Vikan


Vikan - 29.05.1969, Blaðsíða 32

Vikan - 29.05.1969, Blaðsíða 32
Ronson flARÞURRRA HEIMILANNA TILVALÍN TÆIvIFÆRISGJÖF EINKAUMBOÐ: I. GUÐMUNDSSON & CO. HF., REYKJAVÍK' 32 VIKAN 22- tbl- Nautsmerkið (21. apríl — 21. mal); Hafðu meira samband við kunningjana og leggðu þig fram með að þroska félagsskap ykkar. Rétt er að vera á verði gagnvart fólki sem þarf sífellt að trúa manni fyrir leyndarmálum. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Reyndu að komast í persónulegt samband við yfir- boðara þína, ekki er óliklegt að það komi sér vel fyrir þig. Það verða gerðar háar siðferðislegar kröf- ur til þín. Leitaðu ekki nýrra kynna við hitt kynið. Bogamannsmerkið (23. nóv. — 21. desember): Atburðir innan fjölskyldunnar valda spennu og óþolinmæði. Persónur Hrútsmerkisins sérstaklega æskilegir félagar. Ferðalag í vændum sem spannar miklar vegalengdir. Happatala fjórir. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Óhjákvæmiiegir erfiðleikar verða á vegi þínum, en þeir standa ekki legni. Vertu þolinmóður, annað er ekki til neins. Þú hefur mikla veizlu í undirbúningi og þarft engu að kvíða í þvi sambandi. Hrútsmerkið (21. marz — 20. aprll): Trúnaðarmaður þinn er ekki eins öruggur og þú hyggur. Taktu hendinni til heimavið, þar er margt ógert, sem þarfnast lagfæringar þegar í stað. — Á heimili þínu eru breytingar i vændum. Vogarmerkið (24. september — 23. október) Nokkrar tafir verða á framkvæmdum þínum. Temdu þér að vinza aðalatriðin frá aukaatriðunum. Kunn- ingjar þínir hafa miklar framkvæmdir með höndum og þess vegna ertu dálítið utanveltu. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Hafðu fremur hægt um þig og njóttu tómstundanna heimavið. Þú nýtur þess að laga til í kringum þig og búa í haginn fyrir framtíðina. Félagsskapur annarra verður þér ekki til mikillar ánægju. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Það er nauðsynlegt fyrir sálarróna að þú komir til móts við mann sem reynir að leiðbeina þér. Veðr- áttan verður til að breyta áformum þinum lítillega. Samband fjölskyldunnar verður mjög gott. Tvíburamerkið (22. maf — 21. júnf): Þér gengur vel í starfi og þú færð uppörvun frá mikilsmetinni persónu. — Þú hefur lengi dekrað ákveðna persónu; ef þú vilt ná þeim árangri er þú vonast eftir, verðurðu að breyta um tækni. Krabbamerkiö (22. júnf — 23. júlO: Sökum framsýni og dugnaðar fjölskyldunnar og þín getið þið litið framtíðina bjartari augum. Þú endur- nýjar sambandið við ákveðinn kunningjahóp. Vikan er vel fallin til ýmissa uppgjöra. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ógúsf); Dómgirni getur verið hættuleg, ef þú lætur hana ganga of langt. Vantraust þitt á ýmsum persónum geturðu rakið til sjálfs þín. Vertu vingjarnlegri, þá verða samferðamennirnir þér til meiri ánægju. Meyiarmerkið (24. ágúst — 23. september): Vonbrigði í vinavali verða þér nokkuð lærdómsrík. Veldu þér vini sem þú berð virðingu fyrir og bera virðingu fyrir þér. Vinaval bezt í Meyjar-, Vogar- eða Bogmannsmerki. Ferðalag í vændum.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.