Vikan - 27.12.1968, Side 10
Hún var á harðaspretti um regn-
votar götur höfuðborgarinnar og
mikið að snúast. Samt gaf hún sér
tíma tij að segja okkur svolítið frá
dvöl sinni í Englandi í sumar. En
eins og lesendur rekur minni til,
biðu þau verðlaun sigurvegarans (
keppninni um titilinn Fulltrúi unga
fólksins 1968, að fara á vandaðan
sumarskóla í Englandi.
Aðstandendur keppninnar, Vikan
og Karnabær, fengu afbragðs skóla
handa Soffíu Wedholm, Fulltrúa
unga fólksins 1968, í Margate á
austurströnd Englands. Málaskólinn
Mímir hafði milligöngu um útveg-
un skólans, enda tókst það eins og
bezt varð á kosið.
— Skólinn heitir Deniscroft og er
í Margate, sagði Soffía. — Konan,
sem ég bjó hjá, var skólastjórinn,
og skólinn var uppi á háalofti í sama
húsinu. Þetta var indæliskona, sem
átti þrjá litla stráka. Mann átti hún
líka, hann vann í London, þar sem
hann átti múrsteinaverksmiðju eða
eitthvað þvíumlíkt og kom ekki heim
nema um helgar — og meira að
segja ekki allar helgar. Húsið var
endahús í raðhúsaröð, 6 herbergi,
eldhús og bað á tveimur hæðum,
og skólinn í risinu.
— Fyrstu vikuna var ég ein í skól-
anum, en svo kom annar íslending-
ur, Valur Óskarsson úr Hafnarfirði,
og aðra vikuna vorum við tvö í skól-
anum. Svo tíndust fleiri til, og við
vorum 20, þegar flest var. Ég var
eini nemandinn framan af, sem bjó
heima hjá skólastjóranum, nema síð-
asta mánuðinn, þá kom frönsk
stúlka, Dominique, og var í herbergi
með mér.
— Við Valur freistuðumst til að
tala íslenzku saman, þegar enginn
heyrði til, en frúin harðbannaði okk-
ur það. Við áttum að tala og hugsa
eingöngu á ensku. Stundum spurði
hún mig upp úr þurru, þegar hún
sá, að ég var eitthvað að hugsa,
hvort ég væri að hugsa á íslenzku
eða ensku. Því miður var ég víst
alltaf að hugsa á íslenzku, þótt ég
lærði mikið í ensku þarna og hefði
mikið gagn af skólaverunni.
— Skólinn hófst klukkan 9 á
morgnana og þá var kennt til ell-
efu. Þá var frí í hálftíma, en svo törn
aftur til hálf eitt. Kennslan var bæði
af bókum og viðtölum, og auk þess
-------------------------------------------------------------------------------V
O 0 0
fslendin^ar í Margate í sumar. Þar má meðal annars þekkja Kristínu Waage.
o ©
Tvær íslenzkar stúlkur heyja einvígi í Margate.
o
Þrjú skólasystkini úr Deniscroft: Soffía Wedholm, Spánverjinn Vicente og franska
stúlkan Dominique, sem var í herbergi með Soffíu.
o 1 '^mm
í Deniscroft voru um 20 nemendur, þegar flest var, og af æriff mörgum þjóffernum.
Þessi þrjú, sem hér sjást, eru öll spænsk.
0
íslendingamir, sem voru á Deniscroft: Valur Óskarsson og Soffía Wedholm.
o
Tveir synir skólastjórans í Deniscroft. Þeir voru kallaðir Kal og Tag.
V______________________________________________________________________________J
10 VIKAN 51-tbl'