Vikan - 23.06.1966, Blaðsíða 47
Æfingar til aO styrkja háls og höku þurfa að gerast daglega svo að árangur
náist. Sé hálsinn of magur, má reyna þessa æfingu: Dragið andann djúpt og
þrýstið honum svo í smágusum út aftur, en hafið höndina þétt fyrir munninum
á meðan, þannig að þetta reyni töluvert á hálsinn. Gætið þess vel að loftið sé í
hálsinum en ekki munninum, en þið finnið ef það er of ofarlega, þegar kinnarnar
þenjast út, en þær eiga ekki að hreyfast, meðan þetta er gert. Hafið tunguna
milli varanna, til þess að tempra útöndunina. Ef þessi æfing er gerð rétt, er
sagt að hún hafi góð áhrif, en hún likist því mest, að verið sé að spila á cornet.
Margar æfingar eru notaðar við of feitum hálsi og þá ekki sízt undirhöku. Ein
er þannig: Lútið höfði þar til hakan nemur við bringuna, spennið greipar aftur
íyrir höfuðið, rétt íyrir ofan eyrun og þrýstið höfðinu niður þar til það finnst,
hvernig strekkist á hálsinum að aftan og niður á milli herðablaðanna. Gerið
hana sex sinnum í röð. önnur er þannig: Klípið hnefaíylli í vöðvana ofan á
vinstri öxl með hægri hendi. Herðið gripið og ýtið þeim aftur á við eins og hægt
er. Gerið þetta í nokkrar mínútur, en endurtakið æfinguna siðan á hægri öxl.
Ágæt æfing við undirhöku er að teygja höfuðið eins langt aftur og hægt er,
og reyna síðan að ná nefbroddinum til skiptis með tungunni og neðri vörinni.
Aðrar æfingar eru þessar og standið beinar, meðan þær eru gerðar: Dragið
munnvikin niður og segið „X“. Tyllið hökunni tii skiptis á hægri og vinstri öxl.
Lokið munninum og bítð fast saman tönnunum andartak. Setjizt með kreppta
hnefa fast upp að hökunni. Snúið höfðinu til skiptis til vinstri og hægri og teygið
vel úr hökunni á meðan og hafið munninn opinn.
Hálsinn og hakan eru, yfirleitt mjög vanrœkt
viö snyrtingu., en þó getur þetta hvort tveggja
haft úrslitaáhrif á útlitió. Ég hef aö vtsu aldrei
séö konur hér á landi meö eins óskaplega skorp-
inn og hrukkóttan háls og stundum ber fyrir
erlendis, enda var þaö viöa stöur allt fram aö
þessu, aö gamlar konur gengju meö breitt
band um hálsinn, til þess aö hylja hve gamall
og hrukkóttur hann vœri. Feitur og keppóttur
líáls er Iheldur enginn feguröarauki, því síöur
margfáldar undirliökur. Sagt er, aö þaö megi
meö góöum árangri koma í veg fyrir þessi
lýti, því aö þau geri nokkur boö á undan sér,
og sé skaöinn skeöur, þarf heldur ekki aö ör-
vcenta, þvi aö hægt er aö bæta úr því meö
elju og þrautseigju. Ég mun hér á eftir telja
upp þaö helzta, sem ég hef heyrt ráölagt í
þessum efnum.
Rétt staöa höfuösins, hvort sem er í vöku
eöa svefni, er mikilvaeg fyrir fallegan háls og
höku. Þeir, sem ganga beinir og bera höfuöiö
hátt, fá sjaldan undirliökur, nema þeir séu
því feitari. Þaö á líka aö sofa meö lágt undir
höföinu og jafnvel 'hærra undir fótunum en
höföinu, helzt ekki minna en 25 cm., en þaö
eykur blóörásina til hálsins og varnar fitu-
myndun þar. Þaö þarf líka aö venja sig á aö
lúta ekki mikiö yfir bók eöa liandavinnu, en
þaö er hægt meö árvekni aö venja sig af þvt.
HúÖin á hálsinum þarf sérstaka umönnun.
