Vikan - 30.06.1966, Síða 16
EFTIR
EYRANU
THE SHADOWS
BREGÐA Á LEIK.
Margir muna eflaust eftir laginu
„Rhythm and Greens", sem The
Shadows gerðu vinsælt fyrir
tveimur árum. Lagið var nokkuð
óvenjulegt og í öðrum stíl en The
Shadows spila venjulega, enda var
hér aðeins um skopstælingu að
ræða á þeirri tegund tónlistar, sem
nefnist „Rhythm and Blues". Lag-
ið var úr samnefndri kvikmynd,
sem The Shadows léku í, sannkall-
aðrí grínmynd, eins og þessar
myndir úr kvikmyndinni bera með
sér. Komið hefur til tals, að þessi
kvikmynd, sem er aðeins 30 mín-
útur að lengd, yrði sýnd hérlend-
is ásamt einhverri annarri bítla-
kvikmynd, og er vonandi að sú
hugmynd eigi eftir að verða að
veruleika.
Sjö - nfu - þrettán
Hljómsveit með íslenzkrí,
ffinnskri, og danskrl áhöln
Hliómsveit, sem nefnist ,,Seven-nine-thirteen'' hefur getið sér gott orð
ó Norðurlöndum. Hljómsveitina skipa tveir Danir, einn Finni og ís-
lendingur, Ragnar Guðmundsson. Ragnar leikur á rhythmagítar og það
fylgir sögunni, að hann eigi mestu fylgi að fagna hjá stúlkunum! Leif
Rasmussen, sem er Dani, leikur á trommur, Göran Jussi, Finni, leikur á
sólógítar og Daninn Leif Stoiholm, sem talar sænsku, finnsku, þýzku og
ensku, leikur á bassa og er aðalsöngvari hljómsveitarinnar.
Þeir félagár hafa um eins árs skeið ferðazt um Noreg, Svíþjóð og Dan-
mörku og hvarvetna hlotið hinar beztu viðtökur. Þeir eru nú i Danmörku,
þar sem þeir hyggjast leika inn á plötu.
Hvar sem piltarnir hafa komið, hefur bíll þeirra vakið hina mestu at-
hygli, enda er hann engum öðrum líkur. Bíllinn hefur fylgt þeim allt frá
því þeir hófu að leika saman. Hann er allur útkrotaður í nöfnum, hjört-
um og alls konar krúsidúllum, sem bðdáendur hafa teiknað — einkum
með varalit. Speglar fyrirfinnast engir á bílnum, því að aðdáendurnir
hafa haft þá á brott sem minjagripi. Piltarnir hafa oftar en einu sinni
fest upp nýja spegla, en þeir hafa óðara verið rifnir af. Það var álitleg
fjárupphæð, sem hljómsveitin þurfti að borga í sektir af þ>essum sökum á
fyrstu mánuðunum, en að lokum skildi lögreglan, hvernig í pottinn var
búið og síðast þegar þeir voru í Finnlandi óku þeir um í bílnum með bréf
upp á vasann frá finnsku lögreglunni um að þeir mættu aka bílnum —
þrátt fyrir ýmislegt, sem á hann vantaði til þess að ökuhæfur gæti talizt!
Hljómsvcitin ,.Seven-ninc-thirtccn“. — Ragnar Guðmundsson er lengst til vinstri.
UeðrabrioOi
Þegar Sonny og Cher sendu frá sér
lagið „What Now My Lovc“ grunaði
fáa, að það ætti eftir að ná vinsæld-
um. í sr.nnleika sagt voru flestir orðn-
ir dauðleiðir á söng hjúanna og bar
þar einkum tvennt til. í fyrsta lagi
voru lögin, scm Cher samdi, svo lík
hvert öðru að aðdáendaliðl hjónanna
var farið að þykja lítið í þau varið,
þegar fram í sótti. Hin ástæðan var sú,
að þau sendu frá sér plötur slnar með
allt of stuttu millibili. Stundum voru
fjórar og fimm nýjar plötur sungn-
ar af þeim í gangi I einu — það var
plata mcð Chcr, plata með Sonny,
plata með báðum, þannig að flestum
þótti orðið nóg komið af þvi góða.
Að lokum rak að því að þau hurfu
alveg af sjónarsviðinu, og töldu nú
flcstir að dagar þeirra í sviðsljósinu
væru taldir. En Chcr var ckki af baki
dottinn. Tveimur mánuðum eftir að
nafn þeirra hvarf af vinsældallstanum
brezka sendu þau frá sér lagið „What
Now My Love“ og þar með var gæfu-
hljólið cnn tekið að snúast. Um svip-
að lcyti kom út lagið „Bang, Bang“,
scm Cher söng ein — en það hitti líka
óðara í mark.
Scnnilega bcnda þessi óvæntu vcðra-
brigði til þess, að gömlu hjónunum
hafi tekizt að koma bát sínum á rctt-
an kjöl — en það er aldrei að vita,
hvenær syrtir að á ný!
Gunnar. Erlinuur. oo The Escorts
Mannaskipti i þeim gömlu og grónu hljómsveitum, sem arkað hafa eftir frægð-
arbrautinni árum saman, eru nú orðin nokkuð tíð. Nýlega sagði Ralph Ellis sig
úr hljómsveitinni The Swinging Iilue Jcans. Ralph var vinsælasti limurinn i
þessari vinsælu hljómsvcit — kannski vegna þess, hve keimlikur hann var John
Lennon. Gítarleikarinn Terry Silvester úr hljómsvcitinni The Escorts er nú
kominn i hans stað, líflegur og skcmmtilcgur piltur. Á þessari mynd sjáum við
Terry lengst til hægri, ásamt félögum sínum í The Escorts, Gunnari Þórðar-
syni og Erlingi Björnssyni. Myndin er tckin í Cavern klúbbnum i Liverpooi
haustið 1964. The Escorts er nú orðin þekkt hljómsveit í Brctlandi og hafa plöt-
ur þeirra komist á vinsældalistann. Terry sagði okkur, að þeir féiagar, scm all-
ir koma úr sama skóla, hefðu keypt nafnið The Escorts af annarri skólahljóm-
sveit. Verðið? Þrjár bækur og fótbolti!
T- »