Vikan - 30.06.1966, Síða 2
í FULLRI HLVÖRU
BARA HREYFA EINN HNAPP oe
HA14AFULLMATIC
SJÁLrV R:<A ÞVCTTAVÉL’N þvær, sýður, skolar og
V.NOUR ÞVOTTINN.
B-1AS4AFULLMATIC ÞVOTTAVÉLIN FER SIGURFÖR UM ALLA EVRÓPU. -
H A K A GERIR ÞVOTTADAGINN AUÐVELDARI EN ÁÐUR ÞEKKTIST.
SJÁLFSTÆÐ
ÞVOTTAKERFI
1. Suðuþvottur 100'
2. Hoitþvottur 90°
3. Bleijuþvottur 100°
4. Mislitur þvottur 60°
5. Viðkvæmur þvottur 60°
6. Viðkvæmur þvottur 40°
7. Stífþvottur/Þeytivinda
8. Ullarþvottur
9. Forþvottur
10. Non-lron 90°
11. Nylon Non-lron 60°
12. Gluggatjöld 40°
*
B-BAB4/s&FULLMftTIC
AÐEINS M^B^^FULLMATIC ER SVONA AUÐVELD í NOTKUN. SNÚIÐ EINUM SNERLI
OG H A K A SÉR ALGERLEGA UM ÞVOTTINN OG SKILAR HONUM ÞEYTÍUNDNUM. - SJÁLFVIRKT
HITASTIG OG VATNSMAGN, SEM HÆFIR HVERJU ÞVOTTAKERFI. - SJÁLFVIRKAR SKOLANIR. - TÆM-
ING OG ÞEYTIVINDUÞURRKUN. - MEÐ 2 KERFUM AF 12 CR HÆGT AÐ SJÓÐA ÞVOTTINN SVO VÉL-
N SKILAR JAFNVEL ÓHREINASTA ÞVOTTI TANDURHREINUM. - ÞVOTTURINN KEMUR AÐEINS VIÐ
GLANSSLÍPAÐ, SEGULVARIÐ, RYÐFRÍTT STÁL.
ábyrgð
KOMIÐ - SKOÐIÐ - SANNFÆRIST
Ábyrgðarlaust
athæfi
Jú, ég get örugglega lofað því,
að þetta verði til eftir þrjár vik-
ur. Það má alveg treysta því.
Svo líða þrjár vikur, og ekkert
er til, meira að segja vill enginn
við það kannast, að neinu hafi
verið lofað. Ef til vill er maður
svo heppinn að hafa eitthvað í
höndunum, ef til vill kvittun upp
á fyrirframborgun, dagsetta um
leið og pöntunin var gerð, og þá
Ibyrjar ballið. Já, það getur svo
sm vel verið, en það er nú svona,
mennirnir hafa ekki mætt hjá
mér og það er svo erfitt að fá
menn eða það er svo erfitt að
halda mönnunum, og svo er þras-
að og þrasað og maður má prísa
sig sælan, ef maður fær umrædda
vöru hálfum mánuði eftir að hún
átti að vera til samkvæmt fyrsta
loforði. En það stendur sjaldan
lengi á reikningnum — og það
er ekkert verið að klípa af hon-
um.
Því miður er þetta algengasta
sagan í sambandi við húsbygg-
Iingar og aðrar framkvæmdir hér
á landi. Það er eins og blessað-
ir mennirnir séu að gera manni
stórgreiða með því að leyfa
manni að kaupa af þeim efni og
vinnu, og ábyrgðin er ævinlega
hjá einhverjum dularfullum að-
ila, sem aldrei er hægt að festa
| hendur á. Árangurinn er sá, að
allt dregst á langinn og verður
margfalt dýrara, svo ekki sé
minnzt á þann möguleika, að var-
an sé annað hvort illa gerð eða
Ivitlaust gerð, þegar hún loksins
kemur. Það er svo sem ekkert
sjaldgæft.
Jafnvel forstjórar fyrirtækj-
anna eru ekki ábyrgir fyrir enda-
lausum töfum og sviknum lof-
orðum. Ekki eru það víst held-
ur verkstjórarnir, þaðan af síð-
ur launþegarnir, sem verkið
vinna, og þá náttúrlega ekki að-
ilinn, sem annaðist söluna og lof-
orðið gaf í fyrstu. Nei, ábyrgðin
er fyrir ofan og utan, hvergi
finnanleg, og svo verða öll fag-
Ifélög og meistarasamtök bálreið,
ef einhver ymprar á seinagangi
og óeðlilegum kostnaði við bygg-
ingar.
Og þegar þú ert hálfnaður að
Ikoma upp húsinu þínu ertu kom-
inn að þeirri niðurstöðu, að á-
byrgðin sé algerlega á þínum eig-
in herðum, af því þú ert svo vit-
laus að reyna að byggja upp hús
og treystir á loforð íslenzkra fag-
manna og starfsmanna þeirra fyr-
irtækja, sem þeir reka.
Því það er svo sannarlega á-
byrgðarlaust athæfi! SH.
2 VIKAN 26. tbl.