Vikan - 07.07.1966, Side 50
CEnDiicnn nn® m ■fiD
uttSKUSilii ^: > ií/ m M 1
HVERFISGÖTU 50. - SÍMI 18830.
Eins manns sveínsóíi
StærS 185x75 cm. sængurfatageymsla
undir dýnunni.
Barninu lídur vel-þegar notað er Nivea babyfein.
Hin reynda móðir vcit hvers vegna bún velur
babyfein handa barni sínii: Þessar samslilltu fram-
leiðsluvörur - krem, olía, púður, sdþa - innihalda
allt, sem húðUknirinn dlítur nauðsýnlegt hinni
viðkvœmti húð barnsins. Börn, snyrt með babyfein,
fd hvörki sœrindi, né rauða og bólgna húð.
0
NIVEA
Soégíeút
50 VIKAN
BRÚN GRUNNSÓSA.
2—3 matsk. smjör eða smjörlíki, 2^—3 matsk. hveiti, 5 dl. stcikarsoð eða heitt
kjötsoð, 1 dl. þykkur rjómi, salt, hvítur pipar, soya.
Bakið upp smjörið og hveitið og jafnið með soðinu, smám saman. Látið sós-
una sjóða i 10—20 min. og blandið þá þeyttum rjómanum í, saltinu, piparnum
og soyunni. Úr þessari sósu má gera eftirfarandi fjórar sósur:
FUGLASÓSA.
Setjið hakkaða fuglslifur í sjóðandi sósuna, áður en rjóminn er settur í. Góð
með villtum fuglum og alifuglum.
RJÓMASÓSA.
Setjið 1 dl. af þykkum rjóma i sósuna, sem látin er sjóða með frá byrjun, en
samt er þcytta rjómanum bætt i, eins og áður segir.
STEIKARSÓSA.
Kryddið sósuna með lítið sætu sherry eða madeira, eða með tómatpurré og rauð-
vínl og látið hana sjóða i aðrar 5 mínútur. Notuð mcð steik og dökku kjöti.
VILLIFUGLA OG HREINDÝRASÓSA.
Setjið svolítinn rifinn mysuost eða rautt gelé i sósuna og látið hana sjóða aðr-
ar 5 min.
BEARNAISESÓSA.
250 gr. smjör eða smjörlíki, 3 eggjarauður, 5 marin hvitpiparskorn, 2 tesk. smá-
saxaður laukur, 2 matsk. vínedik, persiljuleggir, ',i tesk. mulið dragon, fínsöx-
uð persilja, kjörvel.
Sjóðið saman vínedik og lauk. persilju og pipar þar til það hefur soðið niður
um helming. Síið soðið í skaftpott, helzt ekki úr alumini, setjið í vatnsbað i ann-
an pott. Þeytið eggjarauðurnar saman við. Bræðið fcitina yfir lágum hita og
látið hana kólna niður í 60 gr. Hitið cggjarauðurnar þar til þær eru u.þ.b. 60
gr. heitar og bætið þá smjörlnu í, fyrst í dropatali og síðan x mjórri bunu. Hrær-
lð vel i á meðan og haldið hitanum jöfnum. Kryddið sósuna með salti, nýmöl-
uðum pipar, kjörvel og dragon og blandið fínsaxaðri persiljunni i. Sósuna má
búa til fyrirfram og hita hana siðan hægt upp i vatnsbaðl. Bearnaisesósu ess-
ens fæst á flöskum. Góð með soðnum eða djúpsteiktum fiski, nauta- eða kálfa-
steik.
CHORONSÓSA.
Gerð eins og bearnaisesósa og bragðbætt með sterku tómatpurré.
HOLLENZK SÓSA.
3 eggjarauður, 1 matsk. vatn, 250 gr. smjör eða smjörlíki, salt, hvítur pipar eða
nokkur korn caynnepipar, 1 matsk. sítrónusafi.
Bræðið smjörið og látið kólna nlður í 60 gr. Þeytið saman eggjarauðurnar og
kalda vatnið í skaftpotti (ekki úr alúmíni) og iátið í sjóðandi vatnsbað. Þeytið
vel og hitið upp í 60 gr. Bætið þá brædda smjörinu i mjög hægt og þeytið vel
á meðan. Bragðbætið með salti, pipar og sítrónusafa. Borin fram volg með soðn-
um eða stelktum fiski og soðnu grænmeti, t.d. spergli.
MOUSSLINESÓSA.
Blandið 1—l'/x dl. þeyttum rjóma í hollenzku sósuna og kryddið meira eftir
smekk. Notizt mcð fiski og grænmeti.
OSTA-VÍNSÓSA.
150 gr. scheizerostur, 2 dl. þurrt hvitt vln, 1 dl. þykkur rjóml, 2bí tesk. kartöflu-
mjöl.
Skerið ostinn í tenlnga og látlð hann bráðna i vfninu i þykkbotnuðum potti
við lágan hita og hrærlð í á mcðan. Jafnið rjómanum út í. Hrærið kartöflumjöl-
ið með svolitlu köldu vatni og bætlð þvi í. Látið suðuna koma upp og hrærið
i á meðan. Góð með fiski, skinku, kálfakjöti og grænmeti.
Fleiri sósur verða i næsta blaði.