Vikan - 30.06.1966, Síða 15
{] Farah drottning hefur
nú eignazt annan son. Hún
er stöðugt hrædd um að
eitthvað komi fyrir eigin-
mann sinn og börnin.
O Götuceirðir eru mjög
algengar í Teheran. Lög-
reglan reyiiir að lialda ó-
róaseggjunum í skefjum.
það hefði tekið að murka úr
henni lífið.
En sú staðreynd að ekki voru
fleiri fangelsaðir á eftir, sýnir að
hún hefur látið lífið, án þess að
segja frá félögum sínum.
Það var engin orðsending með
líkinu, það var sýnilega ætlazt
til að við vissum hvaðan þessi
hótun kom.
Þegar maður hefur orðið sjón-
arvottur að afleiðingum svo
voðalegs hryðjuverks, getur mað-
ur með góðri samvizku dæmt til
dauða, þá sem standa fyrir svo
ógnvekjandi verknaði og þá sem
fá það að erfðum að halda áfram
á þessari braut. Þegar maður hef-
ur séð það sem ég hefi séð, get-
ur maður með köldu blóði, drep-
ið mann eins og keisarann og þá
fjölskyldu sem stendur að baki
hans.
Ég veit ekki og geri heldur
ekki kröfu til að vita hvort keis-
arinn veit um öll þau hryðjuverk
sem framin eru í hans nafni, en
ég geri kröfu til þess að hann
viti hvað fram fer í ríki hans.
i
,
■O Farah drottning reynir að
brosa, þegar hún kemur fram
opinberlega, cn hak við hrosiB
lcynist hræðslan.
$ Þau eru í hættu hvar sem þau
fara, en það er reynt af alefli
að vcrnda þau fyrir árásarmönn-
um.
En þó okkur finnist viðbjóðslegt
að myrða konur og börn, erum
við samt sammála um það að
Reza og Ashraf verða að hverfa,
til þess að Pahlevi-ættin líði und-
ir lok og íran geti orðið frjálst
lýðveldi, og að þjóðin þurfi ekki
lengur að lifa í ótta við leyni-
lögregluna og viðbjóðslega fanga-
klefa.
í desember í fyrra var ég í
leyni heima í Teheran. Þá fengu
tvær fréttastofur sanna sögu um
afdrif ungrar stúlku, sem var
sendiboði í neðanjarðarhreyfing-
unni. Hún var tekin til fanga af
leynilögreglunni, þegar hún var
á leiðinni á leynifund með sex
félögum okkar. Hún var aðeins
átján ára, mjög falleg og við
héldum að hún væri síðasta
manneskjan sem gæti legið undir
grun. Við vissum ekki hvað gert
var við hana, en kvöld nokkurt,
sex dögum eftir handtöku hennar,
var númerslausum bíl ekið eftir
mjórri götu í Teheran, þar sem
börn voru að leik í göturæsinu,
nokkrum metrum frá þeim stað,
þar sem hún hafði verið tekin
til fanga. Böggli var kastað út úr
bílnum og var það lík unga
sendiboðans.
Það væri læknaskýrsla upp á
margar síður að telja upp öll þau
meiðsli, sem voru sjáanleg á
þessum líkama, læknarnir gátu
aðeins gizkað á hve langan tíma
Siðspilling, fyrirlitning á
mannlegum réttindum, fangelsun
þeirra sem voga sér að gagnrýna,
eru þau öfl sem stuðla að því
að neðanjarðarhreyfingar, eins
og sú sem ég tilheyri verða til,
og halda lífinu í henni, þar til
keisaranum og þeim sem hljóta
að erfðum vald hans, verður út-
rýmt. Þeim verður ekki sýnd
miskunn, frekar en þeim okkar
sem til næst, er sýnd miskunn.
Við höfum farið þess á leit að
drottningin yfirgefi íran, við eig-
um ekkert útistandandi við hana,
og þegar keisarinn deyr er ekki
nauðsynlegt að hún deyi með
honum.
Framhald á bls. 34.
VIKAN 26. tbl. J5