Vikan - 23.06.1966, Qupperneq 7
iÓSTURINN
séu djöflar, sem svartur vísinda-
maður hafi ræktað á tilrauna-
stofu sinni endur fyltr löngu.
Þeir vilja algeran aðskilnað kyn-
þáttanna og eru að því leyti á
sama máli og hvítir öfgamenn í
Suðurríkjunum. Sjálfir segjast
þeir hafa mikið fylgi meðal
bandarískra negra, en flestir telja
þó, að öruggir fylgismenn þeirra
skipti aðeins nokkrum þúsund-
um. — Sem sagt, þessi trúarbrögð
eru Iíklega lieldur lítið uppbyggj-
andi, en þau henta boxurum
sjálfsagt vel.
Freyjugötu. Lágmarksaldur mun
vera sextán ár. Ilöfundarlaun
þau, sem rithöfundar fá hjá út-
gefendum, eru mjög mishá, svo
erfitt er að svara þeirri spurn-
ingu til hlítar. Við gerum ráð
fyrir, að rithöfundar, sem gefa
út sína fyrstu bók, fari undan-
tekningarlítið — eða laust í
lægsta flokk listamannalauna, og
mega víst þakka fyrir ef þeir
komast svo hátt. Skriftin er dá-
lítið óregluleg. Tillaga þín um
framhaldssögurnar er mjög lofs-
verð og skaltu hafa þökk fyrir.
MENNINGARLEGAR FRAMHALDS-
SÖGUR.
Kæri Póstur!
Viltu vera svo góður að svara
þessum fjórum spurningum fyrir
mig.
1. Hvaðan fó myndhöggvarar
leirinn, sem þeir móta myndir
sínar í. Hvað kostar kílóið eða
hver skammtur?
2. Ég hef mikinn áhuga á að
læra eitthvað í málaralist og
myndhöggvaralist og aðra list-
sköpun. Er Handíða- og mynd-
listarskólinn eini skólinn hérna í
Reykjavík, sem kennir listsköp-
un? Eru einhver aldurstakmörk?
3. Hvað fá rithöfundar yfirleitt
í höfundarlaun hjá útgefendum?
Fara höfundar undartekningar-
laust í lægsta flokk listamanna-
launa þegar þeir gefa út sína
fyrstu bók?
4. Hvernig er skriftin?
Með þökk, Jón Jónsson, Jóms-
víkingur.
P.S. Ég geri það að tillögu minni,
að Vikan birti framvegis, sem
framhaldssögu nr. 2, sögur eftir
John Steinbeck, Graham Greene,
Heinrick Böll, Gúnther Grass,
Per Lagerkvist og Ernest Hem-
ingway og birti fyrstu söguna,
þegar Modesty Blaise er lokið.
Það yrði kannske til þess að ís-
lendingar færu að meta betri
bókmenntir, en hinar svokölluðu
kerlingabækur.
Jón Jónsson, Jómsvíkingur.
Svarið við fyrstu spurningunni
getur þú scnnilega fengið í Verzl-
uninni Málaranum i Bankastræti,
eða þá með því að hafa samband
við einhvern myndhöggvarann.
Myndlistarskólar í Reykjavík eru
tveir: Handíða- og Myndlistar-
skólinn og Myndlistarskólinn við
NIÐUR MEÐ VIETKONG.
Kæra Vika!
Beztu þakkir fyrir greinaflokk-
inn um heilaþvottinn í Kína. Það
er engu líkara en að menn séu
farnir að gleyma hvernig þessir
kommúnistar eru, liklega af því
að það fer orðið svo lítið fyrir
þeim í Evrópu. Greinin um heila-
þvottinn er ágæt upprifjun ó því
hvernig þeirra rétta andlit er.
Mér ofbýður, þegar ég heyri vel
greinda og menntaða menn tala
um þessa Víetkongmorðingjaeins
og einhverjar frelsishetjur.
