Vikan - 30.06.1966, Blaðsíða 7
Rammagerðina í Hafnarstræti
17, Reykjavík. Þar fást ])ó ekki
eins og er aðrir fuglar en lundar
og rjúpur, og kostar lundinn 465
krónur, en rjúpan 525.
Skriftin er að okkar dómi mjög
falleg og um stafsetninguna í
þessu bréfi er ekkert nema gott
að segja.
FÖLSK FLOTAVELDI.
Kæri Póstur!
Ég er hérna með eina dálítið
merkilega spurningu, sem mig
Jangar til að leggja fyrir þig.
Ég var fyrir skömmu að fletta
erlendu blaði og sá þá skrá yfir
skipaeign hinna ýmsu þjóða. Þá
sá ég til dæmis, að ríki eins og
Panama, Hondúras og Líberia
eru meðal mestu siglingaþjóða
heims, eða næstum því eins og til
dæmis Norðmenn. Ég varð dálít-
ið hissa á þessu, því ég hélt að
þessi ríki væru í hópi hinna svo-
kölluðu vanþróuðu ríkja. Get-
urðu kannski sagt mér eitthvað
nánar um það?
B. G., Vestmannaeyjum.
Því er þannig varið með skipa-
eign þessara þjóða, sem þú nefn-
ir, að þótt hún sé svona mikil á
pappírnum, þá er hún nánast
engin þar fyrir utan. Skýringin
er sú, að í þessum frumstæðu
ríkjum, sem hér er um að ræða,
eru engin sjómannasamtök til,
engin lög, sem tryggja neinskon-
ar réttindi fyrir sjómenn, engar
reglur um skipaskoðun og svona
mætti lengi telja. Því er auðvit-
að miklu ódýrara fyrir skipaeig-
endur að eiga skip undir fána
þessara landa en annarra. Enda
er það svo, að allskonar stór-
braskarar á borð við Ónassis hinn
griska hafa látið skrá flest sín
skip í nefndum löndum. Hið
sama gera fjölmargir banda-
riskir útgerðamenn, og svona
mætti lengi telja. Margir telja
með fullum rétti, að hér sé held-
ur betur farið aftan að siðunum,
en svo virðist sem erfitt sé úr að
bæta eða þá að ekki er nógur
áhugi fyrir því af hendi þeirra
aðila, sem hezt gætu einhverju
um þokað.
Það er ástæða til að vara ís-
lenzka sjómenn, sem kynnu að
vilja fara í siglingar á erlend-
um skipum, við því að ráða sig
á skip, sem sigla undir fánum
ríkjanna, sem þú nefndir, og
raunar fleiri. Mörg þessara skipa
eru mestu manndrápsfleytur,
kaupið þar þar á ofan lélegt, að-
búnaður slæmur og mestar líkur
fyrir því að yfirmennirnir séu
ruddar og bandittar og skipsfél-
agarnir einhver vonlaus óaldar-
lýður.
Viljir þú vita eitthvað um rík-
in þrjú, sem þú nefndir, getum
við sagt þér eftirfarandi: Líbería
er smáríki í Vestur-Afríku, og
var upphaflega stofnsett sem
hæli fyrir negraþræla, sem leyst-
ir höfðu verið úr ánauð í Banda-
rikjunum. Afkomendur þessara
þræla eru nú yfirstétt í ríkinu,
þótt þeir skipti aðeins nokkrum
tugum þúsunda, en landsmenn
séu alls nokkrar milljónir. Þótt
yfirstéttin sé negrakyns eins og
aðrir íbúar landsins, hefur hún
takmarkalausa fyrirlitningu á
þeim og neitar þeim um öll
mannréttindi, og sannast þar að
þrælar eru þrælum verstir. Færi
vel á því, að allur sá urmull af
alþjóðasamtökum, sem svo fjálg-
lega slettir sér fram í innanríkis-
mál Suður-Afriku og Rodesíu,
skipti sér eitthvað af Iöndum
eins og Líberíu, svona til tilbreyt-
ingar.
