Vikan


Vikan - 27.12.1968, Blaðsíða 5

Vikan - 27.12.1968, Blaðsíða 5
Vlagnúsar Magnússonar, ritstjóra. Menningarsjóður jaf bókina út. VATNSBERI OG FISKUR Kæra Pósthólf! Það hefur verið mjög skemmtilegt að lesa, hvernig þið svarið bréfum fólks, og gefið því óspart inn fyrir heimskuna og þá vitieysu, sem því getur dottið í hug að rita til ykk- ar. Að öllu jöfnu eru svör- in hnitmiðuð og hugkvæm. Hér á heimilinu hafa stjörnumerkin ykkar verið mikið lesin og oft og mörg- um sinnum sömu merkin. Og við höfum borið fólk saman við þau. Mikið höf- um við skemmt okkur yfir því! En nú eru fjögur merki eftir og er komið upp hjá okkur veðmál um, hvern- ig samkomulagsmöguleik- ar vatnsbera og fisks séu. En vegna þess, hve langt er að bíða eftir svari við þessu, langar okkur að biðja ykkur að komast að því hjá Degi Þorleifssyni, hvernig þessi merki vinna saman í hjónabandi. Við bíðum óþreyjufull eftir svari. Með fyrirfram þökk. Fjórar stjörnur. Það eru nú ýkjur hjá ykkur, að við gefum því fólki, sem skrifar okkur „óspart inn“ fyrir „heimsku" þess og „vit- leysu“. Þvert á móti þiggj- um við með þökkum öll bréf, sem okkur berast, þótt eðlilega séu þau ekki öll jafn gáfuleg. Hins veg- ar reynum við stundum að vera í góðu skapi og von- andi tekur enginn það óstinnt upp. En þá er að víkja að efninu: Dagur Þorleifsson upplýsir, að vatnsberi og fiskur eigi vel saman. Fólk, sem fætt sé undir þessum merkjum, sé fi'jálslynt og fórnfúst og hafi lík viðhorf til lífsins. MEIRI OG MINNI KLÍKAN Kæri Póstur! Ég hef aldrei skrifað þér áður, en læt nú loksins verða að þvi. Ég ætla að bera upp við þig vandræði mín, eins og margir gera, og vona, að þú getir leyst úr þeim. Þannig er mál með vexti,, að ég er ægilega hrifin af strák. (Ég er fimmtán ára). Hann á heima í grennd við mig, en við þekkjumst samt sama og ekkert. Og það versta er, að ég held ‘ að við eigum ekki eftir að kynnast neitt, því að hann er í svokallaðri meiri klík- unni, en ég í þeirri minni. Ég mæti honum oft á dag. En við bíðum alltaf eftir, að annað hvort segi „halló“, því að þegar öllu er á botninn hvolft, þá er- um við þó grannar. Hvað mundir þú gera, ef þú værir í mínum sporum? Og ég á eftir að vera svona óhamingjusöm rétt fyrir jólin ofan á allt vinnuleysi og gengisfell- ingarnar! Með fyrirfram þökk. Ein einmana. P.S. Ég er rauðhærð, og mér hefur verið sagt, að strákar geri grín að því. Sama. Kvenfólk beitir ýmsum brögðum í slíku tilfelli. f gamla daga létu dömurnar annan hanzkann sinn detta beint fyrir framan nefið á kavalerinum, sem auðvitað tók hann upp á stundinni og hneigði sig og beygði. Líklega gengur þú þó ekki með hanzka ennþá, og það er heldur ekki víst, að strákurinn hefði hugsun á að taka hann upp. En þú hlýtur að þekkja einhvern í „meiri klíkunni“. Hvern- ig væri, að þú laumaðir því að einhverjum þar, að umræddur strákur hefði vakið athygli þína, þér þyki hann „sætur“ og svo framvegis. Ef þér tekst að gera það, erum við sann- færðir um, að hann býður þér upp á næstu dansæf- ingu. Það fær ekki staðizt, að strákar geri grín að rauðhærðum stelpum. Við höfum einmitt heyrt, að rauðhærðar stelpur séu eftirsóttar. Gefjunaráklæðin breytast sí- fellt í litum oy múnstrum, því i æður tízkan hverju sinni. Eitt breytist þó ekki, vöru- vöndun verksmiðjunnar o<j gæði islenzku ullarinnar. Allt þetta hefur hjálpað til að gera Gefjuna') áklæðið vinsælasta húsgagnaáklæðið í landinu. Ullarverksmiðjan G EFJ U N 5i. tbi. viKAN 5

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.