Vikan - 30.06.1966, Page 31
tengt við mittisbeltið. Farþegarnir
renna framundan því.
Spurning: Hafa rannsóknir ykkar
haft mikið að segja í sambandi við
fleiri atriði?
Svar: Jó. Tökum dyralæsinguna.
Fyrir nokkrum árum var algengasta
dánarorsökin við umferðarslys sú,
að fólk kastaðist út úr bílunum,
við árekstur, og lamdist til bana á
götunni. Læsingin hélt ekki í slik-
um tilfellum. Svoleiðis hendir siald-
an með nútíma bíla. Dyrnar hald-
ast lokaðar, og svo lengi sem fólk-
ið er inni í bdnum, þeim mun meiri
eru möguleikar þess til að sleppa án
skaða. Við höfum líka stungið upp
á og fengið framkvæmdar bygg-
ingarbreytingar á grind og mótor-
hengi, sem gerir bílinn sterkari að
gerð — og hefur meðal annars þann
tilgang að hindra það að mótorinn
ýtist inn í farþegarýmið við árekst-
ur.
Spurning: Það er oft sagt, að
betra sé að hafa mótorinn að fram-
an sem nokkurskonar stuðara. Það
kvað veita öryggi þegar tveir b(l-
ar aka saman á fullri ferð. Eruð
þér á þeirri skoðun?
Svar: Nei — langt í frá. Þvert á
móti. Þungur mótor að framan get-
ur verið stórhættulegur ef árekst-
ur verður. Hann ýtist þá gjarnan
inn í bílhúsið og getur slasað bíl-
stjóra og farþega mjög alvarlega.
Ég tel, að öruggara sé að hafa
mótorinn aftur í og að byggja fram-
hluta bílsins þannig, að hann gefi
að vissu marki eftir við árekstur,
líkt og hemilstuðari. Bygging
Chevrolet Corvair tel ég ágæta að
þessu leyti.
Spurning: Hvert er álit yðar á
Volkswagen?
Svar: Þeirri spurningu get ég ekki
svarað nákvæmlega, þar eð ég hef
ekki rannsakað þá bdategund nógu
vel. En ég hygg, að þessi bdl sé
skynsamlega byggður, þótt að mín-
um dómi sé það fráleitt að hafa
bensíngeyminn jafn framarlega og
hann er þar og um leið neðarlega.
Það ætti að færa hann eins langt
upp undir framrúðuna og mögu-
legt er, ef á annað borð á að hafa
hann að framan. En við megum
ekki gleyma því, að slysaprósent-
an af völdum bensínsprenginga og
eldsvoða er hverfandi lág.
Spurning: Hvað um framhjóladrif
með tilliti til öryggis?
Svar: Fyrir aksturshæfni flestra
bílstjóra skiptir það litlu máli. Ég
geri ráð fyrir, að flestir venjuleg-
ir bílstjórar taki ekki eftir, hvort
þeir aka bíl með framhjóladrifi eða
ekki. En ég álít, að það sé ótv(-
ræður kostur, þegar ekið er á vond-
um vegum í snjó og hálku. Sjálfur
ek ég bíl með framhjóladrifi: Olds-
mobile Toronado með 425 hest-
afla V8-mótor og sjálfvirkri skipt-
ingu.
Spurning: Eykur sjálfskiptingin
öryggið í umferðinni?
Svar: Það gerir hún auðvitað —
hún gerir að verkum að bdstjórinn
þarf minna að beita höndum og
fótum til að stýra bflnum og getur
því einbeitt athyglinni meira að
veginum.
Spurning: Skeyta þær deildir sem
ráða gerð og útliti nokkuð um hvað
þið segið, þegar þið á grundvelli
rannsókna ykkar farið fram á breyt-
ingar á bílunum? Ég á við: General
Motors er einkafyrirtæki, sem hef-
ur það að verkefni að selja bíla,
og þar sem reynsla sölumannanna
sýnir, að öryggi selur ekki, er þá
kröfum ykkar um aukið öryggi
nokkur athygli veitt?
Svar: Samkvæmt minni skoðun er
samvinna okkar ágæt. Fyrir fyrir-
tæki á borð við General Motors er
ekki um að ræða það eitt að selja
bíla; það verður að leiða þróun-
ina, bera ábyrgð á markaðinum og
starfsfólkinu. Það er hægt að ganga
að því vísu, að öllum sanngjörnum
kröfum okkar sé fullur sómi sýnd-
ur af hálfu fyrirtækisins. Þessar
deildir gefa okkur oft hugmyndir
varðandi öryggismál.
Spurning: Eruð þið einir um þess-
háttar rannsóknir ( Bandaríkjunum?
Svar: Nei, Ford er nú með svip-
aðar rannsóknir og við skiptumst
á upplýsingum við þá. Chrysler og
American Motors hafa ekki, svo ég
viti, á prjónunum að koma sér upp
tilraunabraut eins og við höfum.
Margir bandarísku háskólanna hafa
líka á vegum sfnum rannsóknar-
hópa, sem fjalla um umferðar- og
öryggismál.
Spurning: Fara engar slíkar rann-
sóknir fram á vegum ríkisins?
Svar: Nei, þær fara einungis fram
á vegum einstaklinga. Raunar má
um það deila, hvort kalla eigi rann-
sóknarstörf háskólanna opinber
fyrirtæki eða á vegum einstaklinga.
En engri slíkri starfsemi er stýrt frá
Washington.
Spurning: Hvora teljið þér betri
frá öryggissjónarmiði, amertska
bíla eða evrópska?
Svar: Ef ég ætti að lenda í á-
rekstri, þá vildi ég heldur vera í
amerískum bíl. Ég segi það ekki
einungis vegna þess, að sá evrópski
er minni, og ef stór bíll og lítill
rekast á, þá vita auðvitað allir hver
betur fer út úr því. En ég vildi l(ka
heldur sitja ( stórum bd, sem ræk-
ist á annan stóran bd, en í litlum
bd, sem rækist á annan Ktinn bíl.
Það er vegna þess, að í stóra am-
erfska bdnum er framrúðan, tækja-
borðið og dyrnar í nokkurri fjar-
lægð frá mér. [ litla evrópska bdn-
um er allt þetta fast hjá mér. Fjar-
lægð er alltaf kostur. Hún gefur
mér kannski tækifæri til að gera
eitthvað mér til bjargar.
Spurning: En hafa litlir bílar ekki
alltaf verið lægra tryggðir sökum
þess, að á einhvern hátt hafa þeir
verið taldir öruggari ( árekstri?
Svar: Jú, þannig hefur það ver-
ið, þótt undarlegt megi heita. En
síðan í febrúar í ár hafa Banda-
ríkjamenn vikið frá þeirri línu.
„Kompackt-bllarnir" (þ.e. minni
gerðirnar) — í þeim flokki eru næst-
um allir þeir evrópsku — hafa feng-
ið t(u prósent afslátt á trygginga-
gjöldunum. Einhvernveginn hafa
... það nýjasta
á gólfið kemur frá
Krommenie
Linoleum, gólfflísar og vinylgólfdúk-
ur með áföstu korki eða fílti allt hol-
lenzkar gæðavörur frá stærstu fram-
leiðendum Evrópu á þessu sviði.
Fyrirliggjandi í miklu litaúrvali.
MÁLARINN
Bankastræti 7 - Sími 22866.
VIKAN 26. tbl.