Vikan - 23.06.1966, Blaðsíða 9
rauninni hefði engum farar-
tækjum sæmt öðrum en dráttar-
vélum. Hins vegar hef ég engan
Kadetteiganda hitt, sem ekki
hefur verið ánægður með Kad-
ettinn sinn, og víst er, að marg-
ir þeirra hafa verið ófeimnir við
endurnýja af sömu tegund, nú
þegar ný útgáfa kemur á mark-
aðinn.
Tvennt fannst mér einstak-
lega gott á Kadettinum, sem ég
prófaði: Stýringin og gírskipt-
ingin. Stýrið er mjög létt og ná-
kvæmt, eitthvert það minnst
„dobblaða", sem ég man eftir.
Þó fannst mér, að hann ætti
að geta lagt meira á, tekið
þrengri hring; það gerir ekki
betur en hægt sé að fara í
hring á venjulegum, þríbreiðum
vegi. En í öllum akstri, bæði
innan bæjar og utan, er leikur
einn að hafa fulla stjórn á bíln-
um með einum eða tveimur
fingrum annarrar handar. Stýr-
ishjólið liggur líka mjög vel við,
og ökustelling er þægileg.
Gírkassinn er fjórskiptur,
venjuleg H-skipting, með fyrsta
efst til vinstri. Allir gírar áfram
samhæfðir, og samhæfingin góð. -
Fastbakurinn er með sportskipt-
ingu, sem er fáanleg auka á hin-
ar gerðirnar, stutt stöng, sem
fer vel í hendi, og skiptingar
sérlega léttar og nákvæmar. Að-
eins gæti ég trúað, að þvældist
fyrir kvenfólki að finna afturá-
bak gírinn; þá þarf að lyfta
stönginni og setja hana í lyftri
stöðu fram vinstra megin við
fyrsta gír. Á hraðamælinum eru
mismunandi litlir reitir og merk-
ingar við, til að sýna heppilega
og leyfilega notkun gíranna, og
það er enn til að auka ánægj-
una.
Lega fótstiga — kúplingar,
bremsu og bensíngjafar, — er
ágæt. Bremsurnar eiga hól skil-
ið; eru léttar og vinna vel, jafn-
vel þótt fruntalega hafi verið
ekið um þjóðvegi ataða leðju,
miskunnarlaust ofan í polla og
yfir hvörf. Þetta eru venjuleg-
ar skálabremsur, en ég gat ekki
annað fundið en þær stæðu sig
prýðilega, jafnvel í samanburði
við sumar samstillingar diska og
skála, sem ég hef reynt.
Ég var ekki alveg eins ánægð-
ur með kúplinguna; fannst hún
Framhald á bls. 37.
í
... það nýjasta
á gólfið kemur frá
Krommenie
Linoleum, gólfflísar og vinylgólfdúk-
ur með áföstu korki eða fílti allt hol-
lenzkar gæðavörur frá stærstu fram-
leiðendum Evrópu á þessu sviði.
Fyrirliggjandi í miklu litaúrvali.
MÁLARINN
Bankastræti 7 — Sími 22866.
VIKAN 25. tbl. 0