Vikan - 07.07.1966, Qupperneq 41
á unga og gamla
hverju maður aetlar að svara, áður
en maður opnar munninn, og ef
maður hikar verður hann óróleg-
ur og segir: — Afram, fram nú!
En við fólk sem hann ekki þekkir
er hann þolinmæðin uppmáluð.
Hann er líka mjög nákvæmur með
að allt sé algerlega óaðfinnanlegt,
það fer ekki ein síða í blaðið fyrr
en hann er ánægður með hana.
Svo er hann líka stórsnjall í við-
skiptum, þótt hann vilji helzt ekki
viðurkenna það.
Hefner ver ennþá mestum tíma
sinum og kröftum í tímaritið, og
eftir því sem umsetningin verður
meiri, vill hann vanda betur til
þess . . .
☆
Modesty Blaise
Framhald af bls. 5.
voru í þilfarsstólum, annar hallaði
sér út yfir borðstokkinn. Tvennt í
viðbót var að leika sér að bolta,
annar kastaði honum af öllu afli í
magann á hinum. Hann sá, að sá
sem var á síðari endanum, var
kvenmaður í T-skyrtu, í siðbuxum
með Ijóst hár. I framstafninum stóð
einn maður enn, aleinn, með hend-
ur fyrir aftan bak og horfði fram.
— Willie lét sjónaukann síga: —
Jæja, þarna er hann, Prinsessa.
Einmitt á staðnum, þar sem óheppi-
legast er að vinna verkið.
— Þannig vinnur Gabríel, sagði
hún. — Mér þætti gaman að vita,
hvar Mandrake tók hann og hina
upp í, eftir að báturinn hans fór
frá Haifa.
Willie yppti öxlum og leit aftur
á bátinn í gegnum sjónaukann: —
Sú Ijóshærða sér um vöðvahlið-
ina . . . Það hlýtur að vera þessi
Fotherg i11, sem við höfum enn ekki
fengizt við. Hún slóst í för með
honum fyrir nokkrum árum, var
það ekki?
— Það er víst.
— Heldurðu, að Gabríel hafi
frétt, að við séum komin aftur,
Prinsessa?
— Hann ætti að hafa það, Willie.
Við höfum lagt það mikið kapp á
það. En hann er sennilega ekki far-
inn að hafa áhyggjur af því enn-
þá. Við skulum skreppa til Kairó
og koma því í lag.
Willie setti í gang, og Pontíakk-
inn rann mjúklega burt. Þegar þau
komu út fyrir borgina, jók hann
hraðann og stefndi út á veginn
yfir eyðimörkina.
Tveimur klukkustundum seinna
óku þau í gegnum úthverfi Kairó
og síðan inn í opinn húsagarð hjá
stóru húsi, sem var byggt í íburð-
armiklum, arabiskum stíl. Gos-
brunnur var í miðjum húsagarðin-
um. Gluggarnir, skyggðir með
mushrebiya, voru með lituðu gleri.
Þokkalegur ungur maður, í hvít-
um jakka og buxum, vísaði þeim
ÍjTI «RILL
Nú geta allir „GRILLAГ, úti á svölum, úti
í garði eða úti í sveit.
Við höfum fyrirliggjandi 3 gerðir af „ÚTI
GRILLUM“:
Við höfum einnig BAR - B - Q BRIQUETS
(BRÚNKOL)sem eru sérstaklega fyrir „ÚTI GRILL“.
18 tommur
23 tommur
með borði.
VIKAN 41