Vikan - 23.06.1966, Page 31
okótber var allt tilbúið til ferðar.
Bohr varð steinhissa þegar flug-
mennirnir heimtuðu, að hann skyldi
liggja á ákveðnum stað í geymslu-
rúmi flugvélarinnar, meðan á ferð-
inni stæði. Vitaskuld var honum
ekki sagt, að hann var staðsettur
beint yfir sprengjugatinu. Flug-
mennirnir höfðu fengið eftirfarandi
skipanir frá leyniþjónustunni sinni:
Ef þýzkar orrustuflugvélar ráðast á
ykkur, skuluð þið opna sprengju-
gatið og sleppa Bohr niður. Hann
má fyrir alla muni ekki komast lif-
andi í hendur Þjóðverja!
Fleira varð til þess að gera ferð-
ina óþægilega. Flugvélin fór eins
hátt og hún komst, svo að nauð-
synlegt var að setja á sig súrefnis-
grímu. En þrátt fyrir allan sinn vís-
dóm botnaði Bohr ekkert í þess-
konar tæki og lá í svima mestan
hluta ferðarinnar.
Moskítóvélarnar komust leiðar
sinnar slysalaust og lentu sam-
kvæmt áætlun á Lucasflugvelli við
Aberdeen.
Englendingarnir kunnu sér ekki
læti fyrir fögnuði og Churchill var
þegar send tilkynning um málalok-
in, og hann óskaði flugmönnunum
í staðinn til hamingju. Nú voru llk-
lega flestar meiriháttar áhyggjur úr
sögunni.
Nei, ekki alveg. Bohr afhenti
stoltur pappíra sína með árangri
rannsókna sinna og tók siðan upp
— flösku af Carlsberg Hof. Hann
hafði — utan við sig eins og fyrri
daginn — tekið með sér skakka
flösku!
Vissulega er Hof heimsins bezti
bjór og dugar til mikils, en allt um
það er vonlítið að framleiða úr
honum atómbombur. ( ofboði voru
skipanir sendar til erindreka brezku
leyniþjónustunnar [ Skandinavíu: (
Guðs bænum náið í hina bjórflösk-
unal
Einn bíræfinn erindreki dulbjó sig
sem nazískan liðsforingja og komst
þannig inn I hús Bohrs, sem Þjóð-
verjar nú hersátu. Hann gekk beint
að kæliskápnum, tók fram smörri-
brauð og útbýtti meðal nærstaddra
hermanna. Flöskunni með þunga
vatninu stakk hann hinsvegar á sig
og hafði sig á brott. . .
Allt fram til þess að Bohr dó,
1962, var hann spurður um þenn-
an atburð, sem margir voru vantrú-
aðir á að hefði gerzt.
En enginn fékk greinilegt svar.
Níels Bohr svaraði aðeins með umli,
sem enginn skildi. Kannski var hann
í vafa um, hvoru hann ætti að sýna
meiri hollustu: hinum eilífa sann-
leika eða auglýsingadeild hinnar
frábæru Carlsbergölgerðar.
☆
Hlutabréf
í norðurljósunum
Framhald af bls. 11.
1 staka myndir, bæði hér og erlend-
is, en þar hafa tilviljanir ráðið.
— Málaralistin er auðvitað þitt
l
fyrsta og helzta tómstundaáhuga-
mál.
— Aðeins öðrum þræði, mundi
ég segja. Hitt er þjóðarbúskapur
okkar íslendinga. Mér finnst hann
hafa verið nokkuð ógætilega rek-
inn undanfarna áratugi. Mér líð-
ur l(kt og farþega í bll með drukkn-
um bílstjóra, þegar ég hugsa til
þeirra búskaparhátta.
— Það liggur við að ég sé hissa.
Hvernig getur listelskur maður eins
og þú nennt að eyða dýrmætum
tíma í jafn leiðinleg viðfangsefni
og maður hefði haldið að stjórn-
og efnahagsmál væru?
— Það má með nokkrum rétti
komast svo að orði, að áhugi minn
á rekstri þjóðarbúsins eigi sér þjóð-
ernislegar rætur. Ég fór snemma
að reyna að íhuga, hvernig hin
almenna velferð yrði bezt tryggð.
Og ástæðan var og er m.a. sú, að
ég trúi því, að þessi þjóð hafi al-
veg sérstaka ástæðu til að vernda
þjóðerni sitt. Hef þar einkum í huga
tunguna og bókmenntir hennar,
fornar og nýjar, og tengsli tung-
unnar við bókmenntirnar og sög-
una. En efnahagslegt sjálfstæði
þjóðarinnar er frumskilyrði þess, að
hægt sé að varðveita þessi þjóð-
ernislegu verðmæti. Ég fór því að
leitast við að gera mér grein fyrir,
hversu sterkar stoðir rynnu undir
efnahagslíf okkar. Eitt af höfuð-
VIKAN 25. tbl.
Gillette Super Silver gefur yður fleiri rakstra, en nokkurt annaB rakblað, sem þér hafiðT átfur notaC. Miklu fleiri rakstra. Nýja
Gillotte Super Silver rakblatsitt hefur pessa miklu teknisku kosti yfir öll önnur rakblöö: Störkostlegt nýtt, rytffrítt stál húöatf meö EB7_
Gillette uppfinning—beittari egg, sem endist lengur og gefur mýkri rakstur.
Maður uppgötvar stórkostlegt
nýtt endingargott rakblað, sem
gefur miklu, miklu, fleiri og
þægilegri rakstra, en nokkurt annað
rakblað, sem þér hafið nokkru sinni
notað, og auðvitað er það frá Gillette.
Gillette Super Silver
GiIIette
Q) SUPER SILVER
“7
£. STAINLESS BLADES
engin vertthœkkun