Vikan - 23.06.1966, Page 14
Nancy, Ijónín
og stígvélin
Þegar lagið „These Boots Are Made For Walking"
tók að heyrast í Englandi, sungið af Nancy Sin-
atra, var Steve Winwood, söngvari hljómsveit-
arinnar Spencer Davis Group, spurður ólits á
því.
Hann sagði
— Annað hvort er það hún, sem er hörmung
— eða þá hliómsveitin. Eg er viss um, að þau
gera öll sitt bezta til að gera lagið lélegt.
En það átti eftir að koma á daginn, að ung-
lingarnir voru ekki alveg á sama máli. Þetta sér-
kennilega og áheyrilega lag komst þegar í 23.
sæti vinsældalistans, og áður en langt um leið,
var það komið í efsta sæti. Eins og nærri má
geta, varð mikið um dýrðir hjá Sinatra fjölskyld-
unni, en hér við bættist, að sonurinn, Frank Sin-
atra, yngri, sendi um þessar mundir frá sér
fyrstu hæggengu hljómplötu sína ag gamli mað-
urinn sendi frá sér hvorki meira né minna en
þrjár hljómplötur, tvær hæggengar og eina
tveggja laga með laginu „It Was A Very Good
Year".
Framhald á bls. 49.
Hann
sló I gegn
„Á s|ó“
I árslok 1964 komst
nokkuð óvenjulegt lag
ofarlega á vinsælda-
iistann í Bretlandi. Það
var lagið „Walk Tall"
sungið af Val Dooni-
can. Lagið var í kú-
rekastíl, sungið djúpri
og fallegri bassaröddu
og stakk óneitanlega
í stúf við önnur lög,
sem um þær mundir
voru á vinsældalistan-
um.
Val Doonican, sem
er 36 ára að aldri,
þykir hafa svipaða
rödd og Jim heitinn
Reeves. Hann hefur
sungið í fjölda ára en
vakti fyrst verulega
athygli, er hann söng
Walk Tall.
Þrátt fyrir vinsældir
þessa lags erlendis
heyrðist það lítið hér
á landi og sennilega
væri það nú með öllu
gleymt, ef Hljómsveit
Ingimars Eydals hefði
ekki vakið það til llfs-
ins. Eða öllu heldur
Ólafur Ragnarsson.
Það var Ólafur, sem
samdi hinn ágæta
texta við lagið sem
hann kallaði „A sjó".
Víst má telja, að text-
inn hafi átt drjúgan
þátt í þeim dæmafáu
vinsældum, sem lagið
hefur átt að fagna.
Ólafur er ungur Sigl-
firðingur, — hann nam
Framhald á bls. 36.
Kynnti
vinsælustu
lögin
Ilér birtum við mynd af vinsælli útvarpskonu, Ragn-
heiði Heiðreksdóttur. Eins og kunnugt er, sá hún
um þáttinn „Fónninn gengur“ s.l. vetur og kynnti
þar vinsælustu lögin fyrir unga fólkið. Ragnheiður
hefur líka séð um „Lög unga fólksins'í og um skeið
átti hún hlut að þættinum „Með ungu fólki“. Ragn-
heiður hefur starfað sem flugfreyja hjá Loftleiðum
í vetur og hyggst halda því áfram í sumar. Hún er
stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri en hefur
að auki numið við stúdentadeild Kennaraskólans
og heimspekideild Háskóla íslands, þar sem hún las
frönsku. Hvernig músik kann hún bezt að meta?
„Alla fallega músik“, segir hún, „einkanlega verk
gömlu meistarana, Brahms og Beethovens — og
svo finnst mér alltaf gaman að djassmúsik“. Ragn-
heiður er ættuð frá Akureyri og er af skáldaættum.
Faðir hennar er Heiðrekur Guðmundsson Friðjóns-
sonar frá Sandi.
Allt er hey í
harðindum'*,
sagði karlinn forðum.
