Vikan - 23.06.1966, Side 6
AVON VEKUR
FEGURÐINA
AF DVALA
ALLA ÞÁ FEGURÐ, SEM ÞÉR VISSUÐ
AÐ ÞÉR ÁTTUÐ.
VILL SKRIFA GRÆNLENDINGI.
Kæra Vika!
Nú er skólinn brátt búinn hér
og nú langar mig til að mér verði
sent blaðið heim, að: Arkarlæk,
Skilmannahrepp, Borg, eða bara
við Akranes.
Svo vil ég þakka allt skemmti-
lega efnið, sem Vikan hefur flutt
í vetur. Ég hef ekki orðið fyrir
vonbrigðum með hana heldur
þvert á móti og það má bókstaf-
lega segja að blöðin hafi verið
upp lesin hjá mér í vetur.
Mig langar að spyrja hvort ég
muni ekki geta skrifazt á við
Grænlending og hvort þið getið
bent mér á nokkur blöð á Norð-
urlöndunum sem ég get óskað
eftir bréfaviðskiptum í?
Með fyrirfram þökk og hjart-
ans þakklæti fyrir allt gamalt
efni.
Yðar áskrifandi
Ingibjörg Guðjónsdóttir,
Reykholti, Borg.
Við svöruðum fyrir skömmu öðru
bréfi, þar sem óskað var eftir
heimilisföngum Norðurlanda-
blaða, sem hægt væri að óska
eftir bréfaviðskiptum í, og vís-
um við þér hér með á upplýs-
ingarnar, sem þar er að finna. —
í Grænlandi mun aðeins gefið
út eitt blað, Grönlandsposten, og
gætir þú reynt að láta það verða
þér úti um grænlenskan bréfa-
vin. í því sambandi er bezt fyr-
ir þig að skrifa: Journalist Helge
Christensen, Baneledet 19, Vir-
um, Köbenhavn, Danmark.
bil yrði milli bíla eða einhver
gefi manni sjensinn. Ef mótor-
hjólagæjarnir væru meira á ferð-
inni, gengi þetta snurðulausar og
betur, og færri geðvonzku um-
ferðaróhöpp hlytust af.
Með fyrirfram þökk
R 20001.
Ekki er mér kunnugt um, hvern-
ig lögregluþjónar haga mataræði
sínu, og þráfaldlega hef ég séð
þá á mótorhjólum í matartímun-
um. Hitt er svo satt og rétt, að
þeir mættu gjarnan vera meira
á umræddum slóðum, og er því
hér með komið á framfæri.
OFANÍGJÖF EÐA EKKI.
Kæra Vika!
Þið voruð nýlega með viðtal
við Sverri Haraldsson, listmál-
ara, líflega og skemmtilega skrif-
að. Mér þykir ævinlega gaman að
lesa svona frásagnir, þar sem
sagt er rétt og hlutlaust frá hlut-
unum, án þess að vera með ein-
hverja teprulega viðkvæmni af
ótta við að særa einhvern, t.d.
þann sem greinin er um. Svona
eiga greinar að vera skrifaðar,
létt og hressilega og gjarnan með
ofanígjöf um leið.
Þökk fyrir
Jóhann B.
Við vonum, að enginn hafi særzt
alvarlega af greininni, en við get-
um ekki fundið í henni neina
ofanígjöf. Hvar var hún?
Hulin fegurð, sem þér vissuð að þér áttuð, kemur í
Ijós við snertingu Avon. Blómstrar við snertingu
Avon makeup. Springur út við hlýju hinna nýju
varalita og naglalakka.... Og svo að lokum gerir
Avon augna makeup fegurð yðar fullkomna. Það
geta allir séð. Það þarf Avon töfra til að fegurðin líti
dagsins Ijós.
Avon
'W' london cosmetics NEWY0RK
MATARTÍMI UMFERÐARLÖGREGL-
UNNAR.
Póstur minn góður!
Mig langar að koma á fram-
færi þeirri spurningu, hvort um-
ferðarlögreglan geti ekki étið t.d.
milli 13.30 og 14.30, í stað þess
að taka sér matmálstíma milli
12 og 13 eins og allur þorri manna
gerir. Ég spyr vegna þess, að á
matmálstímanum er varla hægt
að komast inn á, og þaðan af
síður yfir, helztu samgönguæð-
arnar í miðbænum og að honum,
fyrir órofnum bílastraum. Mig
langar að biðja blessaða lögregl-
una að vera meira á kreiki, t.d.
eftir Laugavegi og Hverfisgötu,
og huga að umferðinni af hliðar-
götunum. Ég hef hvað eftir ann-
að orðið fyrir því að þurfa að
bíða í allt að kortér, eftir því að
BOXARATRÚARBRÖGÐ.
Kæri Póstur!
Ég hef sumsstaðar séð minnzt
á trúarhreyfingu, sem kölluð er
Black Muslims, eða Svartir Mú-
hameðstrúarmenn, sem hnefa-
leikarinn Cassius Clay tilheyrir.
Getur þú sagt mér, hver eru að-
aleinkenni þessa trúarflokks?
Black Muslims telja sig Múham-
eðstrúarmenn, eins og nafn þeirra
bendir til, en Múhameðstrúar-
menn annarsstaðar vilja þó helzt
ekki viðurkenna þá í sínum
hópi, þar eð þeir ala á kynþátt-
ardýrkun, sem Múhameðstrúar-
menn fordæma. Black Muslims
líta svo á, að negrar séu öllum
kynþáttum betur búnir að and-
legum og líkamlegum hæfilcik-
um. Þeir segja að hvítir menn
0 VIKAN 25. tbl.