Vikan - 30.06.1966, Qupperneq 17
TROMMIIR
Hér birtast nokkur heilræði frá
sex þekktum trommuleikurum til
nýgræðinga í þeirri stétt. Það er
athyglis vert, að allir vara þeir
byrjendur við að kaupa nýtt og
dýrt trommusett þegar í byrjun,
því að trommusettið er sennilega
dýrasta hljóðfærið í hljómsveit-
inni, ef vel á að vera. Ýmsar
fleiri þarfar ábendingar eru í
þessari grein, sem er hin síðasta
í greinaflokk ætluðum byrjend-
um í gítarspili og trommuleik.
RINGO
$TARR
beatles
Ef trommuleikari hefur hug á að leika
með stórri hljómsveit, vcrður hann
að geta lesið nótur. Sjáifur hata eg
nótnalestur. Maður cr að spila það,
sem cinhver annar hcfur skrifað. Það
cr ekki maður sjálfur. Ráð mitt til
þeirra, scm langar til að spila mcð
hljómsveit í okkar stíl, er cinfalt. Eyð-
ið ekki mánuðum í að æfa ykkur f
heimahúsum. Rcynið heldur að koinast
í hljómsveit þegar í stað. Það fer mik-
ið í taugarnar á mér, þegar tromm-
arar í bít-hljómsveitum ímynda sér
að þeir séu að spila jazz. Reynið held-
ur að cinbeita ykkur að „bítinu“ og
gerið ykkur ljóst, að til þess er ætl-
azt af ykkur.
WATTS
ROLLING
STONES
Aðalatriðið er að fá gott „bít“ og nota
hassatrommuna mikið. Ég nota „hi-
hattinn" mikið og það gerir Ringo
Iíka. Ef rólegur kafli er í iaginu, spil-
aðu þá á „hi-hattinn“ lokaðan. Ég
nota þunga kjuða, þvi að ég spila af
talsverðum krafti. Þegar ég stilli
skinnið á snerlinum. hef ég það frem-
ur slakt. Mörgum vex í augum, hvc
dýr trommusett cru, cn ef maður
kaupir hið bezta, þarf maður auðvit-
að að horga fyrir það.
CHRIS
CURTIS
SEARCHERS
Ég vildi ráðleggja byrjendum í
trommuleik að hlusta vel á hljóm-
plötur. Þannig lærði ég á trommur.
Á þann hátt getur maður smám sam-
an öðlazt cigin stíl og tækni. Þegar
þú kaupir þér trommusett í fyrsta
skipti, kauptu þá auðvitað ódýrt sett.
Það er ekki hyggilegt að kaupa dýrt
sett meðan maður er að þjálfast. Það
er mjög mikils um vert fyrir tromm-
ara i ,,bít“-hljómsveit að spila ekki í
jazz stíl. Ef þú reynir að blanda þess-
um tvcimur stílum sainan, muntu
fljótt komast að raun um, að það gcng-
ur ckki. Annars veit ég ekki, hvers
vegna ég ætti að gefa öðrum ráðlegg-
ingar varðandi trommulcik!
AVORY
KINKS
Ég byrjaði að leika mcð hljómsveit,
þegar ég var þrettán ára, og hafði þá
aðcins sncril til að slá í. Það var ekki
fyrr en ég var orðinn 16 ára, að ég
fékk tilsögn. í trommusetti minu eru
snerill, bassatromma, tvö „tom-to:n“,
„hi-hattur“ og tveir simbalar — 20
tomma og 18 tomma. Ef byrjandl hef-
ur ckki cfni á að kaupa allan þcnnan
útbúnað strax, ætti hann að kaupa
sncrilinn fyrst. Tom-tom trommurn-
ar skipta minnstu máli. Sjálfur nota
ég mjög þunga kjuða, þar sem músik-
in okkar krefst annað hvort þungra
kjuða eða sterkra handleggja. Þegar
ég æfi mig, nota ég litla trommu á
stærð við tamborínu. Innan i henni
er kvoðugúmmí, cn venjulegt trommu-
skinn er strekkt yfir.
Framhald á bls. 45.
