Vikan - 03.08.1967, Síða 7
■
staði. En mamma vill bara ekki
að ég sé með honum. Hún hefur
víst einhverjar ástæður fyrir
þessu og þær frekar miklar. —
Hvað á ég nú að gera? Ég get
yfirleitt ekki verið á móti
mömmu. Ég er orðin 19 óra, svo
að ég ætti að vita hvað ég á að
gera, en það veit ég nú samt
ekki. Viltu vera svo góð að svara
mér fljótt.
Ein 19 ára.
Okkur finnst, aff þú eigir
heimtingu á aff fá aff vita, hverj-
ar þessar miklu ástæffur eru,
sem móðir þín hefur fyrir því
aff vera eindregið á móti sam-
drætti ykkar. Annars láta marg-
ar mæffur sisona og við mund-
um því, meff fyrirvara um þess-
ar ástæffur, ráffleggja þér aff láta
nöldur hennar sem vind um eyr-
un þjóta. Ætli hún linist ekki í
baráttunni smátt og' smátt, og
kannski verffur hún hæstánægff
meff tengdasoninn á endanum.
HÁRLOKKAR.
Kæri póstur!
Þú sem allt veizt! Gætir þú
gefið mér upplýsingar um hvar
hægt væri að fá gerða hártoppa
úr eigin hári hér á landi? Og
hvað það mundi kosta?
Með fyrirfram þakklæti.
Ein sem á lokk.
P.S. Hvernig er skriftin?
G-M-búffin í Þingholtsstræti 3
og Snyrtivörudeild Karnabæjar
selja tilbúna hártoppa, en búa
þá hins vegar ckki til. Meira
vitum viff ekki. Skriftin er prýffi-
leg.
ÍSLEND1NGASÖGUR.
Kæra Vika!
Það var sannarlega gaman að
vera íslendingur, þegar þær
gleðifréttir bárust til landsins, að
handritamálið svokallaða væri
loks farsællega til lykta leitt og
þar með úr sögunni. Auðvitað
tók maður eins og hver annar
þátt í gleðivímu dagblaðanna og
óskaði meira að segja vinum sín-
um til hamingju með sigurinn,
þegar maður hitti þá. Enda þótt
það vilji koma fyrir, að maður
geyspi undir hátíðaræðum ráð-
herranna okkar, þegar þeir flytja
skörulega sinn venjulega sam-
setning um þjóðararfinn og
menninguna og blessuð skinnin,
sem gera það að verkum, að
okkur alls ómaklegum leyfist að
kalla okkur þjóð, — þá er það
ekki af neinu áhugaleysi eða sljó-
leika, heldur af því, að maður
er búinn að heyra þessa sögu
nokkuð oft.
Jæja, kæra Vika! Þú botnar
náttúrlega ekkert í þessum klúðr-
aða formála bréfs míns. Ég skal
heldur ekki þreyta þig lengur
á vitleysunni í mér, heldur snúa
mér að efninu: Ég ætlaði fyrir
nokkru að ráðast í það stórvirki
að eignast íslendingasögurnar
komplett í fallegu bandi. Ég
hélt, að það hlyti að vera auð-
velt mál. En viti menn: íslend-
ingasögurnar eru ekki til í nokk-
urri einustu bókabúð í Reykja-
vík, og hafa ekki verið það í
mörg ár. Afgreiðslufólkið hrist-
ir höfuðið brosandi og segir: Því
miður!
Er þetta hægt, kæra Vika? —
Sýnir það ekki meira en lítið
áhugaleysi hjá sjálfri bók-
menntaþjóðinni að nenna ekki
einu sinni að gefa út þessar
frægu og merkilegu bækur, sem
allir keppast við að lofa og prísa?
Ég varð svo undrandi, að ég sett-
ist niður og skrifaði þér þetta
bréf til þess að vekja athygli á
þessari þjóðarskömm og hneisu.
Með vinsemd og virðingu.
K. M.
Við erum alveg á sama máli.
Þetta er til háborinnar skamm-
ar fyrir okkur, og þessu verffur
aff kippa í lag eins fljótt og hægt
er.
