Vikan


Vikan - 29.05.1969, Blaðsíða 36

Vikan - 29.05.1969, Blaðsíða 36
L.EQUI EiOHKOUR OLY AFTUR FYRÍRLIGGJANDI HVAÐA ÞÝÐINGU HEFUR LIQUI - MOLY SMURHÚÐUN FYRIR BIFREIÐAEIGANDANN? Ein dós af LIQUI MOLY sem kostar inn- an við kr. 150,00 myndar slitlag á núnings- fleti vélarinnar sem endist 4800 kílómetra. Á þessu tímabili er rétt að skipta um olíu eins og venjulega, en eiginleikar LIQUI MOLY slitlagsins breytast ekki við það. Þetta gífurlega sterka slitlag, sem er 50— 60% hálla en olía, smyr því betur sem leguþrýstingurinn er meiri og engin hætta er á að það þrýstist burt úr legunum eða renni af og niður í pönnuna eins og olía þó vélin kólni að næturlagi eða í löng- um kyrrstöðum og útilokar því þurra (ósmurða) gangsetningu sem talin er valda 90% af öllu vélasliti. LIQUI MOLY auðveldar gangsetningu og eykur endingu rafgeymisins, jafnvel í 20° frosti snýst vélin liðugt. LIQUI MOLY slitlagið minnkar núningsmótstöðuna, við það eykst snúningshraðinn og vélin gengur kaldari, afleiðing verður bensín- og olíusparnaður. • Minnkar sótun vélarinnar. @ Veitir öryggi gegn úrbræðslu. • Eykur tvímæialaust endingu vélarinnar. LIQUI MOLY fæst á bensínafgreiðslum og smurstöðvum. Nánari upplýsingar veittar hjá LIQUI MOLY-umboðinu á íslandi. ÍSLEMZKA VERZLUNARFÉLAGIÐ HF. Laugavegi 23. — Sími 19943. 80 ár er enginn Framhald af bls. 21 vísu gera hin gáfuðu og efnilegu börn þeirra hjóna uppreisnir öðru hveriu, en slíkt telst varla til tíðinda nú á dögum. Hér er Chaplin ánægð- ur honum finnst lífið þægilegt hann er loksins orðinn sáttur við sjáIfan sig og tilveruna. Engar skriflegar heimildir eru til um það, hvenær Chaplin fæddist, en hann segist sjálfur vera fæddur 16. apríl 1889 í East Lane í Wal- worth. Foreldrar hans, Charles og Hannah Chaplin, er bæði voru gam- anleikarar, hljóta að hafa gleymt að tilkynna hinu opinbera um fæðingu sonarins. Þeim láðist einnig að láta skrásetja hvar og hvenær þau giftu sig, enda má segja, að það gilti einu, því að þau skildu eftir skamma sambúð. Faðir Chaplins kvæntist fljótlega aftur, konu að nafni l.ouise. En það er engin ástæða til að efast um að Chaplin muni rétt, hvar og hvenær hann fæddist. Og allur heimurinn veit og getur vitnað um það, að Chaplin kom til Hollywood I desember 1913; að hann lék árið 1914 í hvorki meira né minna en 35 kvikmyndum,- að hann var þann- ig skapi farinn, að hann var ekki ánægður nema hann væri allt í senn, höfundur kvikmyndahandritsins, framleiðandi, leikstjóri og léki aðal- hlutverkið, að ekki sé minnst á smá- muni eins og að semja tónlist og þvlumlíkt. Á áttræðisafmælinu er hann að semja handrit að 82. mynd sinni. Þegar átt var við hann viðtal í sjón- varpi í tilefni afmælisins, hafði hann með sér tvo aðstoðarmenn sína við gerð handritsins, hinn fræga banda- ríska rithöfund, Truman Capote, og Piet Hein, danskt skáld, sem öðlazt hefur frægð fyrir snjöll og örstutt skopkvæði, sem hann nefnir ,,Gruk". Hin nýja Chaplin-mynd mun að öllum líkindum heita Nornirnar, og að minnsta kosti ein af hinum fögru dætrum Chaplins mun fara með tit- i I h I utverkið. Fyrsta myndin, sem Chaplin lék í, var tekin í byrjun ársins 1914 og frumsýnd í febrúar. Myndin hét Making a Living og er talin fremur léleg. Chaplin lék skúrk með háan pípuhatt og mikið yfirskegg. En nokkrum vikum síðar var fyrsta myndin gerð, þar sem Chap- lin leikur umrenninginn, með blóm í hnappagatinu, ofurlítið yfirskegg, í krumpuðum buxum og alltof stór- um skóm og sveiflandi montpriki. Aðeins mánuði síðar, í byrjun marz 1914, var öllum Ijóst I Hollywood, að ný stjarna hafði verið tendruð á himni kvikmyndanna. í lok ársins var Chaplin orðinn heimsfrægur. Margar sögur eru sagðar frá þess- um fyrstu frægðarárum