárið, en
það var þó Ungmennafélag Akur-
r
Við
yður m.a.
Vinnuföt
vinnufata
veljið YÐAR ge
íYÐAR númeri
kl
° yður!
fullkomnasta stærðakerfið
VÍR-L0N vinnufötin.
Þægileg, íslenzkt snið;
sterk, IIV2 oz. nælonstyrkt
nankin.
vír-twill.A
Smekkleg vinnuföt í hrein-
lega vinnu, þægileg sport-
og ferðaföt. Fást í fjórum
litum.
VÍR-vinnuföt
í þröngu amerísku sniði.
Efni frá U.S.A. Þykkasta
efni sem fáanlegt er á
heimsmarkaðinum. Hag-
kvæmast verð á fötum
sinnar tegundar
notið vinnuföt
sem klæða yður-
notið VíR vínnuföt
VIKAN 25. tbl.