Vikan - 23.06.1966, Page 22
Á myndinni sést leiðtogi og
„spámaður“ Playboy-hreyf-
ingarinnar, Hugh Hefner, með
nokkrar af kanínunum sínum
í kring um sig.
HVAÐ VARÐ AF BÖRNUM
NAZISTAFORINGJANNA?
Þýzkt blað lét fyrir skömmu
gera könnun á því hvað orðið
væri um börn þeirra, sem réðu
lögum og lofum í landi þeirra
fyrir tuttugu árum. Kom þá í
Ijós að mestur hluti „barnanna“
býr í Miinchen og nágrenni, þar
sem nazisminn spratt upp og átti
alla tíð —• og á enn, að sumra
sögn — einlægast fylgi.
Heinrich Himmler, sem öðrum
fremur er talinn ábyrgur fyrir
fjöldamorðum nazista í fanga-
búðum og ótal hryðjuverkum
öðrum, átti eina dóttur barna,
sem Guðrún heitir (eftir Gjúka-
dóttur?) og er nú þrjátíu og fimm
ára að aldri. Hún vinnur á skrif-
stofu hjá verzlunarfyrirtæki
nokkru í Múnchen, sem selur
matvæli. Hún er gift og ber því
ekki framar nafn föður síns. Hún
segist þrívegis hafa verið rekin
úr starfi, þegar húsbændur henn-
ar fregnuðu hvers dóttir hún var.
Um Auschwits og annað af því
tagi vill hún ekki ræða, en segist
hafa verið hamingjusöm í
bernsku. „Faðir minn var mér
sá bezti faðir, sem hægt er að
gera sér í hugarlund“, segir hún.
Reinhard Heydrich, sem var
landsstjóri Hitlers í Bæheimi og
Móravíu, átti fjögur börn, og eru
þrjú þeirra á lífi, tvær dætur
giftar og sonur, sem er verk-
fræðingur við flugvélaverk-
smiðju í Múnchen. Sé hann
spurður um hið Iiðna, segir hann:
„Ég er verkfræðingur og raun-
sæismaður. Ég horfi fram á við
og hugsa ekki um hið liðna“.
Sonur Hans Franks, sem var
landsstjóri Hitlers í Póllandi og
síðar hengdur í Núrnberg, vinn-
ur við sjónvarpið í Múnchen.
Hann kveðst vera einlægur lýð-
ræðissinni og hata allt, sem beri
svip af hernaði. „Systur mínar
tvær eru enn sannfærðir nazist-
ar, og ég hitti þær svo að segja
aldrei“, segir vandlætari þessi. —
Martin Bormann á sjö börn á
lífi, enda var hann kvæntur að
minnsta kosti tveimur konum
samtímis. Einn sona hans er
deildarstjóri við vöruhús í Ham-
borg, annar verkstjóri við ein-
hverja fabrikku í Ruhrhéraðinu.
Tveir aðrir synir Bormanns —
sem mun hafa talið sig heiðinn
— hafa gengið í þjónustu ka-
þólsku kirkjunnar, og starfar
annar þeirra, sem heitir Martin
eftir föður sínum, sem trúboði í
Kongó.
PLAYBOY
KLUBBARNIR
Eitt menningarlegasta og
fallegasta tímarit, sem út er
gefið í Bandaríkjunum, er
Playboy. Það er hvað þekkt-
ast fyrir myndir af fagurvöxn-
um stúlkum, lítt eða ekki
klæddum. En þar fyrir er auð-
vitað langt frá því að það sé
nokkuð sorprit, eins og það
frumstæða fólk, sem alltaf
þarf að vera að blanda kven-
legri fegurð við sorp, heldur
fram.
í tengslum við blaðið eru
sérstakir Playboyklúbbar í
Bandaríkjunum og víðar.
Hver meðlimur hefur undir
höndum lykil, sem gengur að
öllum klúbbum „reglunnar“,
hvar sem er í heiminum. Um
beina í klúbbunum ganga
stúlkur, sem klæddar eru í stíl
við kanínur, enda kallaðar
Bunnies, en það þýðir víst
litlar kanínur.
22 VIKAN 25. tbl.
HANN MÁLAR
MEÐ TUNGUNNI
Listmálarinn á myndinni
heitir Pat Paulsen, er dansk-
ættaður en býr i Kaiiforníu.
Ekki vitum við hversu mikill
listamaður hann er, en fáir
mála myndir sínar með meiri
fyrirhöfn en hann. Hann læt-
ur nefnilega hengja sig upp á «
fótunum yfir léreftinu og
slafrar síðan litnum á það
með tungunni. Já, þetta er iist ’
(eða lyst)!
c~------->
Síðan
sfðast
v________y