Vikan - 23.06.1966, Page 43
JURTA-smjörlíki er heilsusamlegt
og þrungiS fjörefnum
JURTA-smjörlíki er bragðgott
JURTA-smjörlíki er frábært í bakstur
JURTA-smjörlíki fæst í þrem tegundum
umbúða
JURTA-smjörlíki er ódýrt
alltaf ánægju. — Hvar er Paul?
spurði hún.
— Að bera hitt draslið upp.
— Hvernig stóð hann sig heima
hjá Pacco?
— Vel. Willie kveikti á gastækinu
og slökkti á eldspýtunni. — Mjög
vel. Hann hefur það sem til þarf.
— Viðbragð?
— Aðeins of seint. Hann er eðli-
legur.
— Engar spenntar taugar?
— Nei. Allt á sínum tíma.
— Og aðferðin?
-- Hraði og breidd.
Þau töluðu í styttingum um mál-
efni, sem þau höfðu kynnt sér
fræiðlega og í framkvæmd af alúð
og áhuga í mörg ár. Willie opnaði
fyrir gasstútinn og rétti úr sér. —
Sjáðu einhvern tíma Bucheimer-
hulstrið, sem hann notar fyrir Cobr-
una, sagði hann. — Þú gætir hagn-
azt nokkuð á því að nota það,
Prinsessa.
— Hvað um brjóstin?
— Eg held, að þau verði ekki fyr-
ir. Og þetta er þess virði að reyna
það einhvern tíma.
— Gott. Viltu bera matvöruna
inn úr bílnum, þegar þú hefur lok-
ið þér af við þetta apparat, Willie.
Hún gekk fram í ganginn og upp
stigann. Paul var i stóra svefnher-
berginu, sem sneri út að garðin-
um. Hann hafði borið töskur þeirra
beggja þangað inn.
— Ég ætla að taka hitt herberg-
ið, Paul, sagði hún.
Hann starði á hana: — Hvað er
að þessu?
— Ekkert. En við ætlum ekki að
sofa saman, vinur. Hún brosti og
snerti handlegg hans um leið og
hún gekk út að glugganum. — Það
verður þá bara þeim mun betra á
eftir.
Hagan settist á rúmið og kveikti
f sígarettu. — Ég veit, að við höf-
um mikið að gera, sagði hann
varlega. — Við verðum að vera
iðin eins og maurar, og reyna að
grafast fyrir um eitthvað, meðan
lýðurinn hér er enn í taugaáfalli.
En við verðum einhverntíma að
sofa. Af hverju ekki saman?
— Það gerir mismun, sagði hún.
— Aðeins örlítinn mismun, en við
höfum ekki efni á því.
Hagan fann strikka á vöðvunum.
Þögul þolinmæðin f svari hennar
kom ólgunni upp í honum. Hann
drap f sígarettunni, gekk yfir her-
bergið og tók um axlir hennar og
rykkti henni við, þannig að hún
stóð andspænis honum.
— Hvern fjandann ertu að
þvaðra? spurði hann. — Við erum
að vinna. — Allt í lagi. Þetta er
ekki leit að helgum dómi. Fasta
og naglabeddar hjálpa ekkert.
Sjáðu, ég get lagt þig þarna yfir
rúmið og tekið það núna, og að
því loknu farið út og gert mína
hluti eins hratt og hver annar.
— Ekki alveg.
— Þú segir mér það, sagði hann.
Honum til ergelsis fann hann, dð
annar helmingur huga hans var
að virða fyrir sér ávöl kinnbein
hennar og útlfnur varanna. — Mér
þætti gaman að vita, af hverju þú
ert svona andskoti viss um þig,
sagði hann.
— Viltu að ég gefi þér utanund-
ir með því, Paul?
— Já. Gefðu mér utanundir með
því. Framhald í næsta blaði.
UNGFRU YNDISFRIÐ
býður yður hið landsþekkta
konfekt frá N Ó A.
HVAR E R ORKIN HANS NOA?
Það er alltaf sami leikurinn i henni Ynd-
isfríð okkar. Hún hefur faiið örkina hans
Nóa einhvers staðar i blaðinu og heltir
góðum vcrðlaunum handa þeim. scm getur
fundið tírkina. Verðlaunin eru stór' kon-
fektkassi, fullur af bczta konfckti, og
framleiðandinn er auðvitað Sælgætisgerð-
ln Nói.
Siðast er dregið var hlaut vcrðlaunin:
Lára Hrafns,
Hlíðartúni, Mosfellssveit.
Vinninganna má vitja í skrifstofu
Vikunnar. 25. tbl.
VIKAN 25. tbt.