Vikan - 29.05.1969, Page 32
Ronson
flARÞURRRA HEIMILANNA
TILVALÍN TÆIvIFÆRISGJÖF
EINKAUMBOÐ:
I. GUÐMUNDSSON & CO. HF., REYKJAVÍK'
32 VIKAN 22- tbl-
Nautsmerkið (21. apríl — 21. mal);
Hafðu meira samband við kunningjana og leggðu
þig fram með að þroska félagsskap ykkar. Rétt er
að vera á verði gagnvart fólki sem þarf sífellt að
trúa manni fyrir leyndarmálum.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Reyndu að komast í persónulegt samband við yfir-
boðara þína, ekki er óliklegt að það komi sér vel
fyrir þig. Það verða gerðar háar siðferðislegar kröf-
ur til þín. Leitaðu ekki nýrra kynna við hitt kynið.
Bogamannsmerkið (23. nóv. — 21. desember):
Atburðir innan fjölskyldunnar valda spennu og
óþolinmæði. Persónur Hrútsmerkisins sérstaklega
æskilegir félagar. Ferðalag í vændum sem spannar
miklar vegalengdir. Happatala fjórir.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Óhjákvæmiiegir erfiðleikar verða á vegi þínum, en
þeir standa ekki legni. Vertu þolinmóður, annað er
ekki til neins. Þú hefur mikla veizlu í undirbúningi
og þarft engu að kvíða í þvi sambandi.
Hrútsmerkið (21. marz — 20. aprll):
Trúnaðarmaður þinn er ekki eins öruggur og þú
hyggur. Taktu hendinni til heimavið, þar er margt
ógert, sem þarfnast lagfæringar þegar í stað. — Á
heimili þínu eru breytingar i vændum.
Vogarmerkið (24. september — 23. október)
Nokkrar tafir verða á framkvæmdum þínum. Temdu
þér að vinza aðalatriðin frá aukaatriðunum. Kunn-
ingjar þínir hafa miklar framkvæmdir með höndum
og þess vegna ertu dálítið utanveltu.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Hafðu fremur hægt um þig og njóttu tómstundanna
heimavið. Þú nýtur þess að laga til í kringum þig og
búa í haginn fyrir framtíðina. Félagsskapur annarra
verður þér ekki til mikillar ánægju.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Það er nauðsynlegt fyrir sálarróna að þú komir til
móts við mann sem reynir að leiðbeina þér. Veðr-
áttan verður til að breyta áformum þinum lítillega.
Samband fjölskyldunnar verður mjög gott.
Tvíburamerkið (22. maf — 21. júnf):
Þér gengur vel í starfi og þú færð uppörvun frá
mikilsmetinni persónu. — Þú hefur lengi dekrað
ákveðna persónu; ef þú vilt ná þeim árangri er þú
vonast eftir, verðurðu að breyta um tækni.
Krabbamerkiö (22. júnf — 23. júlO:
Sökum framsýni og dugnaðar fjölskyldunnar og þín
getið þið litið framtíðina bjartari augum. Þú endur-
nýjar sambandið við ákveðinn kunningjahóp. Vikan
er vel fallin til ýmissa uppgjöra.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ógúsf);
Dómgirni getur verið hættuleg, ef þú lætur hana
ganga of langt. Vantraust þitt á ýmsum persónum
geturðu rakið til sjálfs þín. Vertu vingjarnlegri, þá
verða samferðamennirnir þér til meiri ánægju.
Meyiarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Vonbrigði í vinavali verða þér nokkuð lærdómsrík.
Veldu þér vini sem þú berð virðingu fyrir og bera
virðingu fyrir þér. Vinaval bezt í Meyjar-, Vogar-
eða Bogmannsmerki. Ferðalag í vændum.