Vikan


Vikan - 03.08.1967, Qupperneq 20

Vikan - 03.08.1967, Qupperneq 20
An^rés Indriðason NYJAR HUOMPLOTUR Óðmenn. — Myndirnar tók Sigurgeir Sigurjónsson. Jóhann G. Jóhannsson á mestan veg og vanda af hinni nýju hljómplötu Óðmanna. Jóhann er Keflvíkingur, fæddur 2. febrúar 1947. Byrjaði í hljómsveit 16 ára, þegar hann var í Samvinnuskólanum. Lék síðar um skeið með Straumum úr Borgarfirði en síðan komu Óð- menn til sögunnar, og var einn einn af stofnendum hljómsveitarinnar. nokkrar plötur, en þær hafa þó ekki náð jafnmiklum vin- sældum og „Pretty Woman“. Um myndina er annars það að segja, að gagnrýnendur eru ekki á einu máli um frammistöðu söngvarans, en Roy er hinn ijrattasti eftir sem áður og segist hlakka mikið til að byrja að vinna að næstu mynd sinni. LlII 00 BÍTLARNiR Liz Moore er heppnari en flestar stúlkur: hún býr ásamt Bítlunum, John George, Paul og Ringó! En vel að merkja: affeins meff mynda- styttum af þcim, en það er henni líka nóg. Liz er myndhöggvari og hefur sjálf gert brjóstmyndirnar eftir ljósmyndum. Hún lief- ur fengiff ótal tilboð um aff selja þær, en hún vill ekki fyrir nokkurn mun láta þær, jafnvel þótt Bítlarnir sjálfir kæmu til henn- ar og vildu kaupa! EIBIN SNÆIUM Það virðist vera óskadraumur allra hljómsveita að Jeika inn á hljómplötu. En hvað skal gera, þegar hljómplötufram- leiðendur eru tregir til að gefa út plötur með svonefndum „beat“ hljómsveitum? Jú, þá er að gefa út plöluna á eigin veg um. Til þess þarf auðvitað nokkurt fram- tak — en þetta framtak höfðu Óðmenn — og nú er plata þeirra komin á markaðinn. Fjögur lög eftir Jóhann Jóhannson, bassa- leikara hljómsveitarinnar. Þessi hljómplata hefur heppnazt vel. — Öll lögin láta vel í eyrum; þau eru ein- föld og fljótlærð, og þau eru í takt við tímann, ef svo mætti segja. Eflaust eiga þau eftir að hljóma oft í eyrum okkar næstu mánuðina. Við skulum bara vona, að þessi plata gufi ekki upp, eins og raunin varð með hljómplötu Póniks og Einars á sínum líma. « thygli vekur, að eitt lagið er flutt á ” ensku máli:: „Tonight is the end“. — Ekki eru allir hressir yfir slíku uppátæki, en þess ber að gæta, að hljómplatan mun verða seld á hinum Norðurlöndunum, og þess vegna er lagið sungið á ensku. í þessu lagi koma tveir aukamenn: Rúnar Framhald á bls. 37. Roy Orbison hefur nú leik- ið í sinni fyrstu kvikmynd, „Fastest Guitar Alive“. Myndin, sem gerist í villta vestrinu, er í léttum dúr, og Roy fær mörg tækifæri til að sýna, hve ágætur söngv- ari hann er. Margir muna eflaust eftir því, að hann söng hið vinsæla lag „Oh, Pretty Woman" á sínum tíma. Síð- an hefur hann sent frá sér I0YIIIISON GERDIST LEIKAII 20 VIKAN 31- tw-

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.