Ég sé að þú hefur skemmt þér
vel í kvöld.
ím3S,bankett
VIFTAN YFIR ELDAVÉLINA
Hreint og hressandi! Það er gaman að matreiða í nýtízku eldliúsi, þar sem loftið
er hreint og ferskt. Það skapar iétta lund, vinnugleði og vellíðan, hvetur hug-
myndaflugið — og matarlykt og gufa setjast ekki í nýlagt hárið né óhreinka föt
og gluggatjöld; málning og heimilistæki gulna ekki og hreingerningum fækkar.
Raunveruleg loftræsting! Með Bahco Bankett fáið bér raunverulega loftræstingu,
því auk þess að soga að sér og blása út gufu og matarlykt, sér hún um eðlilega
og heilnæma endurnýjun andrúmsloftins í eldhúsinu og næstu herbergjum. Sog-
getan er ein af ástæðunum fyrir vinsældum Bahco Bankett.
Hljóð! Þrátt fyrir soggetuna hcyrist varla í viftunni. Bahco Bankett er sennilega
hljóðasta viftan á markaðinum.
Engin endurnýjun á síum! Athugið sérstaklega, að Bahco Bankett barfnast engrar
endurnýjunar á lykt- og gufueyðandi síum, sem dofna með tímanum. Bacho Bank-
ett hefur engar slíkar, en lieldur alltaf 'fullum afköstum — kostnaðarlaust.
Fitusíur úr ryðfríu stóli! Bahco Bankett hefur hins vegar 2 stórar, varanlegar fitu-
síur úr ryðfríu stáli. sem ekki einungis varna bví, að fita setiist innan í útblásturs-
stokkinn, heldur halda viftunni sjálfri hreinni að innan, bví að loftið fer fyrst
gegnum síurnar. Fitusíurnar eru losaðar með einu handtaki og einfaldlega skolaðar
úr heitu vatni stöku sinnum.
Rétt vinnuhæð, innbyggt Ijós og rofar! Lögun Bacho Bankett skapar óþvingað
svigrúm og sýn vfir eldavélina. Innbyggt l.iós veitir þægilega lýsingu og rofarnir
fyrir ljós og viftu eru vel og fallega staðsettir.
Falleg, stílhrein og vönduð — fer alls staðar vel! Bacho Bankett er teiknuð af
hinum fræga Sigvard Bernadotte, eins og mörg fallegustu heimilistækin í dag, og
er sænsk úrvalsframleiðsla frá einum stærstu og reyndustu og nýtízkulegustu loft-
ræstitækjaverksmiðjum álfunnar.
BACHO ER BETRI. Það er einróma alit neytendasamtaka og reynslustofnana ná-
grannaríkjanna, að útblástursviftur einar veiti re.unverulega loftræstingu. Ilagsýnir
húsbygeiendur gera því ráð fyrir útblástursgati eða sérstökum loftháfi. I»eir, sem
endurnýja eldri eldhús, brjóta einfaldlega gat á útvegg eða ónotaðan reykháf. Sú
fyrirhöfn margborgar sig.
NÝJNG: Bahco raðstokkar. Við höfum nú á hoðstólnum létta og sterka, hvíta
plastpoka með heygjum og öðru tillieyrandi, sem hver og cinn gctur raðað saman,
án minnsta erfiðist eða sérstakra verkfæra.
Veljið því rctt, vcljið viftu, sem veitir
raunverulega loftræstingu og heldur allt-
af fullum afköstum — kostnaðarlaust.
VeljiS BAHCO BANKETT.
• •
Komið, skrifið eða útfyllið úrklipp-
una og fáið allar upplýsingar um
Bahco Bankett, stokka, uppsetningu,
verð og greiðsluskilmála.
SÍMI 24420. SUÐURGÖTU 10 RVÍK.
iwnni—————
Sendið undirrit. Bahco Bankett myndalista með öllum upplýsingum:
Nafn: ..........................
Heimilisfang:
FONIX
Til Fönix s.f., pósthólf 1421, Reykjavík.
31-tbl- VIKAN 7