Vikan


Vikan - 03.08.1967, Side 19

Vikan - 03.08.1967, Side 19
Handíin þessara dyra framkvæmir Garrison „rannsóknir sínar. Þetta var allt saman plat hjá Garrison Nú er sagt að heita megi sannað að allur fyrirgangurinn, sem hér- aðssaksóknarinn í New Orleans, Jim Garrison, stofnaði til, hafi ver- ið citt stórkostlegt plat. Rannsóknir hans hafa alveg runnið út í sand- inn, og þar á ofan hefur komið fram að Garrison hefur beitt alger- lega ólöglegum aðferðum til að fá „sannanir“ fyrir samsæri. I>að var Newsweek, hið kunna bandaríska tímarit, sem átti mest- an þátt í afhjúpuninni. Tímaritið gerði fréttamanninn Hugh Aynes- worth út af örkinni og lét hann „rannsaka rannsóknina“ í ró og næði. Aynesworth fann fljótlega það sem hann leitaði að: fullar sannanir fyrir þeim vægast sagt frjálslegu aðferðum, sem Garrison beitti. Fyrir nokkru sendi „Stóri Jim“ tvo samstarfsmanna sinna til að yfirheyra Alvin Beauboeff, tuttugu og eins árs gamlan, atvinnulausan kynvilling. Beauboeff fékk „tilboð“ um aö gefa vitnisburð þess efnis, að hann hefði heyrt David Ferrie, Clay Shaw (fangelsaðan kaupsýslu- mann) og Lee Oswald tala uin að drepa forsetann. — En ég heyrði ekki neitt svo- lciðis, sagði Beauboeff.' — Gætu hundrað og tuttugu þús- und krónur fcngið þig til að skipta um skoðun? spurði annar manna Garrisons. — I»ú gætir líka fengið vinnu: húsbóndinn sér um það. Samtaliö fór fram hjá lögfræð- ingi Beauboeffs. Án þess að menn vissu, tók lögfræðingurinn allt, sem sagt var, upp á segulband. Beau- boeff neitaði að hjálpa til. — Þá gæti skeð að þú fengir ráðningu, sagði maður Garrisons. —- Það gæti meira að segja hent sig að þú yrðir skotinn. Að fáeinum dögum liðnum komu mennirnir tveir aftur á fund Beau- boeffs og hótuðu honum lífláti. Ilann lét ekki undan, en sagði Newsweek allt af létta og endurtók söguna síðan í sjónvarpi. Það virð- ist því liggja ljóst fyrir að rann- sókn Garrisons sé rannsókn aðeins að nafni. í rauninni er hún — rannsóknin — samsæri. Til að gera Garrison frægan, eða hvað? Nú oetnr oáíinn ekki tvístioii leiflnr Ef trúa má nýútkomnum greinum í tveimur virðulegustu kaþólskum blöð- um, Le Monde í París og The National Catholic Reporter í Bandaríkjunum, þá er Páll páfi sjötti allt annað en sterkur á taugum um þessar mundir. Orsökin er sú, að innan fárra mánaða verður hann að taka ákvörðun varð- andi spurninguna um takmörkun barneigna. Eins og sakir standa harðbannar kaþólska kirkjan hverskyns getnaðar- varnir nema svokallaða rytmaaðferð, sem felst í því að samfarir eigi sér einungis stað á hinum „öruggu tímabilum" konunnar. En samkvæmt lækna- vísindunum er lítið á þeirri aðferð að byggja. í marga mánuði kannaði nefnd kaþólskra sérfræðinga þetta mál, samkvæmt fyrirmælum páfans. Luku þeir því starfi fyrir fáeinum vikum. Álitsgerð þeirra átti að halda leyndri, en efni hennar hefur engu að síður síast út. Það hefur vægast sagt komið mjög á óvart. Fimmtíu og þrír nefndarmanna kröfðust breytingar á stefnu kirkjunnar 1 málinu. Getnaðarvarnir skuli leyfðar — ekki sé hægt að taka á sig ábyrgðina á þeim hræðilegu afleiðingum, sem fylgja hlytu offjölgun jarðarbúa. Aðeins fjórir nefndarmanna vildu halda fast við ríkjandi kennisetningu kirkjunnar um þetta efni. Páfinn tók þann kost að fylgja minnihlutanum að málum, aðallega vegna þess að nokkrum íhaldssömum ráðgjöfum hafði tekizt að hafa áhrif á hann. Meirihlutinn greip þá til þess ráðs að láta niðurstöður sínar síast út. Páfinn varð dauðskelfdur, þegar hann frétti þetta. Hann er í óskaplegum vandræðum. A hann að halla sér að íhaldsöflunum, sem enn eru sterk í kirkjunni, eða þeim frjálslyndu, sem krefjast breytinga? En eitt er víst, og það er, að ekkert hálfkák dugir lengur, og ekki líður á löngu áður en taka verður eina af mikilvægustu ákvörðunum okkar tíma. Grínast flieO flUfl- hræOslu í auglýsingum flugfélag- anna er alltaf talað og skrif- að um hvað það sé gaman að fljúga, um fallegu flug- freyjurnar og sælgætið, sem þær bera fram. Hætt- an, sem fylgir fluginu, er aldrei nefnd á nafn. Svo- leiðis nokkuð hefur verið tabú, enda talið víst að engir flugfarmiðar seljist út á það. En nú hefur bannhelgi þessi verið brotin, og það hefur gert lítið flugfélag á vesturströnd Bandaríkj- anna, Pacific Air Lines. Það hefur hafið auglýsingaher- ferð um öll ríkin, sem jafnvel forhertustu auglýs- ingamönnum blöskrar. Her- ferðin gengur öll út á flug- hræðslu fólks. „Takið eftir, þið sem svitnið í lófunum,“ þannig hljóðar fyrirsögn eins aug- lýsingatextans. í textanum sjálfum er talað um að flestir séu „dauðhræddir við að fljúga“, og að í hvert skipti sem flugvél lyftir sér spyrji órólegir ferðamenn sjálfa sig hvort nú sé stund- in komin. Hryllingsherferðinni stjórnar auglýsingaráðu- nauturinn og háðfuglinn Stan Freberg, sem heima á í Hollywood. Pacific réði hann í þjónustu sína og fól honum að finna upp á einhverju, sem kæmi fólki til að hrökkva rækilega við. Onnur flugfélög eru tryllt yfir tiltækinu, sem þeim finnst ósmekklegt. En forseti PAL, Matthew McCarthy, hefur látið í ljós að honum geðjist vel að gálgahúmor Frebergs og heldur því fram að herferð- in muni „hreinsa loftið" Freberg hefur einnig í hyggju að halda herferð- inni áfram með því að mála eina af Boeing 727-vélum Paeific þannig, að hún minni á járnbrautarlest, og skemmta farþegunum með því að þeyta eimpípu í há- talarann. Einnig ætlar hann að draga fyrir gluggana og sýna kvikmynd af framhjá- þjótandi símastaurum. 31. tbi. VIKAN 19

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.