Vikan - 23.06.1966, Page 34
Sterk 09 vöndud
Vercf vidT allra hæfi
Gócfir greicfs I uski I m álar
Litaval á plastáklæcfi og borcfplasfi
Veltitappar á stólfótum án aukakostnadar
ALLT Í ELDHÚSIÐ Á SAMA STAÐ
kostar stórfé að komast inn á mark-
aðinn þar vestra, því samkeppnin
er hvergi harðari, það þarf mikið
fé til auglýsinga og til að vekja
athygli á sér á sem breiðustum
grundvelli, ef maður á að gera
sér vonir um einhvern árangur. En
sá árangur getur orðið stórkostleg-
ur, þegar einu sinni hefur verið
komizt framhjá byrjunarörðugleik-
unum.
— Hvað vildurðu svo segja að
síðustu Kristján, eins og þeir segja
í útvarpinu?
— Ég held ég kysi þá helzt að
segja að eftir því sem ég kynnist
okkar ágætu þjóð betur smátt og
smátt með árunum — og fæ saman-
burð á henni við kynni af öðrum
VIKAN 25. tbl.
þjóðum — því hrifnari verð ég af
henni. Mér virðist að hér sé svo
margt af skemmtilegu, gáfuðu og
góðviljuðu fólki. Og ég hef á til-
finningunni að íslendingum muni
heppnast flest sem þeir fara að
leggja sig eftir í alvöru.
Stjórnmálaforustan virðist mér
raunar hafa verið heldur léleg síð-
ustu áratugina — en við erum ung-
ir í þessari grein, eins og mörgu
öðru, svo ég trúi því fastlega að
þetta standi til bóta, þegar menn
fara í alvöru að leggja sig eftir
stjórnmálum — og vaxa frá dálít-
ið drengjalegri kappgirni og fyrir-
hyggjuleysi, sem mér virðist hafa
skaðað okkur að undarförnu.
dþ.
Dóttir mín heitir Sarah
Framhald af bls. 13.
— Ó, já, þann Eddie. Heldurðu
að hann bjóði þér upp?
— Auðvitað gerir hann það. Hún
var svo örugg og róleg.
Ég tók aftur til við að strauja
kjólinn hennar. — Flýttu þér nú að
borða, þú verður of sein fyrir. Sar-
ah horfði á klukkuna og svolgraði
í sig úr mjólkurglasinu.
— Hægan, hægan, sagði ég, —
annars færðu hixta í miðjum dansi.
Heldurðu ekki að það yrði dálít-
ið leiðinlegt?
Sarah fór að hlægja og henni
svelgdist á. Ég rétti henni serviettu
og hún þurrkaði sér um munninn
og stóð upp. Ég rétti henni kjólinn
og hún fór inn í herbergið sitt. Ég
heyrði að hún söng, meðan hún
var að klæða sig. Svo tók ég af
borðinu og þvoði upp.
Ég fór fram á ganginn og kall-
aði inn til Söru: — Heyrðu Sarali,
heldurðu ekki að þessi dans sem
frú Glazier kenndi ykkur myndi
gera lukku á Samoa?
— Hvar?
— A Samoa. Þetta er líkast því
sem kynflokkarnir þar dansa við
hátíðleg tækifæri. Það eru til mynd-
ir af því í háskólanum, ég skal
muna eftir að koma með þær heim.
Sarah birtist í dyrunum; hún var
komin f nýja kjólinn og beztu skóna
sína og hún hafði burstað vandlega
hárið, þótt ég hefði ekki minnt haria
á það og um hálsinn hafði hún
hvíta perlufesti, sem ég hafði keypt
handa henni á leiðinni heim.
— Er ég ekki fín?
Ég ranghvolfdi augunum og hall-
aði undir flatt. — Nokkuð svo, þú
ert ekki sem verst. Og svo hI|óp ég
til hennar, vafði hana að mér og
sagði henni hve dásamleg húrt værí,
þangað til hún reif sig lausa og
sagði: — Pabbi, þú krumpar kjól-
ir.n minn.
— Hamingjan forði mér frá því,
sagði ég. Svo tók ég um axlir henn-
ar, horfði f augu hennar og sagði:
— Sarah, — Sarala, ef eitthvað fer
öðruvísi en þú hefur hugsað þér,
máttu ekki verða of sorgbitin. Ég
fann hve þetta hljómaði kjánalega.
— Hvað áttu við, pabbi?
— Ja, — ég meina að ef Eddie
nú ekki dansaði við þig . . .
Sarah fór að hlæja. — Pabbi,
hverja heldurðu að hann vilji frek-
ar dansa við?
Það er aldrei hægt að vernda
þann sem ekki er særður. Það er
ekki hægt að útskýra það að mað-
ur verður að vera svolítið hræddur
til að vera öruggur.
— Enga frekar, Sarah, sagði ég.
— Ég er bara gamall kjáni. Svona
nú, flýttu þér af stað.
Hún klappaði mér og tók um
handlegg minn. — Það er stelpa (
bekknum sem myndi þiggja það
að Eddie dansaði við hana. Hún
heitir Tilly Hofberg, en hún er svo
kisuleg. Hún reynir alltaf að vera
sem næst Eddie, þegar brunaæfing-
arnar eru, hún hefur meira að segja
elt hann heim.
Og hún skellihló, við tilhugsun-
ina.
— Er hann hrifinn af henni?
— Hann var það, en hann er það
ekki lengur. Eleanora Frankie sagði
Marilyn það og Marilyn sagði mér.
Heldurðu að Eddie verði ekki hrif-
inn af hálsfestinni?
— Það er ég viss um, sagði ég.
— Farðu nú, annars verðurðu of
sein. Sarah kyssti mig og hljóp út.
Ég fór út að glugganum og horfði
á eftir henni. Hún mætti Marilyn
Fine á miðri götunni og svo leidd-
ust þær áfram og mösuðu saman.
Eftir nokkrar mínútur á ég von
á að Sarah komi heim. Það er farið