Um Hondúras og Panama er
svipað að segja og mörg önnur
rómansk-amerísk ríki: Þar ríkir
fátækt, fáfræði, misrétti og ves-
öld á flcstum sviðum. Almenn-
ingur þar mun einkum vera af
indíánastofni, en mikið blandað-
ur hvítum mönnum og negrum,
en yfirstéttin er af spænskum
ættum. Erlendir auðhringar,
einkum bandarískir, munu eiga
bróðurpartinn af auðæfum landa
þessara, svo að það er ekki að
undra þótt fólkið þar sé veikt
fyrir áróðri Castros og annarra á-
líka skeggjarla.
BL6M
VIKUNNAR
Tveggja ára telpa, sem var kvef-
uð, var háttuð og var að lesa
kvöldbænirnar sínar.
„Biddu nú guð að láta þér
batna kvefið“, segir mamma
hennar. Sú litla bætir þessari bón
við, hugsar sig um litla stund og
spyr svo:
„Mamma, kemur Jesús þá með
vasaklút“? K.Z.
Fyrsta flokks frá FÖNIXs
ATLAS
KÆLISKÁPAR - FRYSTISKÁPAR - FRYSTIKISTUR
KÆLING cr aðferðin, þegar geyma á matvæll ituttan
tima. Þetta vita allir og enginn vill vera án kæilskáps.
FRYSTING. þ. e. djúpfrysting við a. m. k. 18 stlga frost,
er auðveldasta og bezta aðferðin, þegar gcyma á mat-
væli langan tima. Æ fleiri gera sér Ijós þægindln við
að eiga frysti: fjölbreyttari, ódýrari og betri mat, mögn-
leikana á þvi að búa \ haginn með matargerð og bakstrl
fram í tímann, færri spor og skemmri tima til innkaupa
— því að „ég á það í frystinum".
Við bjóðum yður 5 stærðir ATLAS kæliskápa, 80—
180 cm háa. Allir, nema sá minnsti, hafa djúpfrysti-
hólf, þrír með hinni snjöllu „3ja þrepa froststillingu",
sem gerir það mögulegt að halda miklu frosti i
frystihólfinu, án þess að frjósi neðantil í skápnum;
en einum er skipt i tvo hluta, sem hvor hefur sjálf-
stæða ytri hurð, kæli að ofan mcð sér kuldastillingu
og alsjálfvirka þíðingu, cn frysti að ncðan með eigin
froststillingu.
Ennfremur getið þér vaiið um 3 stærðir ATLAS frystikiita
og 2 stærðir ATLAS frystiskápa
Loks má nefna hina glæsilegu ATLAS viðar-kæltskápa i
herbergi og stofur. Þér gctið valið um viðartegundir og
2 stærðir, með cða án vinskáps.
Munið ATLAS einkennin:
☆ Glaesilegt og stílhreint, nýtízku útiit.
■sír Fullkomin nýting geymslurýmisins með vand-
aðri markvissri innréttingu.
☆ Innbyggingarmöguleikar með sérstökum Atl-
asbúnaði.
☆ Sambyggingarmöguleikar (kæliskópur ofan á
frystiskáp), þegar gólfrými er lítið.
Færanleg hurð fyrir hægri eða vinstri opnun.
☆ Hljóð, létt og þétt segullæsing og möguleikar
á fótopnun.
•A 5 ára ábyrgð á kerfi og traust þjónusta.
• •
Um allt þetta fáið þér frekari upplýs-
ingar, með þv( að koma og skoða,
skrifa eða útfylla úrklippuna, og mun-
um við leggja okkur fram um góða af-
greiðslu. — Sendum um allt land. SÍMI 24420. SUÐURGATA 10. RVÍK.
Sendið undirrit. ATLAS myndalista og nákvæmar upplýsingar. m.a. um verð
og greiðsluskilmála.
Nafn:..........................................................................
Heimlllsfang: ................................................................
Til FÖNIX s.f., pósthólf 1421, Reykjavík.
VIKAN 26. tbi. rj