Vikan - 30.06.1966, Qupperneq 6
RONSON
fyrir dömuna
RONSON
fyrir herrann
RONSON
fyrir heimílið
RONSON KVEIKJBRI
er tilvalin tækifærisgjöf
WORLD'S GREATEST UGHTERS
ENGA PABBAPÓUTÍK, TAKK!
Elsku krúsidúlli Póstur minn!
Við erum hérna tvær efni-
legar, ungar stúlkur, sem lang-
ar til að láta eitthvað að okkur
kveða og völdum því þennan
vettvang. Eftir 4 ár fáum við
kosningarétt og viljum við þess
vegna spyrja, kæri Póstur, hvar
við getum fengið upplýsingar um
þessi mál annarsstaðar en hjá
skrifstofum stjórnmálaflokkanna.
Við viljum sko enga pabba-póli-
tík.
Svo við snúum okkar nú að
öðru, þá erum við hérna með 2
strákum (náttúrlega einum hvor)
þeir eru agalega sætir (þú ættir
bara að sjá þá) og myndarlegir,
en sá er kalli á gjöf Njarðar, að
þeir eru á millilandaskipi (við
segjum sko ekki hvaða) og við
erum svo ferlega ofsalega hrædd-
ar um að þeir haldi fram hjá okk-
ur, heldurðu það? (gerðu það
segðu NEI!).
Geturðu sagt okkur hvort nóg
sé að hafa verknámsmenntun til
að komast í flugfreyjustarf? Við
erum sætar og vel vaxnar
eftir því sem sumir segja. Það
er nefnilega svo helvíti „bright“
ef við erum flugfreyjur og þeir
sjómenn, finnst þér það ekki?
Og svo hérna nota bene til
„gamals reiðs bítils“. Okkur
finnst alveg ferlegt að skíta út
allt sem íslenzkt er, hann er týp-
ískur svona maður sem hefur
komizt út fyrir landsteinana og
kemur svo eins og uppblásin
blaðra heim aftur
P.S. Heyrðu Póstur minn, hvert
eigum við að snúa okkur til að
komast í fegurðarsamkeppnina,
því þangað hafa margir sagt okk-
ur að fara.
Tvær sem vilja vita svolítið
meira um lífið.
Við vitum aS Félagsmálastofnun-
in hefur gefið út bók, sem heitir
Kjósandinn, stjómmálin og vald-
ið og f*st hún sjálfsagt hjá
Bókabúð Norðra í Hafnarstræti,
sem hefur umboð fyrir Félags-
málastofnunina. Þessi bók getur
kannski orðið ykkur til einhverr-
ar leiðsagnar þegar þið fáið kosn-
ingaréttinn, ef þið viljið endi-
lega nota hann.
Þessu varðandi strákana eigum
við erfitt með að svara, þar eð
við þekkjum ekkert til skapgerð-
ar þeirra. Þó er fremur trúlegt,
að þeir haldi framhjá ykkur ef
góð tækifæri gefast, en ekki þarf
það neitt að verða til þess að
þið missið þá, að minnsta kosti
ef þið látið það vera að sletta
ykkur nokkuð fram í það.
Þið getið sem bezt orðið flug-
freyjur þótt þið hafið ekki nema
verknámsmenntun, en áður verð-
ið þið að ganga undir sérstakt
inntökupróf, sem haldið er á veg-
um flugfélaganna. Mun þar eink-
um lögð áherzla á góða tungu-
málakunnáttu, einkum í ensku
og dönsku.
Ekki viljum við að óséðu draga
í efa, að þið séuð vel hæfar í feg-
urðarsamkeppnina. Ef þið hafið
áhuga á að komast i hana, er bezt
fyrir ykkur að gefa ykkur fram
í Tízkuskólanum, Bankastræti 6.
Ekki sakaði hedur, þótt þið lituð
inn hérna hjá okkur, ef þið ætt-
uð leið um Skipholtið.
AÐDÁANDI EIRÍKS VÍÐFÖRLA.
Kæri Póstur!
Það hafa komið fram mismun-
andi bréf í Póstinum og fjallað
um fjölþætt efni öllsömul. En
þó kem ég eflaust hér með öllu
frábrugðnara efni en hin.
Svo er nú mál með vexti, að
ég hef safnað myndasögunni
„Eiríkur Víðförli“, sem var fram-
haldssaga í Tímanum í nokkur
ár, en er hætt nú. Þessari sögu
safnaði ég og safna enn. En mig
vantar allan 1. og 2. árganginn.
Ég hef leitað mikið hjá gömlu
fólki sem eitthvað á af Tímanum
ennþá og hef því sankað saman
dálitlum reitingi. En nú gefst ég
upp við þessa leit og leita ráða
þinna, kæri Póstur. Heldur þú,
að prentsmiðja Tímans gæti ekki
hjálpað mér dálítið í þessu efni?
Mér þætti vænt um að fá ráð-
leggingar þínar í næsta Vikublaði
9. júní.
Svo er það dálítið meira. Gæt-
irðu sagt mér hvar hægt væri
að fá uppstoppaða fugla s.s.
márierlu, steindepil, sólskríkju
og grátittling og verð þeirra.
Með fyrirfram þökk.
Tumi þumall.
P.S. Hvernig er skriftin og staf-
setningin?
Við teljum líklegt, að bezta ráð-
ið til að ná Eiríki víðförla eins
og hann leggur sig sé að snúa sér
til afgreiðslu Tímans. Varðandi
fuglana: Okkur er ekki kunnugt
um nema eina verzlun hér á
landi, sem hefur fugla til sölu,
g VIKAN 26. tbl.