Vikan


Vikan - 29.05.1969, Síða 18

Vikan - 29.05.1969, Síða 18
MNNEYHim NRrMfmum 1VHUBM9NS Myndirnar: Georgía Pangapúlú ræðir við blaðamenn á leyndum stað í Osló. Georgía Pangapúlú er ung stúlka grísk, sem nú býr í Osló — götu- heiti og húsnúmer er á fárra vit- orði aðeins, og einnig hvernig hún komst frá föðurlandi sínu. Hún kom til Noregs tíunda febrúar síðastlið- inn, en tveimur vikum síðar stóð til að stefna henni fyrir herrétt í Saló- niki fyrir starfsemi fjandsamlega þjóðfélaginu. Hún átti að hafa fal- ið andspyrnumenn, formælt her- foringjaklíkunni opinberlega, sem landinu stjórnar, prentað ólögleg flugrit og fleira og fleira. Hún tel- ur líklegt að hún hefði hlotið tutt- ugu ára fangelsisdóm, hefði henni ekki tekizt að komast undan. Hjá henni í Osló býr unnusti hennar, Konstantínos Meletis, sem einnig er flóttamaður. Hann er einn þeirra andstæðinga herforingj- anna sem þeir hatast mest við, enda hefur norska öryggislögreglan stöðugt vörð um hjónaleysin. Það var Meletis sem strauk úr greipum herforingjaklíkunnar í Strasbourg, en þangað hafði hann verið send- ur til að vitna með henni. Georgía segir svo um sínar farir: Ég er ættuð frá Salóniki, er tutt- ugu og fjögurra ára, á gifta systur og þrjá bræður. Að loknu mennta- skólanámi fór ég að vinna á skrif- stofu. Meletis rak kaffistofu í grennd- inni, og þar hittumst við. Ég komst fljótt að því að hann var í leyni- legum andstöðuhóp í Salóniki, og til að vera eins mikið með honum og hægt var hætti ég á skrifstof- unni og fór að hjálpa honum. Það var ekkert grunsamlegt við það, því að við ætluðum að gifta okkur. Ég hitti oft fleiri andspyrnumenn og aðstoðaði þá. Til dæmis varð ég fljótlega leikin í að klippa hár, því að enginn andspyrnumannanna þorði að fara til rakara. Við fórum svo varlega að lög- reglan hefði ekki komizt að neinu, hefði ekki sextán ára stúlka komið upp um okkur. Lögreglan grunaði hana um andspyrnustarfsemi, hand- tók hana og yfirheyrði. Þegar hún játaði ekki eða gaf upplýsingar hóf- ust pyndingar. í níu klukkustundir jvar hún látin standa nakin frammi fyrir þeim, sem yfirheyrslunni 18 VIKAN 22- tbl-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.