Vikan - 30.06.1966, Qupperneq 21
FÁBJÁNAR MEÐ
ÓSKIUANLEGA
SÉRGÁFU
sérstöku, en eru algerlega óvitandi um allt ann-
að sem venjulegu fólki er gefið. Oft er þetta
sérstök stærðfræðigófa eða hæfileiki til að leika
ó eitthvert sérstakt hljóðfæri eftir eyranu. Þetta
sambland af snilligófu og algerri vöntun ó öðr-
um sviðum er sem betur fer miög sialdgæf. Þó
hafa margar rannsóknastofnanir fengið nokkur
dæmi til athugunar. Georg og Charles eru tókn-
ræn dærjti upp á þá sem hafa þessa sérstöku,
einhæfu hæfileika. Það er ómögulegt að segja
hversvegna hugur þeirra beinist eingöngu að
almanaks-útreikningi. Það getur verið vegna
þess að þeir þekkja vikudagana og beita allri
sálarorku sinni til að muna það sem skeður hvern
dag. Georg og Charles eru lifandi orðabækur á
þessu sviði. Þeir muna allt sem skeð hefur á
hverium degi síðustu 10 árin.
Þessir tvíburar líta út eins og 14—16 ára ung-
lingar. Þeir eru smávaxnir (5 fet og 5 þumlurig-
ar), grannvaxnir og taugaóstyrkir og báðir eru
mjög nærsýnir. Andlegur þroski þeirra er állka
og hjá 8—10 ára börnum, og þeir eru daglega
ávarpaðir sem „drengir".
Þeir hafa þroskazt eitthvað andlega við veru
sína á rannsóknarstofnuninni, greindarvísitala
þeirra hefur hækkað úr 30—40 stigum í 60—70
stig.
Að sumu leyti eru þeir Georg og Charles í sér-
flokki. Þeir eru einustu eineggja tvíburar sem
vitað er um, sem hafa þessa dagatalsgáfu á sama
stigi, þ.e. alveg jafnokar. Það sem er ennþá at-
hyglisverðara er að þeir sýna svo stórkostlega
hæfileika á þessu eina sviði sínu, að fáar fyrri
rannsóknir á þessu sviði hafa við rök að styðj-
ast.
Það verður að byrja á nýjan leik, það verður
að endurskoða gamlar skýringar, segir dr.
William A. Horwitz, aðstoðar-forstöðumaður
rannsóknardeildarinnar. — Áður héldum við að
svona sérstakir hæfileikar kæmu í Ijós, væri það
vegna þess að ofvöxtur væri í ákveðnum minn-
isfrumum, eða mjög yfirgripsmikið sjónminni.
En tvíburarnir eru ekkert upp á prentuð dagatöl
komnir, hæfileiki þeirra nær langt út yfir þau
tímabil sem nokkur dagatöl ná til. Og þar sem
þeir geta ekki haft nein prentuð dagatöl til minn-
is, hljóta þeir að hafa myndað sér einhverja á-
kveðna reglu til útreikningsins.
Stundum segja tvíburarnir að þeir „sjái" á-
kveðin dagatalsblöð. Þegar þeir eru beðnir að
gefa einhverja skýringu á þessu, verða þeir mjög
hugsandi á svipinn og Georg hefur oft skyggt
fyrir augun með hendinni. Hvernig sem farið er
að hafa læknarnir ekki með nokkru móti komizt
á snoðir um það hvernig þeir fara að. Það eru
auðvitað til ákveðnar leiðir til að finna nákvæm-
lega út ákveðnar dagsetningar, en þær eru svo
flóknar að það er aðeins á færi mestu stærð-
fræðinga. Jafnvel þeir sem vinna að staðaldri
við slíka útreikninga geta ekki svarað jafnfljótt
og tvíburarnir og mjög fáir eru færir um að
reikna út tímabil sem nær yfir svo mörg tugþús-
und ára.
— Segið Georg og Charles hvenær þér eruð
fæddur. segir læknirinn við gest á sjúkrahúsinu.
— Ég er fæddur 20. marz árið 1938, segir
gesturinn.
— Það var sunnudagur, kemur í kór frá bræðr-
unum. — Og næst ber afmælisdag þinn líka upp
á sunnudag, segir Georg.
— Hvenær á ég svo aftur afmælisdag á sunnu-
degi?
- Árið 1977, 1983, 1988 .. .
Svörin komu innan þriggja sekúndna, oft
heyrðist aðeins á undan í Georg og eins og berg-
mál frá Charles, einni sekúndu síðar.
— Hvenær verður afmælisdagur minn á sunnu-
degi, á næstu öld?
— Árið 2005, svarar Georg.
— Hvernig veiztu það? spyr læknirinn.
— Við vitum það, við vitum það, svara báðir
tvíburarnir samtímis.
— Já, en hvernig. Var það einhver sem kenndi
ykkur það?
— Mamma, svaraði Georg.
— En mamma ykkar getur þetta ekki, and-
mælir læknirinn, — svo hún getur ekki hafa
kennt ykkur það.
— Þetta er í höfðinu á mér og ég get þetta,
segir Georg. Og þar við situr.
Þeir kunna ekki auðveldustu reikniaðferðir
(20—10 kemur út með 30 hjá þeim og þegar
þeim er sagt að það sé rangt, þá segja þeir 0),
en þeir kunna sannarlega frádrátt, þegar um
dagatal er að ræða.
— Hvenær fæddist Georg Washington?
Svarið kom samstundis: — 22. febrúar, 1732.
— Ef hann væri á lífi árið 2000, hve gamall
yrði hann þá á afmælisdag sinn?
Georg svarar: — Hann yrði tvö hundruð og
sex . . . sextíu og átta ára. Svarið kom á átta
sekúndum.
Tvíburarnir geta greitt úr þeim flækjum sem
hlaupárin orsaka og þeir gera það hárrétt. Þeir
vita að hlaupár er fjórða hvert ár og skilja það,
en ef þeir rekast á tölustafinn 4 í einföldu reikni-
dæmi, geta þeir hvorki bætt honum við eða dreg-
ið frá öðrum tölum.
Þegar Georg og Charles eru spurðir um dag-
setningu páskadaga, treysta þeir minni sinu, því
að þeir hafa lagt sig fram til að læra hvaða
mánaðardag páskarnir bera upp á næstu árin.
Þegar þeir eru spurðir um dagsetningar sem ná
út yfir það tímabil, treysta þeir töflum úr „The
Worlds Almanac", (mánaðardaga frá 1901 —
2100). Báðir piltarnir kunna töflurnar úr þeirri
bók og geta munað þær og notað með töluverð-
um hraða. Það er táknrænt fyrir „fábjána" af
þessu tagi að þeir gleyma fljótt því sem kannske
hefur verið hægt að kenna þeim, muna aðeins
það sem þeir „kenna" sér sjálfir. Þetta gæti ver-
Framhald á bls. 41.
Þeir eru mjög hreyknir yfir því að hafa dag-
leg skyldustörf. Georg hjáipar tii við að
skipta á rúmunum og Charles sér um dreif-
ingu dagblaðanna innan stofnunarinnar.
VIKAN 2«. tbl.