Vikan - 29.05.1969, Blaðsíða 3
IÞESSARIVIKU
PÓSTURINN .........................
SÍÐAN SÍÐAST ......................
MIG DREYMDI .......................
PALLADÓMUR UM BJARNA BENEDIKTSSON . .
HLÝR ANDBLÆR AÐ NORÐAN ............
SAGA FORSYTEÆTTARINNAR ............
EFTIR EYRANU ......................
ÞANNIG YFIRHEYRA ÞEIR í LANDI LÝÐRÆÐIS-
INS ...........................
8<TáR er enginn aldur fyrir trúð ..
VIÐTAL VIÐ RÚNAR GUNNARSSON........
ANGELIQUE í VESTURHEIMI ...........
HÚN OG HANN .......................
Bls. 4
Bls. 6
Bls. 8
BIs. 10
Bls. 12
Bls. 14
Bls. 16
Bls. 18
BIs. 20
Bls. 24
Bls. 28
Bls. 30
VÍSUR VIKUNNAR:
Þótt margs konar hetjuskap hefti laganna bann
er hreysti og karlmennska nokkuð sem vert er að meta
og vér höfum eignazt harðsnúinn hólmgöngumann
sem hefur jafnvel ögrað drottningu Breta.
En tvíræðar sögur komast jafnan á kreik
er kappar frægir bíta í skjaldarrendur
og yrði drottningin undir í þessum leik
hvað ætli Skúli tæki sér þá fyrir hendur?
FOíJSlÐAN:
Sumarið er komið eftir langan og strangan mæðu-
vetur kreppu, verkfalla og sundurlyndis. Vonandi
verður hin flókna og langvinna deila atvinnurekenda
og launþega til lykta leidd, þegar þetta kemur fyrir
almenningssjónir, svo að allir geti með góðri sam-
vizku farið að njóta hins stutta sumars okkar. —
VIKAN ÚTGEFANDI: HILMIR HF.
Ritstjóri: Sigurður Hreiðar. Meðritstjóri: Gylfi Grön-
dal. Blaðamaður: Dagur Þorleifsson. Útlitsteikning:
Snorri Friðriksson. Dreifing: Óskar Karlsson. Aug-
lýsingastjóri: Jensína Karlsdóttir.
Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33.
Símar 35320—35323. Pósthólf 533. Verð i lausasölu kr. 50.00.
Áskriftarverð er 475 kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, 900
kr. fyrir 26 tölublöð misserislega, eða 170 kr. fyrir 4 tölublöð
mánaðarlega. Áskriftargjaidið greiðist fyrirfram. Gjalddagar
eru: Nóvember, febrúar, maí og ágúst, eða mánaðarlega.
Reykjavíkurborg bætti merki-
legum og gagnlegum þætti
við starfsemi sína á liðnu
vori. Hún bauð öldruðu fólki
borgarinnar á samkomu í
Tónabæ, og varð aðsóknin
slík, að salurinn var troðfull-
ur í fjögur skipti. Hér var um
að ræða kynningu og upphaf
að skipulegri starfsemi fyrir
gamla fólkið. Hin mikla að-
sókn sýndi, að sannarlega er
þörf á henni. — Framvegis
verður opið hús í Tónabæ
hvern miðvikudag, þar sem
aldrað fólk getur komið sam-
an, drukkið kaffi, spjallað um
daginn og veginn, spilað og
teflt. í haust verður að auki
hafin umfangsmikil tóm-
stundastarfsemi, þar sem
reynt verður að koma til móts
við áhugamál sem flestra. ■—
VIKAN brá sér í heimsókn á
eina af samkomunum í Tóna-
bæ, og í næsta blaði bregðum
við upp svipmynd af henni í
máli og myndum.
Þá verður einnig rætt við
einn af hinum ungu mönnum,
sem að undanförnu hafa stað-
ið í stríði við yfirvöldin vegna
næturklúbbanna, sem spruttu
upp eins og gorkúlur á haug
síðastliðinn vetur.
Margt fleira efni verður í
næsta blaði, svo sem grein
um sex frægustu demanta
heims, sem allir eiga sér við-
burðaríka sögu, ■— grein um
fertugar fríðleikskonur, smá-
sagan Hjálpaðu mér, Diana,
og ótalmargt fleira.