Þetta datt okkur líka
í hug, þegar við hlýdd-
jm á hina nýju hljóm-
plötu Lúdó sextetts.
Platan hefur að geyma
fjögur lög, og eru þrjú
þeirra erlend og hafa
notið vinsælda hér í
sinni upprunalegu
mynd. Nú er spurning-
in sú, hvort íslenzkir
textar geta vakið ný-
sálaða drauga til lífs-
ins á ný. Okkur finnst
það ósennilegt.
Fjórða lagið er fs-
lenzkt, Laus og liðug-
ur eftir Jónatan Ólafs-
son, og það er einmitt
þetta lag, sem vekur
mesta gleði og gefur
plötunni gildi. Að vísu
kemur þetta lag kunn-
uglega fyrir eyru, en
útsetning Jóns Sigurðs-
sonar á laginu er svo
dæmalaust skemmti-
leg, að það hlýtur að
eiga langa lífdaga fyr-
ir höndum. Það er at-
hyglis vert, að Stefán
Jónsson hefur tamið
sér harðan framburð
(sem líkist hinum norð-
lenzka), er hann syng-
ur þetta lag. Sannleik-
urinn er sá, að skýr
textaframburður er
mjög mikilvægur og er
eins gott að söngvar-
ar geri sér grein fyr-
ir því.
Stefán er í essinu
sínu, er hann syngur
um Sigurð sjómann og
nýtur enda góðrar að-
stoðar Lúdóanna í spili
og söng. Þetta er lag
:yrir unglinga og eldri
unglinga!
Lúdó hefur bætzt
góður liðsauki þar
sem Þuríður Sigurðar-
dóttir er. Skelfing hlýt-
ur hún annars að vera
þroskaður unglingur
ef hún er aðeins 16
ára! Röddin er einkar
þægileg áheyrnar, og
það er greinilegt að
stúlkan er mjög músi-
kölsk. Hins vegar gef-
ur lagið, sem hún
syngur ásamt Stefáni,
Elskaðu mig, ekki til-
efni til verulegra til-
þrifa. Þetta er hrein
og klár klisja af laginu
Baby, don't go, sem
hjúin Sonny og Cher
sungu á sínum tíma og
aldrei naut neinna til-
takanlegra vinsælda.
Vonandi fær Þuríður
að spreyta sig á öðru
og betra lagi innan
tíðar.
Lagið „Er nokkuð
eðlilegra" er öllu ris-
meira, en þetta lag
söng Tom Jones á sín-
um tíma undir heitinu
It's not Unusual. Til
þess að geta gert
þessu lagi viðunandi
skil, þarf talsvert radd-
svið og það verður
raunar ekki af Stefáni
skafið, að honum tekst
glíman vel framan af,
en þegar kemur að
finale — lokaþættinum
— á hann í erfiðleik-
um með að hitta á
efstu nóturnar.
Vafamál er, hvort
lagið „Ég bíð einn"
fellur í kramið hjá
unglingunum. Þetta er
Framhald á bls. 49.
VIKAN 25. tbl.
ÍDl
I
issaiítirif
tjí
Hvert er hlutverk bassans í hljóm-
sveitinni? Við höfum óður fengið
svar við samskonar spurningu varð-
andi sóló- og rhythmagítar. Bass-
inn er mjög mikilvægt hljóðfæri í
hverri hljómsveit og hér fó byrjend-
ur í bassaleik athyglisverð heilræði
fró þeim bassaleikurum, sem þykja
skara fram úr í brezkum hljóm-
sveitum.
PAUL
McCARTNEY
BEATLES
Hvernig á að leika á bassagítar?
Kauptu þér hljóðfæri, lærðu að
stilla það, lærðu að leika á það
og þú ert fær í flestan sjó! Auð-
velt! Ja, ekki alveg svo, kannski.
