Vikan - 27.12.1968, Blaðsíða 28
í tvö ár var Maechel Shalhoub
framkvæmdastjóri timburverzl-
unar í höfuðborg Egyptalands,
Kairó. Verzlunin gekk illa. Fyr-
irtækið tapaði stórfé á þeim tíma
sem hann stýrði því.
Maechel taldi sjálfum sér trú
um, að hann yrði að skipta ur,|
starf, því að hann væri ekki á
réttri hillu í lífinu sem timbur-
kaupmaður. Hann lét sér ekki
nægja að skipta um starf, heldur
skipti einnig um nafn og kallaði
sig Omar Sharif.
Hann gerðist kvikmyndaleik-
ari og starfaði í egypzkum kvik-
myndum á bökkum Nílarfljóts.
Hlutverkin voru smá í fyrstu, en
ekki leið á löngu, þar til honum
voru falin stærri og viðameiri
hlutverk.
Árið 1955 hrósuðu kvikmynda-
gagnrýnendur alls heimsins Om-
ari Sharif fyrir leik hans í mynd,
sem hét „Ljómandi sól“. Þetta
var egypzk mynd og var sýnd á
kvikmyndahátíðinni í Cannes.
Hann var einnig mikils metinn
í heimalandi sínu, enda þótt hon-
um væri ráðlagt að iæra að tala
arabisku ögn betur.
Omar Sharif, sem talar fimm
tungumál, brosir og segir:
— Ég er að vísu fæddur í Kai-
ró, en heima var oftast töluð
franska. Og í Victoria College,
gagnfræðaskólanum sem ég gekk
í, var enska skyldunámsgrein.
OSCARVERÐLAUN
Omar Sharif kom aftur heim
frá Cannes með verðlaun, sem
hann hafði hlotið á kvikmynda-
hátíðinni. Hann var aðeins 23 ára
gamall, en þegar orðinn frægur.
Vinsældir hans heima fyrir juk-
ust til muna, þegar hann kvænt-
ist fallegri, egypzkri kvikmynda-
stjörnu, Fatem Hamama.
Heimsfrægð hlaut hann þó
ekki, fyrr en honum var falið
stórt hlutverk í myndinni „Arab-
íu-Lawrence“. í þessar mynd,
sem stjórnað var af David Lean,
lék Omar Sharif ekki titilhlut-
verkið, því að það var í höndum
Peter O'Toole. En hann lék sheik
Framhald á bls. 33.
Omar Sharif stendur nú á liátindi
fr:.:gSr.r sinr.ar og leikur í hverri stör-
myndinni á faítur annarri. íslenzkir
kvikmyndahúsagestir sáu hann nú sið-
rst í myndinni um Zhivago lækni, sem
sýnd vr.r fyrir skcmmstu við mjög
mikla aðsókn. Á myndinni hér að of-
an er Omar ása.mt Barbra Streisand
í myndinni „Funny Girl“.
Omar er kvæntur egypzkri kvik-
myndalcikkonu, Fatcm Hamama að
nafni. Hann er löngu lilaupinn frá
henni, en )>au hafa ekki enn skilið
löglega.
28 VIKAN “■tw-