Vikan - 23.06.1966, Page 8
SILUNGAFLUGUR - LAXAFLUGUR
SPÆNIR - ÖNGLAR - VEIÐI-
HATTAR - VEIÐIGALLAR - VEIÐI-
STÍGVÉL - VÖÐLUR -
þykkar og þunnar.
VESTURRSÖT
GARDASTRÆTI.
svefnpokinn er fisléttur og hlýr. Pokanum fylgir koddi, sem festur
er viff hann meff rennilás. Pokanum má meff einu handtaki hreyta
í sæng. Auk þess er auffvelt aff reima tvo poka saman (meff renni-
lás) og gera aff einum tveggja manna. — Fariff ekki í útilegu án
dralon-svefnpoka frá Gefjun.
KADETT
FASTBACK
iílaDPófun
Vikmar
Þetta er lítill bíll og laglegur,
að því undanskildu, að ég er ekki
hrifinn af fastbökum. Ég álít, að
það byggingarlag, að minnsta
kosti í þeirri mynd sem algeng-
ust er nú, sé stundarfyrirbrigði
og þyki áður en langt um líður
gamaldags og ekki fallegt. En
það skiptir ekki öllu máli, Kad-
ett er fáanlegur í fleiri útgáf-
um, svo þar geta flestir fundið
þá gerð, sem smekkurinn krefst.
Hins vegar verð ég einnig að
gera þá játningu, að kókflösku-
lagið á venjulegu tveggja dyra
gerðinni fellur mér heldur ekki
alls kostar í geð; það er strax
betra á fjögra dyra bíinum. Og
þá' eru ekki eftir nema tvær
týpur af stationbíl, —■ Caravan
— og af þeim þykir mér ekki
nógu falleg sú krómlistalausa.
Ergo: Ef ég væri að kaupa mér
Kadett, myndi ég að útliti til
ekki vilja nema de Luxe út-
gáfuna af Caravan, eða kann-
ski fjögra dyra bílinn.
Svona eru sumir sérvitrir.
Saga Kadettsins er að sumu
leyti fróðleg. Bíll með þessu heiti
var fyrst framleiddur fyrir stríð,
og var töluvert vinsæll. Svo
bundu stríðsöflin enda á fram-
leiðslu hans, og þegar Þjóðverj-
ar höfðu giftusamlega tapað
gönuhlaupi Hitlers sáluga, höfðu
Rússar heim með sér stansana
að Kadettinum. Þeir notuðu þá
síðan sem aðaluppistöðu í bíl,
sem þeir kölluðu Moskvits, og
þess vegna voru gömlu Moskvits-
arnir, þeir fyrstu, sem komu
hingað, nákvæmlega eins og
Kadettinn framan frá og aftur
fyrir fremri hurðir. Og þar fyrir
aftan nauðalíkur.
En í Þýzkalandi var ekki tek-
ið til við Kadettinn að nýju fyrr
en krafan um lítinn, lipran bíl
í 1000 ccm flokkinum tók að
gerast hávær upp úr 1960. Þá
var búinn til lítill og laglegur
bíll, teiknaður samkvæmt kröf-
um samtímans, og hlaut þetta
gamalkunna nafn. Mikið af þess-
um bílum hefur sézt hér á göt-
unum. Eins og ævinlega, þegar
nýr bíll kemur fram, þjáðist
hann af nokkrum barnasjúkdóm-
um, og Kadettinn fékk hér slæmt
orð á sig, einkum fyrir óbeinan
tilverknað bílaleigu, þar sem
tvennt fór saman: Ekki var
hugsað um bílana eins og til
var ætlazt, og þar að auki hlutu
þeir öðru jöfnu fruntalega með-
ferð leigutaka, meðferð, sem í
g VIKAN 25. tbl.