Vikan - 29.05.1969, Blaðsíða 6
MARILYN MONROE ÁTTI
SON
Það er nú komið í ljós, að
Marilyn Monroe átti son, sem
hún fórnaði fyrir hina fallvöltu
og dýrkeyptu frægð sína. Hann
heitir Jan Kuhn Mortensen og
er tvítugur að aldri. Hann var
þrettán ára, þegar móðir hans
lézt. — Árið 1949, þegar Mari-
lyn var 23 ára, vann hún fyrir
sér sem fyrirsæta, en gerði allt
sem hún gat til þess að verða
kvikmyndastjarna. Hún var tið-
ur gestur á ráðningaskrifstofum
leikara, en einni slíkri veitti mað-
ur að nafni John Hyde forstöðu.
Hann var 52 ára gamall. Fyrr en
varði átti Marilyn von á barni
með honum. Hún bjóst við, að
hann mundi kvænast henni, en
hann vildi hvorki heyra hana né
sjá. Marilyn Monroe fæddi barn
sitt 12. nóvember 1949 og átti
ekki um annað að velja en að
gefa það. Hjón að nafni Kuhn
tóku barnið að sér og ættleiddu
það. Þau voru af norskum ætt-
um, en búsett á Long Beach.
Marilyn Monroe mun hafa sett
það sem skilyrði, að drengurinn
fengi aldrei að vita hver hans
rétta móðir væri. Hins vegar er
sagt, að nokkrum dögum áður
en hún svipti sig lífi, hafi hún
hringt heim til drengsins eld-
snemma morguns; hann hafði
sjálfur svarað í símann og hún
hafi sagt honum allt af létta.
Foreldrar drengsins þrættu fyr-
ir þetta og fluttust nokkru síðar
aftur til Noregs.
En drengurinn gat ekki gleymt
þessu atviki, og þegar hann fór
til náms til Bandaríkjanna í
fyrra, lét hann það verða sitt
fyrsta verk að grafast fyrir um
uppruna sinn.
Þá fékk hann loks staðfestingu
á því, að móðir hans var engin
önnur en hin fræga og óham-
ingjusama Marilyn Monroe.
☆
Þau sáust saman á Lundúna-
flugvelli fyrir nokkru, gaman-
leikarinn Danny Kay og hin sí-
unga Marleene Dietrich, sem er
víst komin á sjötugsaldur. Þau
voru þarna saman að sjálfsögðu
vegna starfs síns. Danny Kay
hefur látið sér vaxa skegg og er
talsvert breyttur í útliti frá því
sem áður var. En gamansemin
og ærslin hafa ekkert breytzt hjá
honum sem betur fer. Þegar
blaðaljósmyndarar komu
auga á þau og tóku að, sniglast í
kringum þau, setti Danny Key
upp hátignarlegan virðingarsvip
og sagði:
— Á ég að segja ykkur frétt
ársins? Við Marlene erum trú-
lofuð!
tV
6 VIKAN 22-tbl-