Vikan - 30.06.1966, Qupperneq 26
Á SÝNINGU
MYNDLISTAR
FÉLAGSINS
Myndlistarfélagið var stofnað í
Reykjavík haustið 1961. For-
göngumenn um stofnun þess voru
nokkrir hinna eldri myndlistar-
manna. svo sem Guðmundur frá
Miðdal, Gunnlaugur Blöndal,
Finnur Jónsson, Eggert Guð-
mundsscn, Ríkharður Jónsson,
Höskuldur Biömsson, Pétur Frið-
rik Sigurðsson og fleiri.
Ungir og rottækir myndlistar-
menn höfðu þá látið að sér kveða
og var lítil eining í röðum þess
eina félags. sem þá var til, unz
eldri mennirnir, klufu sig frá og
stofnuffu Myndlistarfélagið. All-
margir yngri menn hafa síðan
bætzt í hópinn Markmið stofn-
endanna var m.a. að halda árlega
sýningu sem jafnan hefur farið
fram að vorlagi og þá í Lista-
mannaskálanuni.
Þessar myndir sem hér eru
birtar sem sýnishorn, ættu að
gefa sæmilega hugmynd um
myndir félagsmanna að svo
miklu leyti sem svarthvítar
Framhald á bls. 39.
Eyjólfur J. Eyfells,
Reykjavík.
Af kynslóð elztu núlifandi
myndllstarmanna á íslandi. Til
vinstri: Þingvellir, til hægri:
Þórsmörk, hvorttveggja olíu-
málverk.
Jón E. Gunnarsson,
Reykjavík.
Viríist einna sterkastur málari í
þessum hópi. Til vinstri: Á efa
höll, olíumálverk, sem sýnir kletta-
borg. Til hægri: Á sjó, olíumynd.
Að okkar dömi bezta mynd sýn-
ingarinnar.
Sigurður Kr. Árnason,
Seltjarnarnesi.
t mikilli framför. Átti a» okk-
ar dómi næst beztu mynd sýn-
ingarinnar Lognbrim, oUu-
mynd t.h. og t.v.: Á Beykjanesi,
einnig olíumálverk.
Sveinn Björnsson,
Hafnarfirði.
Hefur oft sýnt bæði hér og í Danmörku.
Til vinstri: Huldumerm á veiðum, oUu-
málverk. Vel kompóneruð og sterk mynd.
Til hægrl: Einn á sjó, oliumálverk.