Vikan - 30.06.1966, Qupperneq 46
4
iS
Flestum konum finnst, að þær líti betur út sól-
brúnar en með vetrarlitarhátt. Augun eru skær-
ari, húðin ferskari og meira að segja hárið
er líflegra. Þess vegna geta konur líka notað
djarfari og sterkari liti á sumrin. Litir eins og
skærblátt, kirsiberjarautt, sterk-appelsínugult og
sítrónugult, sem á vetrum yfirgnæfa andlitið og
gera það muskulegt, eiga vel við sólbrúna húð
og draga fram þessi fersku sumareinkenni. Djörf
snyrting nýtur sin líka vel, sérstaklega þó á
kvöldin. Gull- og silfur í augnskugganum, svört
augnstrik, sterkir varalitir og púðurundirlag með
glitri í — allt er þetta varasamt við þreytta
vetrarhúð, en sólbrún kona getur leyft sér að
leika sér að þessu. Þótt konunni finnist, að
fallegra sé að nota hvorki púður eða púður-
undirlag að degi til sé hún vel brún, gildir
það ekki að kvöldi við rafmangsljós. Dökki lit-
urinn verður til þess að draga fram óheppi-
lega skugga í hörðu Ijósi. Það er þsss vegna
mikilvægt að draga ekki úr make-up á sumar-
kvöldum, heldur þvert á móti.
Eins og venjulega er bezt að nota fyrst ólit-
að vökvakrem á húðina, en síðan litað púð-
urundirlag, en vökvakremið kemur í veg fyrir að
svitaholurnar, sem oft eru opnari á sólbrúnni
húð, sjúgi til sín of mikið af litaða kreminu.
Veljið lit, sem líkist mest eigin húðlit, helzt
aðeins Ijósari. Ef þið eruð sólbrunnar og húð-
in rauð, er ágætt að nota svolítið gulleitt und-
irlag, sem dregur þá úr rauða litnum. Þegar
húðin er orðin vel og jafnt sólbrún getið þið
notað undirlag með glitri í, en í því er fíngert
gullduft, sem gefur húðinni sérstæðan og
skemmtilegan blæ. Það má bara ekki vera of
óberandi kringum augun og beint framan á
andlitinu, og er ágætt að draga úr glansin-
um þar með því að púðra yfir með vonjulegu
púðri. Þctt þannig gerviglans sé ekki notaður,
er rétt að hafa í huga þegar húðin er brún, að
púðra minna hliðar andlitsins en beint fram-
an á, það gefur andlitinu meira líf.
Augnskugginn er fallegur á sumrin og það
má nota sterkari liti en venjulega, og á kvöld-
in má, eins og áður er sagt, gjarnan hafa
gull- eða silfurglit í skugganum. Þær, sem nota
augnstrik í gráu eða brúnu á veturna, ættu að
reyna alveg svart á sumrin og draga það held-
ur breiðara en venjulega. Þær sem ekki hafa
þorað að nota augnstrik ættu að reyna það
meðan húðin er sólbrún, einnig er skemmtilegt
að draga örþunnt strik undir augað. Þá er
byrjað undir miðjum augasteini og dregið beint
einn millimetra út fyrir augað. Þetta stækkar
og opnar augun. Séu neðri augnhárin lituð,
stækkar það líka augað, en það þarf að gæta
þess, að húðin sé alveg þurr þar áður, ann-
ars má búast við að liturinn liggi niðri á kinn,
þegar komið er í áfangastað. Stutt augnhár
verða lengri með vissri tegund af augnháralit,
en það tekur töluverðan tíma að setja hann
á, því að þá er haldið áfram að bursta þang-
að til smáagnir setjast framan á augnhárin
og framlengja þau þannig.
Svotlítinn brúnbleikan kinnalit er stundum
heppilegt að nota á sólbrúna húð. Það gefur
andlitinu líf og gerir brúna litinn dýpri og hlý-
legri og hafi nefið brunnið eins og oft vill
verða, dregur litur á kinnunum stórlega úr roða
nefsins. Hann þarf bara að vera settur varlega
á, og gætið þess að jafna vel út brúnirnar,
Framhald á bls. 49.
Imhh^ÉM
iMMÍwí&MíisÆ
ri'Híum:
■íiíHMmm.
HEKLAÐUR FERNINGUR
VIKAN 26. tbl.
Hér kemur uppskrift af skemmtilegum hekluðum ferningi, sem hekla
má hvort heldur með hvítu bómullargarni, eða mislitu ullargarni (skútu-
garni Kompas) og sauma síðan saman í teppi. Finnið heklunál hæfilega
grófa fyrir garnið og heklið fremur þétt.
Skýringar. Loftlykkja: Búið til færanlega lykkju, dragið garnið upp
í gegn um hana og áfram í gegn um þá lykkju og síðan áfram á sama hátt.
Keðjuhekl: 1 1. á nálinni, dragið garnið upp og áfram í gegnum lykkjuna
sem var á nálinni.
Fastahekl: 1 1. á nálinni, dragið garnið upp (2 1. á nál). Bregðið þá
garninu um nálina og dragið það í gegn um báðar lykkjurnar í einu.
Stuðlahekl: 1 1. á nálinni, bregðið garninu um nálina og dragið garnið
upp. (3 1. á nál.). Bregðið þá garninu um nálina og dragið það í gegn um
2 1., bregðið því aftur um nálina og dragið það í gegn um 2 1.
Fitjið upp 12 loftl. myndið úr þeim hring og lokið honum.
1. umf.: (4 stuðlar, 3 loftl.) 4 sinnum. Lokið umf. með 1 keðjul. í 3. loftl.
sem myndaði 1. stuðul í umferðinni. 2. umf.: 3 loftl., 3 stuðlar í fyrsta
hornbogann (1 loftl., 4 st., 3 loftl., 4 st. í bogann) 3 sinnum, 1 loftl., 4 st.,
3 loftl. og 1 keðjul. í 3. loftl.
3 umf.: 3 loftl., 3 stuðlar í fyrsta hornbogann (1 loftl., 1 st. milli 2. og
3. stuðuls í stuðlasamst., 1 loftl., 1 st. í næstu loftl., 1 loftl., 1 st. milli 2.
og 3. stuðuls, 1 loftl., 4 st., 3 loftl., 4 stuðlar í hornið) 3 sinnum, 1 loftl.,
Framhald á bls. 49.