Vikan - 30.06.1966, Blaðsíða 25
ar þeir geystust fram og riddararnir tveir voru likastir vindinum sjálf-
um, sem feykti skikkjunum aftur af þeim.
Sem andstæöa viö þennan léttilega og marglita hóp, sá hún til vinstri
hóp af kristnum þrælum, þöktum svita og skít meö hár og skegg í
flókum, tötrarnir rifnir og tættir, svo í ljós komu fætur meö rauðum
rákum eftir svipur. Þeir báru með sér gríðarstóran koparpott, sem
heföi varla veriÖ hrikalegri, þótt hann heföi verið sóttur beint á elda
helvítis. Upprunalega hefði hann verið ætlaður til að brugga í romm
í Ameríku, en sjóræningjar frá Salé höfðu komizt yfir hann skammt
frá Madeira og gefið þjóðhöfðingja sínum. Þrælarnir höfðu nú dragnazt
með hann tólf mílur út fyrir Meknés og veltu því fyrir sér í örvænt-
ingu, hvort þeir þyrftu að fara lengra.
Hersingin kom að krossgötum, þar sem nokkur pálmatré uxu við
hliðina á brunni. Vagnarnir með viðinn og skógarhöggvararnir voru
rétt komnir þangað. Skammt frá þeim, á rauðum palli, sat maður með
krosslagða fætur og við hlið hans voru tveir litlir negrar, sem svöl-
uðu honum með blævængjum. Osman Faraji fór af baki og gekk í
áttina til hans með bukki og beygingum, og endaði með að kasta
sér flötum með höfuðið við fætur hans. Maðurinn var i gulri skikkju,
vafalítið háttsettur höfðingi, og svaraði með því að snerta enni sitt
og öxl og síðan lagði hann höndina á höfuð Osmans Farajis. Síðan
reis hann á fætur og yfirgeldingurinn gerði eins.
Við hlið Osmans Farajis virtust allir menn litlir. Höfðinginn sem var
liærri en meðallag náði honum varla í öxi. Klæði hans voru einföld;
við skikkja og hann hafði brett upp ermarnar, svo handleggir hans
voru naktir, og yfir sér hafði hann axlaklæði með dekkri gulum lit
og á þvi var hetta, sem endaði í svörtum dúski. Á höfði hans var griðar-
stór rjómagulur vefjarhöttur úr mússulíni. Þegar hann kom nær, sá
Angelique að þetta var ungur maður og andlitsdrættirnir minntu mjög
á svertingja, og dökkt hörundið glampaði eins og gljáfægður viður
yfir kinnbeinum hans og enni og fram eftir nefinu. Stuttklippt, svart
skegg, óx á fagurskapaðri höku hans. Hann tók að hlæja hátt og glað-
lega, þegar hann sá sjö úr liði Osmans Faraji nálgast, og hver um
sig hélt í taumana á hesti, sem Mezzo-Morte hafði sent soldáninum
af Marokkó. Svertingjarnir köstuðu sér flötum til jarðar.
Angelique hallaði sér í áttina að einum geldinganna, feitum óhrjá-
legum karli að nafni Rafai, og hvíslaði að honum á arabisku:
— Hver er þetta?
Augu negrans galopnuðust i undrun: — Hvað þá? Þetta er hann.. ..
Mulai Ismail, höfðingi vor. Svo bætti hann við, og augun í honum
snerust eins og skopparakringlur. — Hann hlær, en við ættum að fara
varlega, því hann er í gulu, og gult er litur reiðinnar.
Þrælarnir, sem klöngruðust með pottinn, stundu allir í kór: — Hvar
eigum við að láta pottinn, herra? Hvar eigum við að láta pottinn?
Mulai Ismail benti þeim að setja hann á skíðlogandi bál, sem rétt
í þessu hafði verið kveikt. Olíu og fitu var kastað í pottinn, til að
flýta fyrir að tjaran bráðnaði. Næstu klukkustundirnar voru gjafirn-
ar frá Alsír dregnar fram og sýndar soldáninum.
Það var farið að rjúka af tjörunni í pottinum, þegar ærandi gnýr
tambúrína, múskettuskota og skerandi gráts tilkynnti komu hins sigr-
aða uppreisnarmanns.
Frændi soldánsins, Abd el Malek, var jafn gamall frænda sínum, sem
hann hafði verið að berjast gegn, það er að segja mjög ungur. Hann
sat á múldýri með hendurnar bundnar fyrir aftan bak. Á eftir hon-
um kom undirforingi hans, Mohammed el Hamet, sömuleiðis bundinn
á múldýr og síðan allir undirmenn hans, reknir áfram af hermönnum,
sem höfðu sigrað þá á flóttanum. Konurnar grétu og klóruðu sig I
framan með löngum, beittum nöglum.