Chaplins og sumar býsna skemmtilegar, hvort sem þær eru sannar eða ekki. Segja má að eins konar Chaplin-æði hafi gripið um sig á þessum árum. Menn kepptust við að líkja eftir hinum vinsæla umrenningi, skoplegum töktum hans og dæmalausum lima- burði. Eftirfarandi saga er gott dæmi um þetta: Chaplin þurfti að vinna myrkr- anna á milli þessa mánuði. Eftir- spurnin eftir myndum hans var slík, að ekki reyndist unnt að anna henni, þótt ný mynd væri framleidd í hverri viku. Dag nokurn hafði Chap- lin unnið langt fram á kvöld í kvik- myndaverinu til þess að fylgjast með klippingu nýjustu myndar sinn- ar. Seint um kvöldið gat hann loks- ins farið heim og pantaði sér leigu- bíl. Þegar bíllinn hafði ekið í fá- einar mínútur, varð hann að stanza, þar sem fólksfjöldi stöðvaði alla umferð fyrir utan kvikmyndahús eitt. Caphlin kallaði út um glugg- ann til eins úr hópnum og spurði hann, hvað væri eiginlega á seyði. — Charlie Chaplin er þarna, hrópaði maðurinn æstur og steig um leið upp á fótpall bílsins til þess að geta séð yfir mannfjöldann. — Er það satt, sagði Chaplin og fór út úr bílnum til þess að sjá fyr- irbærið með eigin augum. Jú, það var ekki um að villast. Þarna var umrenningurinn hans lifandi kom- inn, fetti sig og bretti, sveiflaði stafnum og datt um sjálfan sig. Fólkið hrópaði og klappaði af fögn- uði og hver reyndi að troða sér fram fyrir annan til að sjá sem bezt. Nokkrir lögregluþjónar voru þarna, en réðu ekkert við mannfjöldann. — Þetta er sannarlega skemmti- legt, sagði Chaplin, þegar hann hafði horft á þessa ágætu stælingu á sjálfum sér í nokkrar mínútur. Maðurinn, sem stóð hjá honum svaraði: — Skemmtilegt? Já, víst er það það! Enda er þetta skemmtilegasti maðurinn í allri Ameríku. Það er sagt, að hann þéni hundrað dollara á dag og vinni ekki, nema þegar hann er fullur .... f blaðaviðtali í tilefni af áttræð- isafmælinu, sagði Charlie Chaplin m.a. um kvikmyndagerð sína: „Sá sem gerir kvikmynd verður að gæta þess vandlega að missa ekki sjónar á takmarki sínu. Hann verður að reyna að halda sínum persónulegu einkennum, en það getur verið býsna erfitt. Hann er nefnilega umkringdur af óteljandi aðstoðarmönnum, sem allir eru bráðgáfaðir og listrænir einstakling- ar hver út af fyrir sig. Og allir eiga þeir það sameiginlegt að vilja gefa framleiðandanum góð ráð, miðla honum allra náðarsamlegast af sín- um miklu gáfum og hæfileikum. Allir vilja þeir leggja sitt af mörk- um til þess að myndin verði góð. Ef framleiðandinn fer eftir ráðlegg- ingum þeirra, getur orðið hreinn óskapnaður úr öllu saman. Það er nefnilega fyrst og fremst hans verk að gera myndina, og ef hann fer of mikið eftir ráðum aðstoðarmann- anna, þá glatast það sem hann vildi fá fram, og öll persónuleg einkenni fara forgörðum." Þarna er að öllum likindum kom- in skýringin á því, hvers vegna Chaplin gerir allt í kvikmyndum sínum: skrifar handritið, er fram- leiðandi og leikstjóri og leikur að- alhlutverkið. Hann hefur viljað, að oersónu- legir eiginleikar hans nytu sín til fulls, og honum hefur svo sannar- lega tekizt það. £ Það verður að vera ... Framhald af bls. 27 hárið á honum þannig að það verði slétt og taka af honum freknurnar — ja — þá er þetta ekki mynd af stráknum lengur. Ég nota hvergi retússeringu nema til viðgerða á skemmdum. Enda á hún ekkert skylt við Ijósmyndun; það væri nær að flokka hana undir álíka grein og að framleiða pappfrinn. Auð- vitað er nauðsynlegt að kunna ret- ússeringu og geyma hana f rass- vasanum og grípa til hennar ef með þarf, eins og alla tækni, sem út af fyrir sig er einskis verð en getur verið stórkostleg, þegar á þarf að halda og þar sem hún á heima. 36 VIKAN 22- tbl'

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.