Vikan - 26.08.1965, Side 32
BLAUPUNKT
BlLTÆKI
„Standard"
Festingar í
flestar tegundir
bifreiða.
FERÐATÆKI
með festingum í
bíla.
Einnig má setja
í samband
plötuspilara
eða segulband.
SENDUM GEGN PÓSTKRÖFU
með innbyggðum
plötuspilara fyrir
allar stærðir af
plötum - battery og
220 volt
6
mismunandi
tegundir ferða-
tækja með
bátabylgju.
FULLKOMIN VIÐGERÐAÞJÓNUSTA
RADIOVER S.F.
Skólavörðustíg 8 • Reykjavík • Sími 18525
II
>nuipna r>
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
it.- • .
legri.
Hrútsmerkið (21. marz — 20. april):
Þú þarít að taka á þig nokkra ábyrgð fyrir nokkra
félaga þina. Eldri persónur hlaupa undir bagga með
þér er mikið liggur við. Sýndu samferðamönnunum
meiri tillitssemi og reyndu að vera dálítið skemmti-
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Nú losnarðu bráðum við nærveru persónu er hef-
ur gert þér lífið leitt að undanförnu. Reyndu að
nota þér fjarveru hennar og koma þér vel fyrir,
svo til fleiri árekstra þúrfi ekki að koma út af sama
og ykkur bar á milli.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Maður er þú átt nokkur viðskipti við kemur fram
við þig á mjög drengilegan hátt, er vissir hlutir
ganga úrskeiðis fyrir þér. Þú ættir að leggja meiri
rækt við félaga þína og leita frétta af þeim.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Það eru margir sem álíta að þú svíkist um siðferðis-
legar skyldur þínar, en þú ert neyddur til að halda
striki þínu áfram enn um sinn. Þú færð skemmti-
lega heimsókn og góða hjálp frá nánum skyldmenn-
um þínum.
hólmi.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Vinir þinir taka sig saman og aðstoða þig við um-
fangsmikið verk. Vikan verður mjög skemmtileg.
Ýmsir verða til að ráðleggja þér að hætta við fyrir-
ætlanir þínar, en útlit er fyrir að þú berir sigur af
Meyjarmerlrið (24. ágúst — 23. septembcr):
Einhver verður til þess að hnupla frá þér hlut sem
þér er nokkuð annt um. Yfirmaður þinn er fremur
úrillur og viðskotsillur þessa dagana og skaltu láta
sem minnst fyrir þér fara, því smá mistök gætu
orðið að stórsynd.
Vogarmcrkið (24. september — 23. október):
Viðskipti sem þú hefur átt hluta í upp á síðkastið
valda þér vonbrigðum, og væri réttast fyrir þig að
losa þig úr þeim áður en það er of seint. Þú dvelur
liklega fjarri borginni um tíma.
Drekamerkið (24. októbcr — 22. nóvember).
Þú átt ánægjulegar samverustundir með félögum
þínum á kyrrlátum stað. Heppnin verður að mörgu
leyti með þér og þú nýtur lífsins i ríkum mæli.
Varastu að eiga of náin samskipti við amor. Heilla-
tölur eru 3 og 9.
Bogmannsmerkið 23. nóvember — 21. desember):
Þú verður mjög fljótur að ljúka af ákveðnum skyldu-
störfum þínum og getur þessvegna notað tíma þinn
til eigin þarfa. Vinur þinn reynist þér nokkuð tor-
ráðinn, en þú skalt ekki inna hann eftir neinu,
bara bíða.
Steingeitarmcrkið (22. desember — 20. janúar):
Þú ert nokkuð spenntur að vita um úrslitin í ákveðnu
máli og má segja að þau komi öllum á óvart. Náin
skyldmenni þín taka sér vafasamt athæfi fyrir hend-
ur. Þú dvelst um stund við sveitastörf.
Vatnsberamcrkið (21. janúar — 19. febrúar):
Þú ert grænn af öfund vegna tækifæris sem kunn-
ingjum þínum hlotnaðist um síðustu helgi. Með
góðu móti ættirðu að geta komið þér í svipaða að-
stöðu. Gamall kunningi þinn hjálpar þér við að
gera góð kaup.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Láttu engan vita um næstu fyrirætlun þína í sam-
bandi við starf þitt, því það eru margir sem gætu
hagnýtt sér hana og eyðilagt fyrir þér. Ýmislegt
gamalt og gleymt rifjast upp er þú endurnýjar
gamlan kunningsskap.
^2 VIKAN 34. tbl.