Kannski nazistarnir í Austurríki
og Súdetahéruðunum, sem Hitler
lét stofna til illinda til að búa
þar í haginn fyrir sig, hafi þá
verið frelsishetjur líka?
Með alúðarkveðjum
R.M., Kópavogi.
fær Isfirðingur fyrir eftirfarandi:
Vestfirðingur einn, sem er mikils
mctinn samvinnufrömuður í sín-
um bæ, var eitt sinn á ferðalagi
á jeppa sínum og kom þá við á
greiðasölustað einum til að taka
bensín. Sem góðum samvinnu-
manni sómdi, spurði hann af-
greiðslumanninn, hvort þar væri
tankur frá Esso. Afgreiðslumað-
urinn svaraði því neitandi; þeir
hcfðu aðeins tank frá Shell.
,.Frá Shell“! hrópaði komu-
maður hneykslaður. „Nei, þá ek
ég lieldur bensínlaus“!
Fyrsta fflokks ffrá FÖNIX:
KÆUSKÁPAR - FRYSTISKÁPAR - FRYSTIKISTUR
KÆLING er aðferðin, þcgar geyma á matvæli stuttan
tíma. Þetta vita allir og enginn vill vera in kæliskáps.
FRYSTING, þ. e. djúpfrysting við a. m. k. 18 stiga frost,
er auðveldasta og bezta aðferðin, þegar geyma á inat-
væli langan tíma. Æ fleiri gera sér ljós þægindin við
að eiga frysti: fjölbreyttari, ódýrari og betri mat, mögu-
leikana á því að búa \ haginn með matargerð og bakstrl
fram í tímann, færri spor og skemmri tima tii innkaupa
— því að „ég á það i frystinum".
Við bjóðum yður 5 stærðir ATLAS kæliskápa, 80—
180 cm háa. Allir, nema sá minnsti, hafa djúpfrysti-
hólf, þrir með hinni snjöllu „3ja þrepa froststillingu",
sem gcrir það mögulcgt að halda miklu frosti í
frystihólfinu, án þcss að frjósi neðantil i skápnum;
cn cinum cr skipt i tvo hluta, sem hvor hefur sjálf-
stæða ytri hurð, kæli að ofan mcð sér kuldastillingu
og alsjálfvlrka þiðingu, en frysti að neðan mcð elgin
froststillingu.
Ennfrcmur getið þér valið um 3 stærðir ATLAS frystikista
og 2 stærðir ATLAS frystiskápa
Loks má nefna hina glæsilegu ATLAS viðar-kæliskápa i
herbergi og stofur. Þér getið valið um viðartegundir og
2 stærðir, með eða án vínskáps.
MuniS ATLAS einkennin:
☆ Glæsilegt og stílhreint, nýtízku útlit.
☆ Fullkomin nýting geymslurýmisins með vand-
aðri markvissri innréttingu.
☆ Innbyggingarmöguleikar með sérstökum Atl-
asbúnaði.
■ír Sambyggingarmöguleikar (kæliskópur ofan ó
frystiskáp), þegar gólfrými er Ktið.
☆ Færanleg hurð fyrir hægri eða vinstri opnun.
☆ Flljóð, létt og þétt segullæsing og möguleikar
á fótopnun.
•h 5 ára ábyrgð á kerfi og traust þjónusta.
• •
Um allt þetta fáið þér frekari upplýs-
ingar, með því að koma og skoða,
skrifa eða útfylla úrklippuna, og mun-
um við leggja okkur fram um góða af-
greiðslu. — Sendum um allt land. SÍMI 24420. SUÐURGATA 10. RVlK.
Sendið undirrit. ATLAS myndalista og nákvæmar upplýsingar. m.a. um verð
og greiðsluskilmála.
Nafn:..........................................................................
Heimilisfang: .................................................................
Til FÖNIX s.f., pósthólf 1421, Reykjavik.
VIKAN 25. tbl. rj