Vikan


Vikan - 03.08.1967, Blaðsíða 40

Vikan - 03.08.1967, Blaðsíða 40
 .s/ MED GIILLBflHB ________________UM _______________SIG HIBJfl 40 VIKAN 31-tbl- Brigitte Bardot hefur nýlega flutzt búferlum til Rómar. Auðvitað hefur hún vakið jafn mikla athygli þar og í Frakklandi. Henni hefur til dæmis þegar tekizt að innleiða nýja baðfatatízku, sem hlýtur að teljast býsna frumleg: Gullkeðja um magann! Þetfa uppófæki BB hefur farið eins og eldur í sinu um baðstaðina og hver fegurðar- skvísan ó fætur annarri hefur sett sisona kullkeðju um magann ó sér. Hitt hefur ekki öllum verið Ijóst, hvaða tilgangi keðjan sú arna þjónar, en það er kannski aukaatriði. Þó hafa ýmsar kenningar um það komið fram og eru þessar hinar helztu: ★ KeSjan er til þess að hengja handklæði á, þegar bú- ið er að baða sig og þurrka sér. ★ Keðjan er til hægðarauka fyrir unga og hrausta menn, sem hafa gaman af að bjarga skvísum frá drukknun. ★ Keðjan er til þess að festa sig við barborð, svo að maður velti ekki af stólnum eftir fimmta martiniglasið! Menn eru sem sagt ekki sammála um notagildi keðjunnar, en hvað um það: Kven- fólkið vill þetta — og gullsmiðirnir eru í sjöunda himni.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.