Mulai Ismail gaf merki um, að honum yrði færður svarti hesturinn,
og stökk á bak. Allt í einu var hann eins og gerbreyttur. Hann virtist
tútna út og verða stærri og sérkennilega léttur, þegar axlaklæðið
lyftist og bærðist fyrir golunni. Hann lét hestinn prjóna nokkrum
sinnum, andlit hans glampaði eins og brons móti djúpbiáum himninum,
og þar sem skugga bar á í andlit hans glitraði á hörund hans eins.og
grátt, bráðið stál. Undir kolsvörtum bogadregnum augabrúnum, varð
augnaráð hans nístandi og hræðilegt. Hann mundaði kastspjótið og
hleypti hestinum á stökk, þar til hann nam staðar frammi fyrir hlekkj-
uðum óvinum sínum.
Abd el Malek var kominn af baki og hafði kastað sér endilöngum
á jörðina. Konungurinn studdi lensu sinni við hann. Hinn óhamingjusami
prins leit hvað eftir annað I áttina að pottinum, þar sem bikið sauð
nú og mallaði og á skógarhöggvarana og óttinn gagntók hann. Hann
var ekki hræddur við dauðann sjálfan, en Mulai Ismail var frægur
fyrir skeytingarleysi, sem hann sýndi óvinum sínum.
Abd el Malek og Mulai Ismail höfðu verið aldir upp saman í sama
kvennabúri, og voru báðir komnir út af prinsi, sem rakti ættartölu
sína aftur til Múhameðs. Þeir voru tveir, litlir, herskáir úlfar, sem
enginn þorði að aga. Skaðlausasta skemmtun þeirra var að blása
örvum að kristnum þrælum, þar sem þeir voru að störfum. Sama dag-
inn stigu Þeir báðir á hestbak í fyrsta sinn, saman voru þeir, þegar
þair iögðu sin fyrstu ljón að velli með spjótum, og saman tóku þeir
þátt í árásum á Tafilalet. Þeir höfðu unnazt eins og bræður, þar til
þjóðflokkarnir í suðri og í Atlasfjöllum höfðu vakið athygli Abd el
Maleks á þeirri staðreynd, að réttur hans til krúnu Marokkó var jafn
mikill og réttur sonar súdanskrar frillu. Abd el Malek, sem var aí
hreinu márisku blóði og kabilískri ætt, hafði svarað kalli fólks sins.
Til að byrja með leit betur út fyrir honum en frænda hans, en þrá-
kelkni Mulai Ismails, hernaðarlist og valdsmannleg aðferð hafði að
lokum fært honum sigurinn.
— Fyrir ást Allah! hrópaði Abd el Malek: — Gleymdu ekki, að ég
er frændi þinn.
— Þú áttir auðvelt með að gleyma því, hundurinn!
— Mundu, að við vorum eins og bræður, Mulai Ismail.
— Ég drap tvo bræður mína með eigin höndum og lét drepa tiu
í viðbót. Hverju máli skiptir mig einn frændi?
— Fyrir ást spámannsins, fyrirgefðu mér.
Konungurinn svaraði ekki. Hann gaf merki um að taka prinsinn
og neyða hann upp í vagninn. Tveir varðmenn stukku á hann, annar
tók um hægri handlegg hans, hinn um vinstri olnboga og rétti hendina
út yfir fjalhögg.
Konungurinn kallaði á einn skógarhöggsmanninn og skipaði honum
að höggva höndina af. Maðurinn hikaði, því hann var einn af þeim,
sem í leynum hjarta síns hafði óskað Abd el Malek sigurs. Þegar ungi
prinsinn væri dáinn, yrðu vonir ættflokkanna um landsyfirhöfuð af
göfugu ætterni, að engu gerðar. Hinn auðmjúki skógarhöggsmaður
kom ekki upp um tilfinningar sínar, en hann vissi, að auga Mulai
Ismails greindi leyndustu hugsanir hans. Hann tók að klöngrast upp
í vagninn, nam svo staðar, tók eitt skref aftur á bak og lýsti Því yfir,
að hann myndi aldrei höggva höndina af manni af svo göfugri ætt,
frænda sjálfs soldánsins. Fremur myndi hann láta höggva af sér höfuðið.
—- Þá það! hrópaði Mulai Ismail. Hann dró bjúgsverðið úr slíðrum,
og þeytti höfðinu af skógarhöggsmanninum með einu höggi, sem kom
upp um þjálfun hans í þessum leik.
Maðurinn féll til jarðar, og höfuðið kom niður skammt frá, en blóð-
ið spýttist yfir heitan sandinn.
Annar skógarhöggsmaður var valinn, og smeykur við örlög fyrir-
rennara síns, klöngraðist hann upp í vagninn. Meðan hann var að
því, gaf konungurinn skipun um að færa börn, konur og nánustu
ættingja Abd el Maleks fast að vagninum.
