Vikan


Vikan - 03.08.1967, Blaðsíða 26

Vikan - 03.08.1967, Blaðsíða 26
HRINGBORGIRNAR Eftir fimm ár þurfið þér ekki aS borga húsaleigu og eftir sjö ár fáiS þér líka mat- inn ókeypis. ★ Nóg olnbogarúm. Velkomin til Hringborgarinnar! . Hringborgin er byggð ó 40 hæð- um. Helmingurinn er íbúðir. Oðr- um megin í íbúðunum er útsýni yfir vetrargarðinn, en hinum meg- in yfir óbyggt svæði, ósnerta nótt- útru. Sven Nyblom segir: — Byggi maður eitt hús fyrir 10.000 manns, þá er grunnflöturinn gjörnýttur og þá er hægt að veita öllu þessu fólki nægilegt olnbogarúm. Engin bílaumferð truflar hring- borgarana, þvi að slðasta spölinn að borginni aka bílarnir eftir jarð- göngum. Nyblom vill ekki að börn og gamalmenni eigi það á hættu að verða fyrir bfl, hann vill úti- loka alla ökuníðinga. í sambandi við hringborgina eru aftur á móti sundlaugar, tenn- isvellir og alls konar aðstæður til íþróttaiðkana. Nyblom segir: — — Þar sem grunnurinn er gjörnýttur, höfum við ráð á því að veita íbú- unum alls konar þægindi, sem ekki væri mögulegt að koma við, ef um venjulegar íbúðir væri að ræða. Það ætti að byggja margar hring- borgir nálægt vatni eða sjó. Það verða að vera möguleikar á því að njóta útiveru á sumrin, ef til vill í bátum, sem borgin á og íbú- arnir geta tekið á leigu. Þeir geta líka átt sína eigin báta, sem þeir geta geymt í bátahöfn hússins. A vetrum yrði svo hægt að fara þar á skautum, fyrir þá sem ekki þora að fara á skíðastökkbrautirnar, sem húsið á. Nyblom segir: — Það eiga að vera möguleikar fyrir alla að iðka íþróttir og þjálfa líkama sinn. — Fólkið fær meira út úr lífinu, ef það er líkamlega hraust. . . . 150 metrar til vinnunnar. Þér byrjið daginn með því að f.ara í sturtu, í yðar eigin sturtu- klefa. Baðker fyrirfinnast ekki, enda eru þau óþörf. Þar næst klæð- ið þér yður, auðvitað í sumarföt, vetrarfatnaður er óþarfur, þar sem alltaf er sama hitastigið, sumar og vetur,- takið lyftuna niður í íþrótta- höllina, þar sem þér gerið morg- unleikfimi, síðan farið þér í sturtu, svo í baðstofuna og aftur í sturtu, og að lokum fáið þér yður röskan sundsprett í lauginni. Morgunverð borðið þér með f jölskyldunni í veitingastofu í- þróttahallarinnar, eða einhverri annarri veitingastofu. Svo er kom- inn tími til að fylgja börnunum á dagheimilið og ganga til vinnu. — Sá göngutúr er í lengsta lagi 150 metrar. Sannleikurinn er sá, að þér fáið allt sem þér þurfið til daglegra þarfa innan þessarar 150 metra vegaiengdar: vinnustað, verzlanir, banka, ferðaskrifstofur, kvikmyndahús, leikhús, skóla og íþróttahús og svæði. Hádegisverð og kvöldferð borð- ið þér líka á einhverjum veitinga- staðnum, eða ( yðar eigin íbúð, ef þér kjósið það frekar. Það þarf ekki annað en að lyfta símatæk- inu og panta matinn, þá fáið þér hann sendan. Á kvöldin er ekkert því til fyr- irstöðu að fá barnfóstru, svo þér getið farið f bíó, leikhús, eða tek- ið þátt í félagslífinu á einn eða annan hátt. Þér þurfið ekki einu sinnni að sjá um ræstingu á íbúð- inni, til þess er ákveðið starfsfólk, það er meira að segja búið um rúmin með rúmfötum frá sængur- fatamiðstöð borgarinnar. . . . Allar greiðslur meS sjálfsalakerfi. í hringborginni er raunar engin ástæða til að ganga með peninga á sér. Þar sem maður býr, vinnur og kaupir flest af þörfum og þæg- indum í sama húsi, er þægilegra að hafa reikningstölur. Reikningstalan er lítil, .segul- mögnuð tala, sem hægt er að stinga í sjálfsala, hvar sem er í húsinu; í verzlunum, bönkum, á veitingahúsum og á íþróttasvæðun- um o. s. frv. Utanaðkomandi, þ. e. þeir sem ekki búa í hringborginni, geta líka fengið slíkar tölur og haft reikn- ing í borginni. En þeir sem endi- lega vilja eða þurfa að hafa pen- inga, geta auðvitað haft þá líka. Verzlanir og bankar taka auðvit- að við venjulegum peningum. Hvað kostar þá að búa í hring- borginni? Sven Nyblom svarar því þannig: — Mestan hluta af tekjum íbúanna er hægt að umsetja inn- an veggja hússins. Sameignarfé- lagið græðir og þar af leiðandi græða meðlimir þess. Athugasemd: Áætlunarreikningar sýna að það eru engir smápening- ar sem meðlimir sameignarfélags- ins græða. Eftir fimm ár búið þér húsaleigufrítt, eftir sjö ár fáiS þér líka mat- inn ókeypis. Engin eldhús, aðeins borðkrókar. Það er sagt að hvorki séu eld- hús eða eldunarpláss í þessu húsi. Því svarar Nyblom: — Ef hver íbúð ætti að hafa eldhús eða eldunarpláss, færu 30 þúsund fermetrar í það, ( stað þess er hægt að nota þetta gólfpláss til annarra þarfa fyrir íbúana. — 4000 eldhús væri hrein fásinna. Flestar giftar konur eru ennþá þvingaðar til þess að vera elda- buskur, en þær eru sannarlega ekki allar vel til þess fallnar. Fyrir 99 af hverjum 100 eldhúsum kastar Framhald á bls. 36. » °l - I ii^ ÍBUÐIR SKÓLAR SJÚKRAHÚS SKRIFSTOFUR 0G IÐNAÐARVERKSTÆÐI VETRARGARÐUR BARNAGARÐUR ■ IKIKIIX ■IIIMIM •ÍÞRÓTTAVÖLLUR LEIKHÚS 0G KVIKMYNDAHUS Vilduð þér ekki gjarnan búa þannig? Auðvitað, seg- ir Sven Nyblom í Uppsala, maðurinn sem komið hefur fram með hina svimandi hugmynd um hring- borgina. Þar eru öll þægindi, þar geta 10.000 manns fengið óskahúsnæði. Nyblom sendi þessa teikn- ingu í keppni um skipulagið á Jarva-svæðinu í Svíþjóð. En getum við fellt okkur við slíkt skipulag? Ef til vill ekki ennþá, segir Nyblom, en einhvern tíma kemur að því að þetta verður veruleiki... VEITINGAHUS SÝNINGARSALIR JARÐGÖNG FYRIR BlLABRAUT VEITINGAHÚS JARÐGÖNG BIFREIÐAGEYMSLUR 26 VIKAN 31- tbl- 31. tbl. VIKAN 27

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.