Mitt hlutverk er að leika góða bassa
kafla og ekki of mikið af slíku. í
hreinskilni sagt veit ég ekki nógu
mikið um músik til þess að geta
skilgreint það nákvæmlega. Yfir-
leitt reyni ég að spila nokkurn veg-
inn það sama og Ringo spilar á
bassatrommuna — en það fer ekki
alltaf saman! Eg get ekki lesið nót-
ur, og ef ég ætti að svara hvort
slíkt væri nauðsynlegt, mundi ég
segja bæði já og nei. Það eru til
miklu betri bassaleikarar en ég,
sem geta lesið nótur og miklu betri
bassaleikarar en ég, sem geta það
ekki. Það er öldungis ómögulegt
að setja fastar reglur hvað það
snertir. Það fer algerlega eftir þv(,
hvað þig langar til að leika ....
Hið mikilvægasta við bassagítar-
námið er að læra að meta, hvenær
maður á að spila með og hvenær
ekki. Þeir eru margir, sem reyna
að leika sóló á bassagítar. En það
er bara ekki hlutverk hljóðfæris-
ins.
BILL
WYMAN
ROLLING
STONES
Hlutverk mitt hjá Rollingunum er í
fáum orðum sem hér segir: Að sjá
um fastan rhythma fyrir hina, á-
samt trommum Charlie Watts. Að
gefa Brian og Keith stöðugan og
fastan rhythma þannig að þegar
þeir eru ekki með í spilinu eitt and-
artak sé undirstöðurhythminn gegn-
um gangandi. Bassagítarleikarinn
verður að geta lagað spil sitt eftir
trommunum. Haltu áfram að spila
og gættu þess að verða ekki á eft-
ir. Ég held að enginn leggi út á
þá braut að verða góður bassagít-
arleikari. Allir byrja á því að læra
á gítar, en komast svo að raun um,
að það er mest eftirspurn eftir
bassagítarleikurum. Mér þykir Iíka
gaman að leika á píanó, en ég
fæ sjaldan tækifæri til þess. Eitt
hið erfiðasta við að læra og æfa
er, að það er ekki hægt að æfa
hvar sem er með magnara. Þess
vegna verður þú að æfa þig á
venjulegan konsertgítar og ímynda
þér, að þú sért að spila á bassa.
Mjög erfitt! Gangi þér vel!
Gættu þess, að bassagangurinn
verði ekki of flókinn. Reyndu ekki
að leika það sama á bassann og
leikið er á gítarinn, sem er mikil-
vægasta hljóðfærið. Bassinn á ekki
að skera sig úr. Spilaðu á sem ein-
faldastan hátt og alltaf stöðugt. [
hljómsveit eins og The Searchers
er bassinn mjög mikilvægt hljóð-
færi, því að þar eru tvö hljóðfæri,
sem sjá um rhythmann — bassa-
gítarinn og trommurnar. Hin hljóð-
færin verða að treysta á okkur
hvað það snertir. Ef okkur tekst
ekki að ná rhythmanum, verður út-
koman ekkert annað en hrærigraut-
ur. Bassinn er mjög mikilvægt hljóð-
færi, en fáðu aldrei þá flugu í koll-
inn að hann sé sólóhljóðfæri.
Ég held að hverjum bassaleikara
finnist það stundum óttalega eymd-
arlegt að sitja bara og toga (
strengi — búmm, búmm, búmm! En
ef betur er að gáð, býr bassinn
yfir miklum möguleikum. í sumum
lögum spila ég hraða kafla og það
er oft hægur vandi að finna mögu-
leika á skemmtilegum bassagangi.
Aður en ég sneri mér að bassan-
um, lék ég á gítar, og ég er sann-
færður um, að það hefur hjálpað
mér mikið. En maður verður að
styðja miklu fastar á bassastreng-
ina, og það þarf mikla æfingu til
að geta spilað hratt. Ef maður er
sífellt að skipta um bassa og gítar,
nær maður aldrei langt á hvorugt
hljóðfærið. Ég æfi mig ekki eins
mikið núna og ég var vanur, en
ég keypti mér nýlega kennslubók
í bassaleik. Ég get lesið nótur, en
það kemur ekki að gagni í þess-
ari tegund tónlistar. Þegar ég æfði
mig var ég vanur að notast við
kontrabassa, þv! að það er svo
erfitt að finna stað, þar sem hægt
er að æfa með magnara. í hljóm-
sveit eins og okkar er bassinn mjög
áberandi hljóðfæri og stundum
jafnvel hið hávaðasamasta.
