Vikan - 29.05.1969, Síða 16
ANITA DG PETEB GIFIA SIG
DEGAB HANN MÁ HERA AD
16 VTKAN 22 tbl
Nafnið Peter Sarstedt birtist
nýlega á brezka vinsældalistan-
um. Þessi náungi, sem var alls
óþekktur áður, var skrifaður fyr-
ir laginu „Where do you go to“.
Fæstir bjuggust við, að lag þetta
kæmist langt upp eftir vinsælda-
listanum, en raunin varð önnur.
Lagið hafnaði í fyrsta sæti. Það
er eftir hann sjálfan og verður
víst ekki flokkað sem pop, því
að Peter vill ekki láta nefna sig
pop-söngvara. Hann segist vera
vísnasöngvari. Hann er 27 ára
af brezku foreldri, fæddur í Ind-
landi og ólst þar upp til 11 ára
aldurs. Eldri bróðir hans he:tir
Eden Kane og var sá þekktur
pop-söngvari í Bretlandi fyrir
nokkrum árum. Peter var á þeim
árum handgénginn bróður sínum,
ferðaðist með honum milli
hliómleikasala en fékk sig fliótt
fullsaddan af öllu íilstandinu.
Svo tók hann upp á að syngja
sjálfur. Hann flakkaði land úr
landi, söng á götum úti t:l að
öngla saman aurum og lét yfir-
leitt standa á sama um allt, sem
gerðist í kringum hann. Um skeið
voru þeir hlið við hlið í París,
Don Patridge, sem nú er frægur
orðinn, og Peter Sarstedt. Peter
segist hafa vaknað fyrir alvöru til
lífsins, þegar hann tók að hlusta
á plötur Dylans. Þá fór hann að
taka eftir lífinu í kringum sig,
setja saman ljóð, sem höfðu ein-
hverja meiningu í stað innan-
tóms orðagjálfurs áður. Sjálfur
samdi hann síðan lögin við lióð-
in sín — og söng þau ó götu-
hornum.
líagið „Where do you go to?“
samdi Peter fyrir þremur árum,
þegar hann var í París. í ljóð-
inu segir frá franskri dömu, sem
hefur alizt upp í fátækrahverf-
unum en er nú í hópi brodd-
borgara. „Mér þætti gaman að
vita, um hvað hugsanir þínar
snúast, þegar þú ert ein um næt-
ur“, syngur Peter Sarstedt. Hann
hefur verið nefndur „hinn nýi
Dylan“.
Forráðamenn plötufyrirtækis-
ins, sem gaf út plötu Peters, voru
snöggir í snúningum, þegar þeim
varð ljóst, að platan sigldi hrað-
byri upp eftir vinsældarlistan-
um. Þeir lögðu þegar í stað drög
að hæggengri plötu með Peter, og
kom sú plata á markaðinn á met-
tíma. Hún hefm- fengið feikna-
lega góða dóma í brezku músik-
blöðunum, og eru menn almennt
sannfærðir um, að hér sé á ferð-
um söngvari, sem eigi eftir að
láta töluvert að sér kveða í nán-
ustu framtíð.
Að sjálfsögðu þarf Peter ekki
að kvarta yfir iðjuleysi þessa
dagana. Hann ltemur fram í
hljómleikasölum kvöld eftir
kvöld, og á þessu ætlar eng'nn
endir að verða, að því er honum
sjálfum finnst. Hann segir sjálf-
ur, að hugurinn sé ekki við
músikina um þessar mundir
heldur unnustuna, Anitu Atke.
Anita er dönsk og á heima í
Kaupmannahöfn, þar sem hún
leggur stund á nám í tannlækn-
ingum. Þau ætla að láta pússa sig
saman innan tíðar, þ.e. þegar
Peter má vera að því að skreppa
til hennar!
Nokkuð er nú um liðið síðan Bítlarnir sendu frá sér hæggenga
hljómplötu með lögum úr teiknimyndinni „Yellow Submarine“.
Bítlarnir koma að vísu aðeins fram á annarri hlið plötunnar, ■—
á ihnni hliðinni er tónlist úr myndinni leikinn af hljómsveit undir
stjórn George Martin. Eitt laganna á þessari plötu er líklegt til
mikilla vinsælda, ef það skyldi einhvern tíma fá að heyrast í þátt-
um unga fólksins í útvarpinu. Hér er átt við lagið „All together
now“, sem er sungið af Ringó. í þessu lagi er einföld og auðlærð
laglína, sérkennilegur og skemmtilegur taktur og viðlag, sem allir
geta lært og sungið með. Geta má þess, að þetta lag hefur átt miklum
vinsældum að fagna í Tónalæ, og hafa plötusnúðarnir spilað það
hvað eftir annað á dansskemmtunum skv. óskum gesta. Annað at-
hyglisvert lag á umræddri plötu er „It‘s AU Too Much“. Þetta lag
flokkast undir „rock“ og er í rauninni samið í kringum eina ein-
ustu nótu, sem heldur sínu striki bak við músikina lagið út í gegn.
☆