Vikan - 26.08.1965, Qupperneq 47
buxumar
rétt
Til þess þarf:
Straujárn, strauborð e3a bretti,
fatabursta eða pressuklump, þurr-
an og votan pressuklút.
Pressið fyrst efri hluta buxnanna, takið hliðarvasana út, svo að ekki verði far eftir þá. Leggið þurra klútinn næst
efninu og þann vota yfir. Haldið straujárninu fyrst létt að pressuklútnum, svo að gufan þrýstist vel ofan í efnið, en
aukið svo þunga járnsins. Sjá mynd 1.
Haldið áfram að flytja járnið fram og aftur á pressuklútnum, en rennið því ekki eftir klútnum. Þegar efri hlutinn er
búinn, á að reyna að ná hnénu úr, en það er oft erfiðast viðfangs. Einfaldast er að leggja buxurnar sléttar á strauborðið
með ,,hnéð“ upp, og reyna að ýta efninu saman, þar sem það er útvikkað. Sjá mynd 2.
Þar næst er þurri klúturinn lagður yfir hnéð og sá voti ofan á hann, en hann má ekki vera of þurrundinn. Haldið
járninu létt að pressuklútnum þar til engin gufa streymir lengur upp. Það þarf töluvert mikla gufu tii að efnið skreppi
saman aftur. Mynd 3.
Þá er gufan barin inn í efnið með sérstökum pressuklump, eða bakinu á fatabursta, ef það er nógu slétt, en hann
verður þá að vera ólakkaður. Mikilvægasta atriðið við pressun er að gufan þrýstist vel inn í efnið. Mynd 4.
Þegar hnéið hefur dregizt saman er skálmin lögð á strauborðið með innra sauminn upp. Fylgið nákvæmlega fyrra
brotinu og pressið eins og áður með tveim klútum, öðrum þurrum og hinum votum. Brotið framan á buxunum á að
reyna að færa saman, en ekki teygja með því að renna boltanum eftir því. Mynd 5.
Pressið bakbrotið á sama hátt, en þar má teygja á. Þegar skálmin er búin, á að rúlla því varlega saman. Snúið bux-
unum við og byrjið á hinni skálminni á sama hátt. Hengið buxurnar á buxnahengi (klemma neðst á skálmarnar) og lát-
ið þær kólna og þorna mjög vel áður en farið er í þær.
Efni: Um 850 gr. af fremur grófu ullar-
garni. (Natlé Royal eða Beehive Doubleknitt-
ing).
Langir prjónar nr. 4 og 7.
Prjónið það þétt að 13. I. og 16 umf.
prjónaðar með munstri á prj. nr. 7, mæli
10x10 sm. Standist þessi hlutföll má prjóna
eftir uppskriftinni óbreyttri, annars verður að
breyta prjóna — eða garngrófleika þar til
rétt hlutföll nást. Einnig má breyta lykkju-
fjölda.
Munstur: 1. umf.: og allar oddatöluumf.
prj. brugðnar. 2. umf.: 1 I. sl. * bregðið garn-
inu um prjóninn, 3 I. sl. takið síðan 1. I. af
þessum 3 I. og steypið henni yfir 2 sl. lykkj-
urnar sem eftir eru. * Endurtakið frá * til *
umferðina á enda. 4. umf.: * bregðið garn-
inu um prjóninn, 3 I. sl., takið 1 I. af þessum
3 og steypið yfir hinar 2 *. Endurtakið frá *
til * umferðina á enda og endið með 1 I. sl.
6. umf.: 2 I. sl., * bregðið garninu um prjón-
inn, 3 I. sl., steypið síðan 1 1. af 3 lykkjun-
um yfir 2 sem eftir eru. * Endurtakið frá *
til * umf. á enda og endið með að bregða
garninu um prjóninn og prj. 2 I. saman.
Endurtakið síðan þessar 6 umf. og myndið
með þeim munstrið.
Framstykki: Fitjið upp 73 I. á prjóna nr.
4 og prjónið stuðlaprjón, 1 I. sl. og 1 I. br.
3 sm. Takið þá prjóna nr. 7 og prjónið
munstur. Prj. þar til stk. mælir um 38 sm.
Fellið þá af fyrir handvegum 3, 2, 2 .1 báð-
um megin. Prj. áfr. þar til stk. mælir 52 sm.
Fellið þá af 15 miðlykkjurnar fyrir hálsi og
prj. aðra hliðina fyrst og fellið af hálsmáls-
Framhald á bls. 49.
VIKAN 34. tbl.