Vikan - 29.05.1969, Qupperneq 17
ANDRÉS INDRIÐASON
PETEES lllllli
II RIIIO
IEIKA SAMAN
Þannig birtast Peter Sellers
og Ringó Starr í kvikmyndinni
„The Magic Christian“. Töku
myndarinnar mun nú um það bil
að ijúka. Mikið hefur verið rætt
um fyrirtæki þetta af þeirri or-
sök einni, að Ringó er með. Peter
Sellers leikur smáskrýtinn auð-
kýfing í myndinni og Ringó son
hans.
Ráðamönnum í kvikmynda-
bransanum þykir Peter Sellers
gerast undarlegur í háttum með
árunum. Er í frásögur fært, að
Peter gerist nú leiðitamur hipp-
um og slíku fólki, og er margt
skrafað um þetta tiltæki leikar-
ans. Er m.a. haft fyrir satt, að
hann hafi látið orð falla um
nautnalyfið marijuana þann veg,
að skilja hefði mátt, að hann
væri því eigi andsnúinn. Sú
fiskisaga hefur líka flogið, að
með þessu sínu hátterni hafi
Sellers komið sér út úr húsi hjá
kóngafólkinu í Buckingham og
verði hann nú af aðalstitli fyrir
vikið.
Ef við rýnum í merkið á jakka
Peters á myndinni, sjáum við
kannski, að það er hið alþjóð-
lega tákn mótmæla gegn kjarn-
orkuvopnum.
Bítlarnir eru um þessar mundir
að ganga frá hinni nýju hæg-
gengu hljómplötu sinni, sem hef-
ur að egyma tólf lög, og ætti þessi
plata að koma í umferð, áður
en langt um líður. Bítlarnir áttu
í fórum sínum mikið af efnivið
í þessa plötu, þar á meðal lög,
sem þeir höfðu endanlega gengið
frá á liðnu ár;. Ekki virðast þeir
hafa verið ánægðir með útkom-
una á þeim lögum, því að nýlega
hljóðrituðu þeir þrjú lög, sem
þeir höfðu áður gengið endan-
lega frá og komu til álita á hæg-
gengu plöturnar tvær, sem út
komu saman í umslagi. Tvö þess-
ara laga eru eftir George Harri-
son. Það er alltaf að koma betur
í ljós, að það er Paul McCartney,
sem er potturinn og pannan í
hljómplötudeild Apple fyrirtæk-
isins. Hann ákveður, hvaða
söngvarar og hljómsveitir syngja
á plötur hjá Apple, og hann hef-
ur reynzt mikil hjálparhella því
fólki, sem skrifað hefur undir
samning hjá Apple. Nægir hér
að nefna Mary Hopkin. Hún hef-
ur nú sungið inn á aðra tveggja
laga plötu sína, og hefur Paul
samið lagið, sem upp snýr.
Nefnist það „Goodbjæ“ og er
líklegt til mikilla vinsælda. Paul
stjórnaði einnig plötuupptökunni
og er meðal þeirra, sem annast
undirleik. Eins og kunnugt er
giftist Paul Lindu Eastman um
miðjan marz s.l. Linda er banda-
rísk, 27 ára, og hefur starfað sem
ljósmyndari. Paul og Linda
kynntust í New, er hún tók af
honum myndir fyrir unglinga-
blað. Paul hefur að undanförnu
dvalið vestan hafs hjá tengda-
foreldrum sínum, en nú er hann
kominn heim aftur og tekinn að
sýsla við plötuútgáíu hjá Apple.
Ringo hefur einnig dvalizt í
Bandarikjunum að undanförnu.
Lokaatriðin í kvikmyndinni „The
Magic Christian“ voru tekin upp
í New York, en Ringo leikur sem
kunnugt er í myndinni ásamt
Peter Sellers. 'fc
22. tw. VIKAN 17