ERICHH
haydockFt]
HOLLIES
Til að byrja með skaltu vera reiðu-
búinn að eyða álitlegri peninga-
upphæð til þess að kaupa gott
hljóðfæri og einnig ódýran kontra-
bassa til þess að þú getir strax
byrjað að æfa þig. Þeir eru margir,
sem kaupa rafmagnsbassa, fara
með hann heim og komast skyndi-
lega að raun um það, að það vant-
ar magnara. Hið eina, sem þeir
hafa í höndunum er fjöl! Ég á stór-
an kontrabassa heima, sem ég æfi
mig á. Hann kostaði mig aðeins
20 pund (um 2.500 ísl. krónur). (
hljómsveitinni nota ég rafmagns-
bassa. Tilsögn? Það fer eftir því,
hvernig músik þú ætlar að leika.
Ef þú ætlar að spila rokk og ról
græðirðu ekki mikið á tilsögn. En
ef þú ætlar að leggja músikina
fyrir þig, þarftu auðvitað að læra
allt í sambandi við hana. Eitt skaltu
hafa í huga ( sambandi við bassa-
leikinn: Þú getur alltaf skrúfað
styrkinn á magnaranum NIÐUR.
Það eru svo margir, sem spila svo
Framhald á bls. 37.
Stjörnublik
Söngkonur, sem vert er að
veita athygli eru Þuríður Sig-
urðardóttir og þessi Ijómandi
laglega stúlka, sem syngur
endrum og eins með hljóm-
sveitinni 5 Pens . . . Piltarn-
ir þeir ættu að virki.a þann
kraft betur og kalla hljóm-
sveitina 6 Pens . . . Óðmenn-
irnir hans Berta Jensens
mjög efnilegir hljóðfæraleik-
arar — og söngvarar góðir
að auki. Fallegt var lag ann-
ars gitarleikarans, sem heyrð-
ist í útvarpsþætti unga fólks-
ins fyrir skömmu . . . Tóna-
bræðurnir Gunnar Jökull og
Sigurður hafa dvalizt í Lon-
don um nokkurt skeið í þv!
skyni að „stúdera hljóm-
sveitir og föt" . . . Ernir bezt
klædda hljómsveitin — í
smokingfötum . . . Tempó-
hljómsveitin aftur komin á
kreik. Piltarnir halda enn
hópinn allir, þótt margar
hljómsveitir hafi haft auga-
stað á Palla trommara — þar
á meðal 5 Pens . . . Pétur
Östlund hefur tvö trommu-
sett til skiptana . . . Lómar
frá Selfossi einum of hávaða-
samir, þar sem þeir leika (
litla salnum í Glaumbæ . . .
Hljómar senda innan skamms
frá sér sex lög á tveimur
hljómplötum. Útgefandi er
Parlaphone. Plöturnar verða
f skrautlegu hulstri, sem Jón
Lýðsson sér um . . . Hvenær
ætla Ernir að læra textann
við lagið Colours? . . . Er það
ekki undarlegt tiltæki að
kalla eina hljómsveit „Fimm
pennar"? . . . Dúmbó sextett
aldrei betri en nú. Það er
alltaf góð stemming, þar
sem Dúmbóarnir leika fyrir
dansi enda er músikin fáguð
og fjölbreytileg og sviðs-
framkoma þeirra fjörleg og
til fyrirmyndar. . . Hans
Kragh og Ormar, sem áður
léku með Lúdó, leika nú með
Hauk Mortens í Klúbbnum.
V__________________________________J
VIKAN 25. tbl.