Ep fapið
um Elvis
uppi á
tincflinum?
Ef þú ert átján ára núna, hef-
ur þú verið um það bil 10 ára,
þegar Elvis Presley stökk fyrst fram
á sjónarsviðið og olli slíkum um-
brotum með söng sínum og tilheyr-
andi mjaðmasveiflum, að annað |
eins hefur ekki þekkzt í þessari ver-
öld. Sennilega veiztu lítið um Elvis
karlinn, ef þú ert bara átján.
Því að nú er Elvis orðinn tiltölu-
lega gamall og kannski hrukkótt-
ur í ofanálag. Það vita fáir, því að
við fáum aðeins að sjá hann í
kvikmyndunum og þá hefur hann
alltaf tommuþykkan farða á and-
litinu. En þótt árin færist yfir hann
virðist hann alltaf sami sæti strák-
urinn.
Hér eru nokkrar staðreyndir um
Tveir
þekktir
Það væri synd að segja, að Pétur Öst-
lund hafi verið „bítlalegur", þegar
hann byrjaði að leika með Hljómum.
Þessi mynd cr tekin um það leyti —
nánar tiltekið við upptöku á fyrstu
hljómplötu Hljóma. en þá var Pétur
nýkominn í spilið. Hjá Pétri stendur
nafni hans Steingrímsson, sem er ann-
að hjól þáttarins „Á nótum æskunn-
ar“. Pétur hefur verið magnaravörður
hjá Útvarpinu um nokkurt skeið og
má segja, að hann hafi sérhæft sig í
hljómsveitarupptökum. Það er mikið
vandaverk að koma fyrir hljóðnemum
við trommurnar, eins og svipur Pét-
urs á þessari mynd ber raunar með
sér, enda er eins og hann vilji segja:
Skyldi nú hljóðneminn vera óhultur
hér fyrir höggum hans nafna míns á
trommurnar?
Ella
Hann er 31 árs gamall, fæddur
8. janúar 1935 í Tupelo í Missi-
sippi fylki. Hann átti tvíburabróð-
ir, en sá lézt við fæðingu. Þegar
Elvis var tveggja ára, komu söng-
hæfileikar hans fyrst í Ijós. Þar
sem hann sat í kjöltu móður sinn-
ar í kirkju einni, tók honum að leið-
ast þófið undir ræðu klerks og tók
þá til bragðs að laumast í burtu.
Hann stillti sér upp hjá kórnum og
söng með fullum hálsi. Að sögn
fjölskylduvina, sem muna þennan
atburð, gat hann auðvitað ekki lært
sálmaversin utan að í þann tfð, en
hann raulaði sálminn og gaf hin-
jm kórlimunum alls ekkert eftir.
Elvis varð snemma trúhneigður
og kirkjurækinn og óx úr grasi við
iálmasöng og orgelspil. Hann var
18 ára, þegar hann lauk námi. Þá
fékk hann starf f leikhúsi við að
vfsa til sætis,- síðar starfaði hann
sem vörubflstjóri og hafði í laun
11 dollara á viku.
Elvis vakti athygli á sér sem
söngvari með nokkuð óvenju-
legum hætti. Þegar móðir hans átti
eitt sinn afmæli, söng hann lag
inn á plötu til þess að gefa henni
í afmælisgjöf. Lagið hét „That's
All right, Mama". Segja má, að
hann eigi allan frama sinn þessari
hugkvæmni að þakka. Sam nokkur
Philips, fulltrúi hljómplötufyrirtæk-
isins Sun Records, heyrði af tilvilj-
un sönginn hjá pilti og skrifaði
nafnið hans í minnisbókina sína.
Ári síðar, þegar Sam var í hraki
með söngvara, dró hann fram minn-
isbókina og sá þá nafnið Elvis
Aaron Presley. Hann mundi strax
eftir pilti og kallaði hann á sinn
fund. Árangur af viðræðum þeirra
varð sá, að lagið, sem Elvis hafði
sungið á plötu til þess að gefa
móður sinni, var nú hljóðritað aft-
Framhald á bls. 33.
VIKAN 26. tbl. YJ