— Komið hingað, sagði hann við þau, — og sjáið hvernig höndin
er höggvin af kvikindinu, sem vogaði sér að gripa til vopna gegn
konungi sínum og soldáni, og hvernig fóturinn er höggvinn af honum,
sem vogaði sér að marséra gegn honum!
Þvílík örvæntingaróp risu upp í sólheitan himininn, að þau yfir-
gnæfðu óp prinsins, þegar skógarhöggsmaðurinn þeytti af honum hend-
inni. Svo hjó hann af honum annan fótinn.
Soldáninn kom nær og sagði: — Viðurkennirðu nú, aö ég sé kon-
ungur þinn? Þú gerðir það ekki áður.
Abd el Malek svaraði ekki, heldur horfði á blóðið spýtast úr æðum
sinum. Mulai Ismail sneri aftur þangað, sem hann hafði áður verið,
og sneri ægilegu andliti sínu til himins, með þvílíkum svip, að allir
þeir sem sáu hann, stirðnuðu af skelfingu. Allt í einu lyfti hann lensu
sinni og þrýsti henni með einu höggi gegnum hjarta skógarhöggs-
mannsins.
Þegar hinn fyrrverandi andstæðingur hans sá þetta, hrópaði hann,
þótt blóðið drypi úr honum: — Sjá hversu göfugur hann er! Hann
drepur þá, sem hlýða honum, engu síður en þá, sem óhlýðnast honum.
Allt, sem hann gerir, er út i bláinn. Allah einn er réttlátur. Allah einn
er mikill.
Mulai Ismail rak upp öskur til að yfirgnæfa rödd fórnarlambsins.
Hann hrópaði, að hann hefði látið koma með ketilinn, svo svikarinn
fengi að finna fyrir ósvikinni pyndingu, en vegna Þess að hann væri
mikill og réttlátur, skyldi tjaran, sem áður átti að taka hann af lífi,
með þess í stað vera notuð til að bjarga honum. Hann hafði gert það,
sem réttilega reiður konungur átti að gera, hann ætlaði að láta Allah
um, hvort Abd el Malek lifði eða dæi. Það skyldi aldrei verða sagt um
hann, að hann hefði drepið bróður sinn, því of margt tengdi Þá hvorn
öðrum, og uppreisn þessa manns væri mesta sorg, sem hann hefði orðið
fyrir. Og þegar öxi skógarhöggsmannsins skall á fjalhögginu, var eins
og hún hefði höggvið af hans eigin hönd og fót. Þó Abd el Malek væri
ekki annað en föðurlandssvikari, sem, ef hann hefði sigrað, hefði örugg-
lega farið að á sama hátt með Mulai Ismail, samt ætlaði hann að sýna
honum miskunn.
Hnn gaf skipun um, að afhöggnum limum frænda síns skyldi dýft
ofan í sjóðandi tjöruna, til að stöðva blóðrennslið. Síðan sleit hann
samkundunni og skipaði fjórum liðsforingjum, að viðlagðri dauðarefs-
ingu, ef þeir brygðust, að flytja frænda sinn lifandi til Meknés.
Liðsforingjarnir vissu, hvaða örlög hann hafði ætlað Mohammed el
Hammet. Mulai Ismail afhenti hann hópi af litlum svertingjum, milli
tólf og fimmtán ára að aidri, sem drógu sjeikinn með sér heim að
borgarmúrunum. Enginn vissi, hvað þeir gerðu við hann, en þegar
þeir komu með hann aftur undir kvöld, var hann örugglega dauður,
og enginn af mönnum hans bar kennsl á líkið.
Mulai Ismail og fylgdarlið hans, ásamt marglitri úlfaldalest Osmans
Farajis, kom til Meknés um sólarlagsbil, í sama mund og gunnfánarnir
voru dregnir á hún á gullnum hvolfþökum mínerettanna, og kvart-
andi, en þó skipandi söngur bænakallaranna barst yfir fílabeinslita
borgina og yfir klettahæðirnar í kring, og hvarf inn i glóandi rauðan
himininn.
Svart gin borgarhliðsins gleypti hermenn og riddara, þræla og prinsa,
úlfalda og asna, svo ekkert kvikt varð eftir úti á sléttunni fyrir
nóttina. Innan borgarmúranna gleypti borgin öll mannleg hljóð —
grát, hita og ástríður.
Þegar Angelique gekk í gegnum hliðið, átti hún erfitt með að slíta
áugun frá nöktum risavöxnum þræl, sem var negldur á höndunum upp
í bogann yfir hliðinu, og ljóslokkað höfuð hans drúpti niður á bring-
una, eins og á Kristi krossfestum.
18. KAFLI
Angelique tók með höndunum fyrir eyrun til að bægja frá sér móður-
sýkislegum ópum kvenna Abd el Maleks, sem smugu um hvern gang og
Framhald á bls. 39.
VIKAN 26. tbl. 25