Hún er þykkari þar en á andlitinu og þarfn-
ast næringarriks krems og nudds. Mairgir
þekktustu snyrtivöruframleiöendur búa til sér-
stök krem œtluö fyrir hálsinn, sum til aö
nota daglega og önnur til aö styrkja húöina
sérstaklega og ekki borin á nema einu sinn'i
eöa tvisvar l viku. Þaö á aö berja kremiö inn
í hálsinn og neöan á hökuna meö beinum
fingrum eöa litlum spaöa og byrjiö neöst og
haldiö áfram upp eftir. Sé hálsinn Ivrukkóttur
eöa slappur og sé undirhaka, á aö þvo háls-
inn daglega meö vatni og sápu og litlum, frekar
stinnum bursta, sem dreginn er í litla hringi
upp eftir hálsinum, þar til hann er rauöur og
heitur. Þar næst er skolað meö ísköldu vatni
meö svolitlu natron (bökunarsóda) í, ekki
meira en framan á hnífsoddi í hvern lítra.
ÞaÖ mýkir vatniö, lokar svitaholunum og gerir
liúöina stinnari, en sé sódaduftiö of rnikiö,
getur þaö haft þveröfug áhrif. Strax og búiö
er aö þurrka hálsinn, er skintonic boriö á og
síöan gott nærandi krem eöa sérstakt háls-
krem, eöa aö degi til vökvakrem. Volg olía
er líka fljótvirk og góö viö mögrum og lirukk-
óttum háJsi, og hún er einnig barin meö litlum
höggum inn í húöina. Konur, sem megrast
snögglega, cettu aö gæta vel aö Vtálsinum og
nota nudd og œfingar t'il aö halda vöðvunum
stinnum.
Margar fullorönar konur hafa dekkri liúö
á hálsinum en í framan. Þær reyna oft aö leyna
því meö þvi aö nota dekkra púöur og
púöurundirlag á andlitiö, til aö sam-
ræma það til liálsins, en þaö er ekki
rétt aöferö. Þær eiga aö lýsa hálsinn
meö Ijósara undirlagi, en púöra svo
yfir hvort tveggja meö sama lit af púöri.
Þannig sjást engin mörk milli háls og
andlits. Sé hálsinn mjög dökkur, er gott
aö nota maska, sem lýsir
húöina, einu sinni í viku.
Það getur verið gott að nota mjög sterk krem öðru
hverju á hálsinn, til þess að örva blóðrásina og
styrkja húðina. Hægt er að fá þannig tilbúin krem
af ýmsum vörumerkjum, en ég rakst á þessa upp-
skrift af heimagerðu kremi, sem sagt er að sé mjög
sterkt og þurfi að nota með varúð. Það getur verið
misjafnt hvernig húð hvers og eins bregzt við
því, og rétt er að byrja með því að smyrja háls-
inn fyrst með næringarkremi, áður en hitt krem-
ið er sett á. Það er búið til þannig: 1 gr. cayenne-
pipar og 49 gr. perúbalsamvaselín (e.t.v. hægt að
biðja lyfsalann um að blanda það). Rétt eftir að
það er komið á hálsinn, verður húðin heit og sting-
andi, en þá á að hreinsa kremið starx af með pappirs-
þurrku eða línklút — en aldrei með vatni. Síðan
er næringarkrem sett á til að draga úr áhrifunum,
en samt heldur húðin áfram að vera rauð og heit
og eins og smánálum sé stungið í hana. Ef kremið
hefur ekk'i þannig áhrif, er óhætt að bera það á.
án þess að hafa næringarkrem undir, en samt á
að hreinsa það af, strax og þessi áhrif koma í ljós,
og helzt rétt áður. Sé húðin þunn og æðarnar
sprungnar, má alls ekki nota þetta krem, en þoli
húðin þetta vel, má nota svolítið af því upp við
eyrun, ef hrukkur eru að myndast þar, sömuleiðis
_við munnvikin, á olnbogana og við hrukkur annars
staðar á líkamanum, en aldrei undir augunum eða
annars staöar á andlitið.
Stundum er gott að gefa andliti og hálsi víta-
míngrímu og er hægt að nota til skiptis grímu úr
eggjarauðu, 1 — 2 matsk. af olivenolíu eða möndlu-
olíu og nokkrum dropum af sítrónu- eða appelsínu-
safa og svo grímu úr dökku ölgeri, sem hefur
verið hrært með vatni í linan graut. Andlitið þarf
að vera hreyfingarlaust, meðan grímurnar eru á,
og þegar þær eru alveg þurrar, eru þær þvegnar
af með volgu vatni, e.t.v. með svolitlu sódadufti í.
VIKAN 25. tbl.