Vikan - 30.06.1966, Blaðsíða 9
tímamót
TARLEST UPP í 500 KM. HRAÐA Á KLUKKUSTUND
vandamálið, sem Bandaríkin og
mörg önnur þéttbýl iðnaðarlönd
horfast nú í augu við: vöntun
á hraðskreiðu, stórvirku flutn-
ingatæki borga á milli.
Þjóðvegirnir fullnægðu áður
fyrr þessari þörf en gera það
ekki lengur. Aðalvegir um þétt-
býl svæði stíflast oft af bíla-
hjörðum sem eru á leið frá einni
stórborg til annarrar.
Norð-austurgangurinn svokall-
aði — hin 700 km. langa strand-
lengja frá Boston til Washing-
ton er eitt af tuttugu eða fleiri
dæmum um þetta í Bandaríkj-
unum einum. Á þessari strand-
iengju búa yfir 40 milljónir
manna. Árið 1980 verður sá
fjöldi orðinn 50 milljónir eftir
spáreikningum að dæma. En nú
þegar eru umferðarstíflur og
vöntun á stórvirkari flutninga-
samgöngum orðið augljóst og
hryggilegt vandamál á þessu
svæði.
Stór og sterkur karlmaður
myndi ekki geta tára bundizt
þótt hann aðeins í svip sæi öng-
þveitið sem ríkir á þessum að-
alveg um helgar þegar umferð-
in er mest. Svona er ástandið,
þrátt fyrir að tveimur billjón-
um dollara hafi verið ausið í
nýlagnir vega síðan árið 1945.
Með hverjum degi þenja nýir
aðalvegir sig yfir stærri og
stærri landflæmi og kafna svo
stuttu síðar í hraðvaxandi um-
ferð, sem þeir sjálfir og vax-
andi þörf skapa. Claiborne Pell
öldungadeildarþingmaður frá
Rhode Island sagði eitt sinn: „Það
verður bráðum eins ástatt fyrir
okkur eins og þeim í Los Ang-
eles, þar sem helmingur af yfir-
borði miðbæjarins er upptekinn
vegna bílaumferðar eða geymslu
fyrir bíla.
Umferðin í lofti er álíka á
vegi stödd. Síðan heimsstyrjöld-
inni lauk hefir yfir einni billjón
dollara verið eytt vegna flug-
mála í Norð-austurganginum
einum. Þó er það svo að á mestu
annatímunum eru flugvellirnir
að kafna í umferð flugvéla, sem
eru að koma eða fara, ekki síður
en þjóðvegirnir í bílaumferð-
inni. ITmferðaspár segja að loft-
umferð muni aukast um 170%
til ársins 1980 en það er hraðari
aukning en búast má við að
framfarir í þjónustu á jörðu
niðri muni taka á sama tíma.
En þar með er ekki allt sagt.
Umferðarerfiðleikar á vegum eru
farnir að draga alvarlega úr
notagildi flugsamgangnanna.
Flugið frá New York til Wash-
ington tekur aðeins rúma
klukkustund.
En um helgar, þegar umferð-
in er mest, getur það tekið
tveggja og hálfrar stundar erf-
iðan bílakstur að komast út á
flugvelli borganna eða af þeim.
Og svo eru það auðvitað járn-
brautarlestirnar, skröltandi, ó-
stundvísar, óhreinar og enn læð-
ast þær áfram á sama hraða,
sem náðist fyrir aldamót.
Skammt er síðan að járnbrautar-
lestir voru þýðingarmestu sam-
göngutækin ef komast átti frá
einni borg til annarrar. Nú í dag
er hlutur járnbrautanna aðeins
3% af ferðamannafjöldanum.
Þetta er léleg frammistaða, jafn-
vel þótt tekið sé tillit til sam-
keppni bílanna.
Nú eru þó sérfræðingar farnir
að gera sér vonir um að af öllum
Framhald á bls. 28.
__________________________________/
Svona einfaldur er langhreyfillinn.
Sígaretturnar, sem allir hafa beðið
eftir eru nú loks á markaðnum,
BSDJUM UM BL3CK & WHITE
MARCOVITCH • PICCADILLY
LONDON
TRELLEBO RQ
er vörumerki og heiti ó sænskri framleiðslu fró A. B. Trelleborg.
Fró þessu firma höfum vér m. a. ó lager hjó oss:
Vatnsslöngur
Loftslöngur
Sogbarka
Dæluslöngur
Loftbarka
Viftureimar
Kílreimar
Gólfflísar
Veggflísar
Listar í gólf, tröppur
og handrið
Gúmmímottur
Presenninga
Hjólbarða fyrir
fólksbifreiðir
Lyftara
Tengivagna
Bifhjól
Hjól fyrir allskonar
tengivagna
Útvegum með stuttum fyrirvara alls konar specialslöngur og margt
fleira.
Ath. Trelleborg er í Suður-Svíþjóð og þvi góðar samgöngur við Kaup-
mannahöfn.
Góðfúslega leitið upplýsinga.
VIKAN 26. tbl. Q